Bryant sökkti meisturunum í seinni hálfleik 22. maí 2008 10:34 Kobe Bryant og Pau Gasol fóru fyrir Lakers í nótt NordcPhotos/GettyImages
LA Lakers hefur tekið 1-0 forystu í einvíginu við meistara San Antonio í úrslitum Vesturdeildarinnar í NBA. Kobe Bryant skoraði 25 af 27 stigum sínum í síðari hálfleik og fór fyrir mikilli endurkomu Lakers, sem voru á tíma 20 stigum undir á heimavelli. Lakers hafði betur 89-85 og karfa Bryant þegar 24 sekúndur voru til leiksloka fóru langt með að tryggja sigurinn. San Antonio liðið hafði verið að leika mjög vel í fyrri hálfleiknum, en tapaði fjórða leikhlutanum í nótt 24-13 og sprakk í lokin. Tim Duncan skoraði 30 stig og hirti 18 fráköst fyrir San Antonio og Tony Parker skoraði 18 stig og gaf 10 stoðsendingar. Kobe Bryant skoraði 27 stig og gaf 9 stoðsendingar fyrir Lakers og Pau Gasol skoraði 19 stig. Tölfræði leiksins "Kobe var að þreyfa fyrir sér og láta félaga sína um þetta í fyrri hálfleiknum. Svo mætti hann í vinnuna í þeim síðari. Það er erfitt að kyngja þessu tapi af því við misnotuðum gott tækifæri til að vinna," sagði Gregg Popovich, þjálfari San Antonio. Kobe Bryant sagði endurkomu á borð við þessa á móti meisturunum sýna hvað býr í ungu Lakers-liðinu. "Ég veit að ég get alltaf tekið smá rispu og ég vissi að ég gæti komið okkur inn í þennan leik. Við vorum dálítið ryðgaðir í fyrri hálfleik, en betri í þeim síðari. Það er frábært fyrir svona ungt lið að koma svona til baka gegn meisturunum," sagði Kobe Bryant. Annar leikur liðanna fer einnig fram í Los Angeles og verður hann sýndur beint á Stöð 2 Sport annað kvöld. NBA Bloggið á Vísi
NBA Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fær laun greidd en fær ekki að dæma Fótbolti Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Fótbolti Náði loks sigri með Ferrari Formúla 1 Fleiri fréttir Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Sjá meira