Sjö marka sigur Fram - öll úrslitin í kvennahandboltanum í dag Fram vann sjö marka sigur á Fylki í síðasta leik dagsins í Olís-deild kvenna í handbolta. Fram vann leikinn 28-21 eftir að hafa verið sex mörkum yfir í hálfleik, 18-12. Handbolti 12. október 2013 18:58
Valskonur aftur á sigurbraut - tveir sigrar í röð hjá FH Valskonur rifu sig upp eftir að hafa misst frá sér sigur í lokin á móti Gróttu í vikunni og sóttu tvö stig á Ásvelli í 5. umferð Olís-deildar kvenna í handbolta í dag. Valur vann þá sex marka sigur á Haukum, 28-22, í Schenkerhöllinni. Handbolti 12. október 2013 17:56
Þrettán marka sigur og fullt hús hjá Stjörnukonum Stjörnukonur héldu sigurgöngu sinni áfram í Olís-deild kvenna í handbolta í dag þegar þær unnu þrettán marka sigur á HK í Mýrinni, 37-24. Handbolti 12. október 2013 15:24
Búið að fresta kvennaleik Aftureldingar og ÍBV Mótanefnd Handknattleikssambands Íslands hefur ákveðið að fresta leik Aftureldingar og ÍBV í Olís deild kvenna í handbolta vegna ófærðar frá Vestmannaeyjum. Það er enn óvissa um hvort að leikur ÍBV og FH í Olís deild karla fari fram í dag. Handbolti 12. október 2013 12:30
Ásta Birna sá um að afgreiða HK Einn leikur fór fram í Olís-deild kvenna í kvöld. Þá tók HK á móti Fram í Digranesi. Heimastúlkur í HK höfðu lítið í Fram að gera í kvöld. Munurinn sjö mörk í hálfleik og Fram gaf það forskot aldrei eftir. Handbolti 9. október 2013 21:21
Umfjöllun, myndir og viðtöl: Valur - Grótta 20-20 | Grótta skoraði þrjú síðustu mörkin Gróttukonur urðu fyrstar til að taka stig af Val í vetur þegar þær náðu 20-20 jafntefli við Val í Vodafone-höllinni að Hlíðarenda í kvöld þegar liðin mættust í 4. umferð Olísdeildar kvenna í handbolta. Gróttuliðið skoraði þrjú síðustu mörkin í leiknum og fékk að auki tækifæri til að tryggja sér sigur í lokasókninni. Handbolti 8. október 2013 16:41
Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Stjarnan 23-35 | Florentina í stuði Stjörnustúlkur sóttu tvö stig til Vestmannaeyja í kvöld en Eyjastúlkur áttu aldrei möguleika gegn sterku liði gestanna. Handbolti 8. október 2013 16:39
Valur skoraði á fimmta tug marka | Haukar lögðu Fylki Bikarmeistarar Vals fóru létt með Aftureldingu í Olísdeild kvenna í handknattleik í dag. Lokatölurnar urðu 41-16 fyrir gestina af Hlíðarenda. Handbolti 5. október 2013 15:33
Framkonur spila tvo Evrópuleiki á heimavelli um helgina Þetta verður Evrópuhelgi hjá Íslandsmeisturum Fram í kvennahandboltanum því Safamýrarstelpurnar mæta enska liðinu Olympia HC-London í tveimur leikjum í EHF-bikarnum í Framhúsinu um helgina. Handbolti 5. október 2013 09:00
Tveir sigrar í röð hjá HK-konum HK-stelpur sóttu tvö stig í Kaplakrika í kvöld þegar þær unnu 18-15 sigur á FH í fyrsta leiknum í þriðju umferð Olísdeildar kvenna i handbolta. Handbolti 4. október 2013 21:36
Úrslit gærdagsins í Olís-deild kvenna Önnur umferð Olís-deildar kvenna fór fram í gær. Var fátt um óvænt úrslit en stærsti leikurinn fór fram í Vestmannaeyjum. Handbolti 29. september 2013 11:42
FH-stelpur stóðu í meisturunum Fram hóf titilvörnina í kvennahandboltanum á því að sækja tvö stig í Kaplakrika í kvöld en Framkonur unnu þá 21-18 marka sigur á FH. Þetta var fyrsti leikurinn í Ólís-deild kvenna í vetur en fyrsta umferðin klárast síðan á morgun. Handbolti 20. september 2013 16:53
Framkonur í vandræðum með Fylki Íslandsmeistarar Fram lentu í vandræðum í gær á móti ungu og efnilegu Fylkisliði í Subway-æfingamóti kvenna í handbolta sem haldið er í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi. Fram vann að lokum með einu marki en heimastúlkur í Gróttu unnu HK í hinum leik kvöldsins. Handbolti 7. september 2013 13:39
Íslandsmeistarar Fram byrjuðu á risasigri Ragnheiður Júlíusdóttir, sextán stelpa úr Fram, skoraði ellefu mörk þegar Íslandsmeistararnir hófu tímabilið á 31 marks sigri á Víkingi í Reykjavíkurmóti kvenna í handbolta í gær. Handbolti 4. september 2013 10:48
Hafnarfjarðarstelpurnar á sigurbraut Hafnarfjarðarliðin unnu bæði sína leiki á fyrsta kvöldi UMSK-móts kvenna í handbolta sem fer fram í Digranesi um helgina. Konurnar byrjuðu í kvöld en karlarnir hefja síðan leik á morgun. Handboltinn er að byrja aftur eftir sumarfrí og er þetta eitt af undirbúningsmótunum. Handbolti 29. ágúst 2013 22:07
Heiðdís Rún heim í Hafnarfjörðinn "Mér fannst ég þurfa að spila meira til þess að koma mér upp úr þessum meiðslum," segir Heiðdís Rún Guðmundsdóttir nýjasti liðsmaður FH í handbolta. Handbolti 29. ágúst 2013 09:14
Guðrún Ósk samdi við FH Handknattleiksmarkvörðurinn Guðrún Ósk Maríasdóttir snýr aftur á handboltavöllinn í vetur en hún er búin að semja við FH. Handbolti 22. ágúst 2013 11:00
Rúmensk skytta í kvennalið Vals Valsmenn eru búnir að semja við rúmenska skyttu og mun hún spila með félaginu í N1 deild kvenna á komandi tímabil. Handbolti 12. ágúst 2013 12:15
Anett Köbli aftur komin í Gróttubúninginn Anett Köbli hefur skrifað undir samning við handknattleiksdeild Gróttu og mun spila með liðinu í N1 deild kvenna í vetur. Hún er fjölhæfur leikmaður sem getur spilað flestar stöður fyrir utan. Handbolti 9. ágúst 2013 19:25
Stórvinkonur í Stjörnunni Línumaðurinn Elísabet Gunnarsdóttir mun í dag skrifa undir samning við uppeldisfélag sitt, Stjörnuna í Garðabæ. Þetta hefur Fréttablaðið eftir áreiðanlegum heimildum. Elísabet varð Íslandsmeistari með Fram í vetur en heldur nú á heimaslóðir. Handbolti 9. júlí 2013 07:00
Bjarki spilar líklega á Íslandi í vetur "Ég hef verið í sambandi við nokkur erlend félög en það hefur ekki gengið upp,“ segir Bjarki Már Elísson, en hann hefur verið í leit að nýju félagsliði undanfarnar vikur. Handbolti 14. júní 2013 06:15
Missti vitið og brotnaði niður Einn besti markvörður landsins, Sunneva Einarsdóttir, hefur rift samningi sínum við Stjörnuna sem er að fá Florentinu Stanciu til sín. Sunneva er sár og svekkt út í stjórn handknattleiksdeildar. Hún ætlar ekki að spila áfram á Íslandi. Handbolti 10. júní 2013 06:30
Ekkert HM fyrir stelpurnar HM-draumur íslenska kvennalandsliðsins dó endanlega í dag er liðið tapaði öðru sinni, 26-21, fyrir Tékkum. Það eru Tékkar sem fara á HM í Serbíu en tékkneska liðið vann einnig fyrri leikinn, 17-29. Handbolti 8. júní 2013 17:33
Sunneva farin því Florentina er á leiðinni Sunneva Einarsdóttir er farin frá handboltaliði Stjörnunnar en hún rifti samningi sínum við félagið í gær. Handbolti 8. júní 2013 12:03
Stelpurnar töpuðu gegn Svíum Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik varð að sætta sig við tap, 30-25, gegn Svíþjóð en liðin mættust í Gautabært í kvöld. Handbolti 24. maí 2013 19:24
Magnús og Ester áfram í Eyjum Handboltaparið Magnús Stefánsson og Ester Óskarsdóttir hafa bæði framlengt samninga sína við ÍBV um tvö ár. Handbolti 21. maí 2013 10:45
Framtíð mín er á Íslandi Florentina Stanciu, landsliðsmarkvörður í handbolta, er með tilboð frá liði í heimabæ sínum í Rúmeníu, SCM Craiova. Hún hefur í hyggju að semja við liðið til eins árs en snúa svo aftur til Íslands. Handbolti 17. maí 2013 08:00
Dröfn í ÍBV ÍBV hefur fundið arftaka Florentinu Stanciu því Dröfn Haraldsdóttir, leikmaður FH, samdi við liðið í fyrradag. Handbolti 17. maí 2013 07:30
Sú efnilegasta fyrir fimmtán árum er sú besta í ár Framarinn Jóhann Gunnar Einarsson og Valskonan Dagný Skúladóttir voru valin Handknattleiksfólk ársins á Lokahófi HSÍ um helgina en bæði voru þau að fá þessi verðlaun í fyrsta sinn. Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir frá Selfossi og Bergvin Þór Gíslason frá Akureyri voru kosin efnilegust. Handbolti 13. maí 2013 06:30
Ágúst velur stóran æfingahóp Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari kvennalandsliðsins í handbolta, hefur valið 22 manna æfingahóp til að taka þátt í undirbúningi fyrir umspilsleikina gegn Tékkum sem fara fram í júní. Handbolti 8. maí 2013 14:04
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti