„Ég vil að gestirnir gleymi myndavélunum og gleymi sér bara í stuði“ „Ég er mjög spenntur að byrja aftur og halda áfram að þróa þáttinn, viðbrögðin við fyrstu seríunni voru mjög góð og eiginlega betri en við bjuggumst við,“ segir Ingó Veðurguð í samtali við Vísi. Lífið 11. janúar 2021 20:37
Auður hágrét eftir lofræðu Bubba Morthens „Mér finnst þetta besti tónlistarmaðurinn sem hefur komið fram á Íslandi í áratugi. Hann heitir Auður og og hann er hérna með okkur í kvöld,“ sagði Bubbi Morthens á Þorláksmessutónleikum sínum fyrir rúmlega ári. Lífið 11. janúar 2021 13:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 verða framvegis fyrir áskrifendur Stöð 2 verður hrein áskriftarstöð frá og með 18. janúar. Frá og með þeim tíma verður kvöldfréttatími Stöðvar 2 aðeins aðgengilegur áskrifendum. Sama gildir um Sportpakkann, Ísland í dag og annað fréttatengt efni sem hefur verið í opinni dagskrá. Viðskipti innlent 11. janúar 2021 11:25
„Hann vill helst að ég eigi fjögur börn og öll með eyrnabólgu“ Árið 2021 mun fara af stað með hvelli hjá fjölmiðlamanninum Auðunni Blöndal en hann fór af stað með þættina Tónlistamennirnir okkar á Stöð 2 í gær, verður tveggja barna faðir síðar á árinu og önnur þáttaröðin af Eurogarðinum fer í loftið. Lífið 11. janúar 2021 10:30
Leikarinn John Reilly er látinn Bandaríski leikarinn John Reilly, sem þekktur er fyrir hlutverk sín í General Hospital, Dallas og Beverly Hills 90210, er látinn. Lífið 11. janúar 2021 09:41
Söngvarar lýsa yfir vantrausti og bera óperustjóra þungum sökum Félagsfundur Klassís, fagfélags klassískt menntaðra söngvara á Íslandi, hefur lýst yfir vantrausti á stjórn og óperustjóra Íslensku óperunnar, Steinunni Birnu Ragnarsdóttur, „vegna stjórnunarhátta stofnunarinnar á undanförnum árum.“ Innlent 11. janúar 2021 09:19
Ástríðuveiðimaður í vegan tilraun „Ég fer dálítið í gæs og svo fer maður náttúrulega á rjúpu, til að ná í jólamatinn. Það eru skemmtilegustu veiðarnar. Maður labbar heilu og hálfu dagana og fær ekki neitt. En það er bara fínt,“ segir Sigurður Leifsson, ástríðuveiðimaður og einn af eigendum World Class. Lífið 11. janúar 2021 09:00
Staðfesta að Sex and the City snúi aftur Til stendur að framleiða nýja þáttaröð af Sex and the City. Í nýju þáttaröðinni verða tíu hálftíma langir þættir sem framleiddir eru fyrir streymisveituna HBO Max. Bíó og sjónvarp 11. janúar 2021 07:23
Hugrakkir íslenskir kúabændur taka þátt í vegan tilraun „Frá því ég var lítil þá hugsaði ég alltaf að prufa sem flest. Áður en ég færi að velja mér starf og annað til að geta dæmt, eða prufað sem flestar hliðar. Þannig að það var það sem ýtti manni út í þetta,“ segir Hrafnhildur Baldursdóttir kúabóndi á Litla-Ármóti á Suðurlandi. Lífið 10. janúar 2021 13:46
Nokkurs konar uppgjör við unglingsárin Helena og Rósa sendu frá sér sitt fyrsta lag á dögunum undir nafninu Heró. Lagið kallast Horfðu á mig en þær tóku upp nokkur lög saman eftir að þær þurftu að koma heim til Íslands vegna heimsfaraldursins. Tónlist 10. janúar 2021 10:00
RAX Augnablik: „Maður þurfti að passa sig á þessum gaurum sem voru þarna“ Á leiðtogafundinum í Höfða árið 1986 var Ragnar Axelsson ljósmyndari í hópi fjölmiðlafólksins á staðnum. Hann tók þar eftirminnilegar myndir af Mikhail Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna og Ronald Reagan, forsela Bandarikjanna. Menning 10. janúar 2021 07:00
Stóri draumurinn að eignast barn fljótlega „Nýja árið leggst alveg súper vel í mig og ég hef ekki verið jafn spenntur fyrir neinu ári eins og ég er spenntur fyrir þessu. Það er svo mikið gott að gerast að ég get ekki beðið,“ segir raunveruleika- og samfélagsmiðlastjarnan Patrekur Jamie í samtali við Makamál. Makamál 9. janúar 2021 13:00
Fékk fjórar fjölskyldur til að vera vegan í mánuð: „Mann langar ekki að borða þetta“ Lóa Pind fékk íslenskar fjölskyldur til að gerast grænkerar eða vegan í einn mánuð og fylgdist svo með því hvernig þeim gekk með það verkefni. Markmiðið var að kanna hvort þetta myndi minnka kolefnisspor þeirra. Lífið 9. janúar 2021 09:00
Dularfulli skiltalistamaðurinn er Sigurjón Sighvatsson Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi stígur nú fram sem sjálfstæður listamaður eftir áratugi „bak við tjöldin“ sem framleiðandi. Hann segist vera með eilítinn sviðsskrekk. Menning 9. janúar 2021 08:00
Heillandi að geta horfið inn í heim eða aðstæður Drífa Þöll Arnardóttir hefur verið bókaormur allt sitt líf og starfar nú umkringd bókum alla daga sem bókavörður á Bókasafni Vestmannaeyja. Á síðasta ári setti hún sér það markmið að lesa að minnsta kosti 100 bækur á árinu og tókst það. Lífið 9. janúar 2021 07:00
Íslendingur slær í gegn í norska Voice og dómarinn grét Hinn 21 árs Natan Dagur Benediktsson sló rækilega í gegn í áheyrnarprufu í norsku útgáfunni af The Voice í vikunni. Lífið 8. janúar 2021 15:30
Föstudagsplaylisti Tatjönu Dísar Tón- og sviðslistakonan Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko setti saman lagalista vikunnar. Tónlist 8. janúar 2021 14:33
Þóra beið lægri hlut í launadeilu við Óperuna Íslenska óperan hefur verið sýknuð í máli sem söngkonan Þóra Einarsdóttir höfðaði á hendur Óperunni vegna meintra vangoldinna greiðslna. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Málskostnaður fellur niður. Innlent 8. janúar 2021 14:02
Lífvörður forsetans fer yfir hvað Hollywood gerir rangt Jonathan Wackrow starfaði í um fimmtán ár hjá bandarísku leyniþjónustunni og í fjögur og hálft ár sem lífvörður forseta Bandaríkjanna og þá aðallega fyrir Barack Obama. Lífið 8. janúar 2021 12:30
Talar opinskátt um geðhvörf enda engin skömm Högni Egilsson tónlistarmaður og tónskáld segist ekki hafa passað nægilega vel upp á sjálfan sig um tíma og varð að víkja tímabundið frá tónlistinni vegna veikinda. Menning 8. janúar 2021 10:30
Leikari úr Bráðavaktinni látinn Bandaríski leikarinn Deezer D, sem er best þekktur fyrir hlutverk sitt sem hjúkrunarfræðingurinn Malik McGrath í Bráðavaktinni, eða ER, er látinn. Hann varð 55 ára. Lífið 8. janúar 2021 08:37
Lögregluskóla-leikkonan Marion Ramsey er látin Bandaríska leikkonan og listakonan Marion Ramsey, sem þekktust fyrir hlutverk sitt í Lögregluskólamyndunum (e. Police Academy), er látin, 73 ára að aldri. Hún lést á heimili sínu í gær að því er fram kemur í frétt Deadline. Lífið 8. janúar 2021 07:54
Var að ljúka við leyniverkefni fyrir Netflix á Íslandi Leikstjórinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Baltasar Kormákur var að ljúka við verkefni fyrir Netflix en vegna trúnaðar má hann ekki greina frá því hvaða verkefni um ræðir en þetta kemur fram í Viðskiptablaði Morgunblaðsins sem kom út í gær. Lífið 7. janúar 2021 15:30
Þessi fá listamannalaun árið 2021 Starfslaunum til listamanna fyrir árið 2021 hefur verið úthlutað og hafa tilkynningar til umsækjenda um listamannalaun verið að berast þeim í morgun og nú rétt í þessu var send út tilkynning um hvernig þetta skiptist milli listamannanna. Menning 7. janúar 2021 15:13
Aldís ráðin verkefnastjóri sýninga Aldís Snorradóttir hefur verið ráðin í stöðu verkefnastjóra sýninga í deild sýninga og miðlunar í Listasafni Reykjavíkur. Viðskipti innlent 7. janúar 2021 14:32
Sjokk, vonleysi og nánast ómögulegt að halda úti skemmtiþætti á þessum tímum Jimmy Kimmel, Seth Meyers, James Corden og Jimmy Fallon eru með þeim vinsælustu spjallþáttastjórnendum heims og þá sérstaklega í Bandaríkjunum. Lífið 7. janúar 2021 12:30
Tilkynning Helga Tómassonar vekur athygli í listaheiminum Einn kunnasti listamaður Íslendinga, Helgi Tómasson, tilkynnti í gær að hann hygðist láta af störfum á næsta ári sem listrænn stjórnandi og aðaldanshöfundur San Francisco-ballettsins. Helgi, sem orðinn er 78 ára gamall, tók við stjórn ballettflokksins fyrir 35 árum eftir farsælan feril sem ballettdansari þar sem hann skapaði sér nafn sem einn besti karldansari heims. Menning 7. janúar 2021 12:10
Gerir stólpagrín að norrænum glæpaþáttum og Íslendingar fá engan afslátt „Hver einasti skandinavíski glæpaþáttur,“ skrifar breski grínistinn Alasdair Beckett-King við myndband sem hann birtir á Twitter. Lífið 7. janúar 2021 07:01
85 ára með beinar útsendingar frá Lírukassanum sínum Jóhann Gunnarsson, áttatíu og fimm ára íbúi í Hveragerði lætur ekki deigan síga þó hann geti ekki spilað á lírukassann sinn opinberlega vegna heimsfaraldursins því í staðinn hefur hann boðið upp á beinar útsendingar frá tónleikum sínum í gegnum Facebook. Innlent 6. janúar 2021 20:03
Drama, gleði og vatnsglas í andlitið í fyrstu stiklunni úr Æði 2 Raunveruleikastjarna Íslands, Patrekur Jaime, snýr aftur á skjáinn þegar Æði 2 hefur göngu sína síðar í mánuðinum. Lífið 6. janúar 2021 16:30