Saga af átökum fjölskyldu úr íslenskum samtíma Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 12. september 2022 09:40 Tinna Hrafnsdóttir er spennt fyrir næsta verkefni. Vísir/Vilhelm Tökur eru að hefjast á sjónvarpsþáttaseríunni Heima er best. Heima er best er karakterdrifin sex þátta sería frá Tinnu Hrafnsdóttur leikkonu og leikstjóra. Þættirnir fara í sýningu á næsta ári.
Handritið er skrifað af Tyrfingi Tyrfingssyni, Ottó Geir Borg og Tinnu Hrafnsdóttur sem jafnframt á hugmyndina og leikstýrir þáttunum. Á þróunarstigi var Heima er best valið inn á samframleiðslumarkaði kvikmyndahátíðanna PÖFF Black Night Film Festival í Tallinn og á Gautaborgarhátíðinni. Heima er best er saga af átökum fjölskyldu úr íslenskum samtíma. Tinna sagði frá áhuga sínum á viðfangsefninu í Einkalífinu hér á Vísi fyrr á þessu ári. „Fjölskyldusögur höfða til mín, sögur af manneskjum, mannlegri breytni og hversu flókin í eðli okkar við getum verið. Þessi flóknu fjölskyldutengsl sem eru grunnurinn af öllu í okkar lífi. Hvaðan þú kemur er það sem mótar þig sem einstakling. Það er í raun og veru það sem þú verður. Hvernig þú vinnur með það er í raun það sem gerir þig að því sem þú endar sem.“ Handritið er skrifað af Tyrfingi Tyrfingssyni, Ottó Geir Borg og Tinnu HrafnsdótturAðsent Líklegri til að sundra en sameina Hún sagði í viðtalinu að sterkir karakterar séu það sem leiði söguna í sjónvarpsþáttunum Heima er best. Aðalhlutverkið er í höndum Hönnu Maríu Karlsdóttur en meðal annara leikara eru Pálmi Gestsson, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Vignir Rafn Valþórsson, Tinna Hrafnsdóttir, Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Oddur Júlíusson, Sveinn Geirsson og fleiri. „Þegar þrjú miðaldra systkini standa frammi fyrir því að erfa hvert sinn hlut í eignum foreldra sinna, vinsæla hvalaskoðunarfyrirtækinu og hlýlega sumarhúsinu, sem foreldrar þeirra byggðu frá grunni, skapast áður óþekktar aðstæður sem þarf að ná sátt um,“ segir um söguþráð þáttanna Heima er best. „En þegar taka á sameiginlegar ákvarðanir um eignir sem systkinin þrjú telja sig öll eiga tilkall til á afar ólíkum forsendum, fara vandamálin fljótt að segja til sín og hlutir að koma upp á yfirborðið sem eru líklegri til að sundra í stað þess að sameina.“ Framleiðsla er í höndum Kiddu Rokk, Guðnýjar Guðjónsdóttur og Tinnu undir merkjum Polarama og Freyju Filmwork. Meðframleiðandi er belgíska fyrirtækið Lunanime en um alþjóðlega dreifingu sjá dreifingarfyrirtækin Red Arrow og Lumiere. Þættirnir verða sýndir hjá Sjónvarpi Símans en sjónvarpsstöðin Yle hefur þegar tryggt sér sýningarréttinn í Finnlandi. Viðtalið við Tinnu má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.
Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Tengdar fréttir Hönnu Maríu Karlsdóttur„Að fólk kunni að meta það sem maður leggur hjarta sitt í eru hin sönnu laun“ Kvikmyndin Skjálfti hefur verið seld til fjögurra landa og mun þar að auki taka þátt í kynningarmarkaðinum á Cannes í ár samkvæmt Variety. Myndin er skrifuð og leikstýrt af Tinnu Hrafnsdóttur. 13. maí 2022 15:32 „Fjölskylduleyndarmál sem enginn vildi tala um“ Kvikmyndin Skjálfti er byggð á metsölubók Auðar Jónsdóttur Stóra Skjálfta. Leikstjóri og handritshöfundur er Tinna Hrafnsdóttir og er óhætt að segja að valið sé vel í hlutverk en myndin skartar Anítu Briem, Eddu Björgvins, Jóhanni Sigurðarsyni, Bergi Ebba og fleiri frábærum leikurum. 20. apríl 2022 10:31 Dynjandi lófaklapp á fyrstu sýningu Skjálfta Íslenska kvikmyndin Skjálfti eftir Tinnu Hrafnsdóttur, sem byggð er á metsölubók Auðar Jónsdóttur Stóra skjálfta, var frumsýnd í kvikmyndahúsum á Íslandi í gær. 1. apríl 2022 14:32 Mest lesið Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Bíó og sjónvarp Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Krakkatían: Jólasveinar, stjörnustríð og þjóðsögur Lífið Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Lífið Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Lífið Fréttatía vikunnar: Lýðheilsa, ísbúð og álag Lífið Innlit á æfingu Jólagesta: „Allt þarf að taka endi“ Tónlist Fleiri fréttir Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Frumsýning á Vísi: Fyrsta stiklan úr hryllingstrylli af Vestfjörðum Paul Mescal leiki nafna sinn McCartney „Þannig það yrði bara til Leynilögga 1 og 3“ Emilia Pérez og The Bear með flestar tilnefningar til Golden Globe „Hversu góð tök hefur þú á Rúrik?“ Barry Keoghan leikur Bítil Með stórstjörnum í væntanlegri kvikmynd Marvel Leikstjóri Naked Gun og Airplane! látinn „Grét ekkert eðlilega mikið á frumsýningunni“ Frumsýning á Vísi: Steindi og Saga með nýja sketsaseríu um jólin Sjáðu Nínu Dögg sem Vigdísi í fyrstu stiklunni Stjörnufans þegar hundruð kíktu á forsýningu Iceguys 2 Sýn, Síminn og RÚV standa að baki nýjum sjónvarpsverðlaunum Halda til Spánar að smakka messuvín fyrir þjóðkirkjuna Hundrað ára viðkvæmni Íslendinga: „Leið daglega yfir 40 til 50 manns“ Stórstjörnur flykkjast í verkefni Baltasars Ljósbrot verðlaunuð af Evrópsku kvikmyndaakademíunni Stórstjarna úr tónlistarheiminum í nýrri seríu White Lotus Brynjar Morthens leikur Bubba Morthens Frumsýning á Vísi: IceGuys dæmdir til samfélagsþjónustu í seríu tvö Sjá meira
Hönnu Maríu Karlsdóttur„Að fólk kunni að meta það sem maður leggur hjarta sitt í eru hin sönnu laun“ Kvikmyndin Skjálfti hefur verið seld til fjögurra landa og mun þar að auki taka þátt í kynningarmarkaðinum á Cannes í ár samkvæmt Variety. Myndin er skrifuð og leikstýrt af Tinnu Hrafnsdóttur. 13. maí 2022 15:32
„Fjölskylduleyndarmál sem enginn vildi tala um“ Kvikmyndin Skjálfti er byggð á metsölubók Auðar Jónsdóttur Stóra Skjálfta. Leikstjóri og handritshöfundur er Tinna Hrafnsdóttir og er óhætt að segja að valið sé vel í hlutverk en myndin skartar Anítu Briem, Eddu Björgvins, Jóhanni Sigurðarsyni, Bergi Ebba og fleiri frábærum leikurum. 20. apríl 2022 10:31
Dynjandi lófaklapp á fyrstu sýningu Skjálfta Íslenska kvikmyndin Skjálfti eftir Tinnu Hrafnsdóttur, sem byggð er á metsölubók Auðar Jónsdóttur Stóra skjálfta, var frumsýnd í kvikmyndahúsum á Íslandi í gær. 1. apríl 2022 14:32