Nowitzki tók við verðlaunum sínum í dag Þjóðverjinn Dirk Nowitzki hjá Dallas var í dag formlega sæmdur verðlaunum fyrir að vera valinn verðmætasti leikmaður deildarkeppninnar í NBA, en fréttir þess efnis höfðu löngu lekið í fjölmiðla. Nowitzki er fyrsti Evrópubúinn sem hlýtur þennan heiður, en verður leikmanninum líklega lítil huggun eftir að lið hans var niðurlægt í úrslitakeppninni á dögunum. Körfubolti 15. maí 2007 18:31
Gríðarlega mikilvægur sigur hjá Phoenix Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA í nótt. Phoenix vann góðan útisigur á San Antonio 104-98 og jafnaði þar með metin í 2-2 í einvígi liðanna í undanúrslitum Vesturdeildarinnar og Cleveland komst í 3-1 gegn New Jersey með 87-85 sigri á útivelli. Körfubolti 15. maí 2007 11:56
Pistons aðeins einum leik frá úrslitum í austurdeildinni Detroit Pistons þarf nú aðeins einn sigur til þess að spila til úrslita í austurdeildinni í NBA körfuboltanum. Pistons vann öruggan sigur á Chicago í gærkvöldi. Körfubolti 11. maí 2007 11:20
Úrvalslið ársins í NBA tilkynnt í dag Í dag var tilkynnt hvaða leikmenn skipa úrvalslið ársins í NBA deildinni. Það er nefnd fjölmiðlamanna í Bandaríkjunum og Kanada sem stendur að valinu. Nokkur ný andlit voru í liðunum í ár í bland við gamalkunnug. Körfubolti 10. maí 2007 19:13
Mikil dramatík í Utah Utah hefur náð 2-0 forystu í einvígi sínu við Golden State í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA eftir dramatískan sigur í framlengingu í nótt 127-117. Derek Fisher mætti ekki í leikinn fyrr en í síðari hálfleik eftir að hafa flogið frá New York þar sem dóttir hans var í lífshættulegri aðgerð. Fisher spilaði stóra rullu undir lokin og skoraði öll fimm stig sín í framlengingunni. Körfubolti 10. maí 2007 04:29
Utah - Golden State í beinni í nótt Annar leikur Utah Jazz og Golden State Warriors í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan eitt í nótt. Fyrsti leikur liðanna var æsispennandi og lauk með naumum sigri heimamanna. Hér fyrir neðan má sjá leikina sem sýndir verða næstu daga. Körfubolti 9. maí 2007 20:27
Réttarhöldum yfir Jackson frestað á ný Nú er ljóst að vandræðagemlingurinn Stephen Jackson hjá Golden State Warriors getur spilað með liðinu það sem eftir er af úrslitakeppninni, því réttarhöldum yfir honum hefur ferið frestað í annað sinn til 21. júní. Jackson komst í kast við lögin í haust vegna áfloga og vopnaskaks fyrir utan strípibúllu í Indianapolis. Hann á yfir höfði sér fangelsisvist ef hann verður fundinn sekur. Körfubolti 9. maí 2007 16:34
Phoenix vann nauðsynlegan sigur Phoenix lagði San Antonio á nokkuð sannfærandi hátt 101-81 í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA í nótt. Staðan í einvíginu er því orðin jöfn og næstu tveir leikir fara fram í San Antonio. Cleveland náði 2-0 forystu gegn New Jersey með sigri á heimavelli. Körfubolti 9. maí 2007 13:15
Phoenix - San Antonio í beinni í nótt Annar leikur Phoenix Suns og San Antonio Spurs í úrslitakeppni NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan hálf þrjú í nótt. Hér fyrir neðan má sjá hvaða leikir verða sýndir á stöðinni og rásum Sýnar næstu daga. Körfubolti 8. maí 2007 17:48
Sér ekkert athugavert við lyfjanotkun íþróttamanna Mark Cuban, eigandi NBA liðs Dallas Mavericks, er ekki vanur að liggja á skoðunum sínum. Hann segist ekki sjá neitt athugavert við að íþróttamenn noti lyf til að bæta frammistöðu sína á vellinum. Körfubolti 8. maí 2007 17:28
Nelson bannað að drekka bjór Don Nelson, þjálfari Golden State Warriors, hefur verið beðinn um að hætta að drekka bjór á blaðamannfundum eftir leiki liðsins í úrslitakeppninni í NBA. Nelson opnaði dós af Bud Light og drakk á blaðamannafundum eftir leikina við Dallas og þótti forráðamönnum deildarinnar þetta ekki við hæfi. Körfubolti 8. maí 2007 17:20
Utah vann nauman sigur á Golden State Fyrsti leikur Utah og Golden State í undanúrslitum Vesturdeildarinnar í NBA var æsispennandi en svo fór að lokum að heimamenn í Utah höfðu sigur 116-112 á heimavelli sínum. Leikurinn var að hluta til einvígi leikstjórnendanna Deron Williams og Baron Davis og það var hinn ungi Williams sem náði að leiða lið sitt til sigurs í þetta sinn. Körfubolti 8. maí 2007 06:01
Detroit lúskraði aftur á Chicago Detroit er komið með 2-0 forystu gegn Chicago Bulls í einvígi liðanna í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA eftir annan stóran sigur í í nótt 108-87. Varnarleikur Detroit var ógnarsterkur og Chicago sá aldrei til sólar eftir að hafa lent undir 34-18 strax í fyrsta leikhluta. Detroit vann fyrstu tvo leikina á heimavelli sínum en næstu tveir fara fram í Chicago. Körfubolti 8. maí 2007 05:41
Van Gundy ætlar ekki að hætta Jeff Van Gundy, þjálfari Houston Rockets í NBA deildinni, segist ekki ætla að hætta að þjálfar eins og fram kom í grein í New York Post um helgina. Hann segist aftur á móti ætla að hugsa sig vel um í sumar og íhuga framhaldið, en hann er með lausa samninga hjá Houston og hefur enn ekki verið boðinn nýr samningur. Lið hans féll úr úrslitakeppninni eftir tap gegn Utah í sjöunda leik um helgina. Körfubolti 7. maí 2007 21:45
Detroit - Chicago í beinni í kvöld Annar leikur Detroit Pistons og Chicago Bulls í úrslitakeppni NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan tólf á miðnætti í kvöld. Detroit vann afar sannfærandi sigur í fyrsta leiknum 95-69 og ljóst að gestirnir verða að mæta ákveðnari til leiks í kvöld ef ekki á illa að fara. Í nótt hefst svo einvígi Utah og Golden State í undanúrslitum Vesturdeildarinnar. Körfubolti 7. maí 2007 15:20
Blóðugt tap hjá Phoenix í fyrsta leik San Antonio vann mikilvægan útisigur á Phoenix Suns í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Vesturdeildar NBA á sunnudagskvöldið 111-106. Segja má að tap Phoenix hafi verið blóðugt í bókstaflegum skilningi, því liðið naut ekki krafta Steve Nash á lokasprettinum vegna skurðar sem hann fékk á nefið í fjórða leikhlutanum. Körfubolti 7. maí 2007 01:58
Cleveland lagði New Jersey Cleveland hefur náð 1-0 forystu í einvígi sínu við New Jersey í undanúrstitum Austurdeildarinnar í NBA eftir nauman sigur í fyrsta leik liðanna í kvöld 81-77. Bæði lið hittu skelfilega í leiknum en það voru fyrst og fremst yfirburðir heimamanna í fráköstunum sem skiluðu sigrinum. Körfubolti 6. maí 2007 19:34
Cleveland - New Jersey í beinni núna Fyrsti leikur Cleveland Cavaliers og New Jersey Nets hófst klukkan 17 og er hann sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu. Klukkan 20:50 verður svo útsending frá fyrsta leik Phoenix og San Antonio á Sýn. Þetta eru fyrstu leikir liðanna í annari umferð úrslitakeppninnar. Körfubolti 6. maí 2007 17:16
Van Gundy að hætta hjá Houston? Jeff Van Gundy, þjálfari Houston Rockets í NBA deildinni, ætlar að hætta með liðið og taka sér frí frá þjálfun. Þetta hefur dagblaðið New York Post eftir heimildamanni sínum í dag, en hann segir brottför hans ekki tengjast tapi liðsins á heimavelli fyrir Utah í úrslitakeppninni í nótt. Van Gundy er með lausa samninga hjá félaginu í sumar. Körfubolti 6. maí 2007 17:08
Sögulegur sigur hjá Utah - McGrady grét á blaðamannafundi Utah Jazz varð í nótt síðasta liðið til að tryggja sér sæti í annari umferð úrslitakeppninnar í NBA með dramatískum og sögulegum sigri á Houston Rockets í oddaleik í Houston 103-99. Utah varð með sigrinum aðeins 19. liðið í sögu NBA til að vinna leik 7 á útivelli af þeim 97 leikjum þeirrar tegundar sem háðir hafa verið. Körfubolti 6. maí 2007 05:38
Detroit tók Chicago í kennslustund Detroit Pistons bauð Chicago Bulls velkomið í aðra umferð úrslitakeppninnar í nótt með stórsigri 95-69 á heimavelli sínum í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Austurdeildarinnar. Chicago skoraði aðeins 28 stig í síðari hálfleiknum og þótti fyrnasterkur varnarleikur Detroit-liðsins minna á þann sem tryggði liðinu meistaratitilinn árið 2004. Körfubolti 6. maí 2007 05:29
Detroit - Chicago í beinni í kvöld Fyrsti leikur Detroit Pistons og Chicago Bulls í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan 23:00 í kvöld. Klukkan 17 á morgun verður fyrsti leikur Cleveland og New Jersey í beinni á stöðinni og klukkan 20:50 verður Sýn með beina útsendingu frá fyrsta leik Phoenix og San Antonio í undanúrslitum Vesturdeildarinnar. Körfubolti 5. maí 2007 17:07
New Jersey mætir Cleveland Í nótt varð ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum Austurdeildarinnar í NBA deildinni eftir að New Jersey vann nauman sigur á Toronto 98-97 í sjötta leik liðanna. Richard Jefferson skoraði sigurkörfu Nets á síðustu sekúndum leiksins og stal svo boltanum af Toronto liðinu í síðustu sókn liðsins. New Jersey vann einvígið 4-2. Körfubolti 5. maí 2007 03:55
Óvæntustu úrslit í sögu úrslitakeppni NBA Öskubuskulið Golden State Warriors er komið í aðra umferð úrslitakepninnar í NBA deildinni eftir stórsigur á Dallas Maverics í stórkostlegum sjötta leik liðanna í nótt 111-86. Þetta eru almennt talin óvæntustu úrslit í sögu úrslitakeppninnar, en Golden State vann einvígið 4-2. Körfubolti 4. maí 2007 05:48
Houston og Utah mætast í oddaleik Einvígi Houston Rockets og Utah Jazz í úrslitakeppni NBA hefur verið æsispennandi og í nótt knúði Utah fram oddaleik í Houston á laugardagskvöldið með 94-82 sigri í Salt Lake City. Staðan er því jöfn 3-3 í einvíginu og hafa allir leikir í seríunni til þessa unnist á heimavelli. Körfubolti 4. maí 2007 04:36
Tímabilið undir hjá Dallas í nótt Tveir leikir fara fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í nótt. Houston getur slegið Utah Jazz úr keppni með sigri í Salt Lake City og í sjónvarpsleiknum á NBA TV getur Golden State sent Dallas í sumarfrí með sigri í sjötta leik liðanna í Oakland. Leikurinn verður sýndur beint klukkan hálf þrjú í nótt, en þeir sem treysta sér ekki til að vaka geta séð leikinn á Sýn á föstudagskvöldið. Körfubolti 3. maí 2007 20:02
Phoenix komið í aðra umferð Phoenix Suns tryggði sér í nótt sæti í annari umferð úrslitakeppninnar í NBA deildinni með 119-110 sigri á LA Lakers á heimavelli sínum í fimmta leik liðanna. Phoenix var í fluggírnum í gær eins og í öllu einvíginu og reyndist einfaldlega of stór biti fyrir Lakers til að kyngja. Phoenix vann einvígið 4-1 og mætir San Antonio í næstu umferð. Körfubolti 3. maí 2007 12:10
Fastir liðir hjá San Antonio - Denver úr leik San Antonio Spurs er komið í aðra umferð úrslitakeppninnar í NBA eftir öruggan 93-78 sigur á Denver Nuggets í fimmta leik liðanna í nótt. Michael Finley var hetja San Antonio í þetta skiptið og setti félagsmet með 8 þriggja stiga körfum úr 9 tilraunum. San Antonio vann einvígið 4-1 og mætir sigurvegaranum úr einvígi Phoenix og LA Lakers. Körfubolti 3. maí 2007 03:21
Pat Riley: Við fengum það sem við áttum skilið Pat Riley, þjálfari NBA meistara Miami Heat, segir að allt annar bragur verði á liðinu á næsta tímabili, en það steinlá 4-0 fyrir Chicago í fyrstu umferð úrslitakeppninnar á dögunum. Hann segir að liðið hafi verðskuldað að falla úr keppni en er ekki búinn að gera það upp við sig hvort hann muni þjálfa liðið næsta vetur. Körfubolti 2. maí 2007 22:01
Brandon Roy kjörinn nýliði ársins Bakvörðurinn Brandon Roy hjá Portland Trailblazers var í dag kjörinn nýliði ársins í NBA deildinni með gríðarlegum yfirburðum. 127 af 128 nefndarmönnum settu hann í fyrsta sæti í kjörinu, en Andrea Bargnani hjá Toronto varð annar í kjörinu og Rudy Gay hjá Memphis varð þriðji. Körfubolti 2. maí 2007 19:41