UEFA kærir Celtic Knattspyrnusamband Evrópu hefur kært Glasgow Celtic fyrir atvikið undir leik liðsins gegn AC Milan í vikunni. Fótbolti 6. október 2007 11:48
Ég missti mig aðeins Robert McHendry segir að hann hafi "misst sig aðeins" þegar hann ákvað að hlaupa inn á völlinn í viðureign Celtic og Milan í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið. Hann sló til Dida markvarðar í leiðinni og gæti þetta uppátæki átt eftir að hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér. Fótbolti 5. október 2007 20:08
Ítalir brjálaðir út í Dida Knattspyrnuáhugamenn á Ítalíu eru alls ekki ánægðir með leikræna tilburði brasilíska markvarðarins Dida. Fótbolti 5. október 2007 13:45
Stuðningsmaður Celtic í lífstíðarbann 27 ára gamall stuðningsmaður Glasgow Celtic var í dag dæmdur í lífstíðarbann frá leikjum liðsins eftir að hann réðist inn á völlinn í leik liðsins gegn AC Milan í Meistaradeildinni í gær og sló til markvarðar ítalska liðsins. Fótbolti 4. október 2007 18:21
Celtic bíður milli vonar og ótta Forráðamenn Glasgow Celtic bíða nú milli vonar og ótta um hvort Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, refsi félaginu fyrir árásina á Dida í gær. Fótbolti 4. október 2007 09:29
Grant: Við lékum til sigurs Avram Grant, stjóri Chelsea, segist vonast til þess að sigur liðsins á Valencia í kvöld verði til að þagga aðeins niður í gagnrýnisröddunum á Englandi. Hann segir hugarfar leikmanna lykilinn að sigrinum í kvöld. Fótbolti 3. október 2007 23:20
Benitez: Við vorum lélegir Rafa Benitez, stjóri Liverpool, var spurður að því hvort hræringar hans með leikmannahópinn hefðu haft eitthvað með það að gera að liðið tapaði 1-0 heima fyrir Marseille í Meistaradeildinni í kvöld. Fótbolti 3. október 2007 23:13
Ljótt atvik varpar skugga á sigurhátíð Celtic Glæsilegur sigur Glasgow Celtic á Evrópumeisturum AC Milan í kvöld gæti átt eftir að reynast félaginu dýr, því ljótt atvik undir lokin setti svip sinn á leikinn. Fótbolti 3. október 2007 21:19
Liverpool lá heima Það var nokkur dramatík í leikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Liverpool tapaði 1-0 fyrir Marseille á heimavelli, Chelsea vann mjög sterkan útisigur á Valencia og Celtic lagði Evrópumeistara AC Milan á heimavelli með marki á síðustu mínútunni. Fótbolti 3. október 2007 20:37
Jafnt í Valencia í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í viðureignum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Staðan í leik Valencia og Chelsea er jöfn 1-1 þar sem David Villa kom heimamönnum yfir eftir 9 mínútur en Chelsea jafnaði eftir 21 mínútu með sjálfsmarki frá Moretti. Fótbolti 3. október 2007 19:35
Cisse vill þagga niður í Anfield Framherjinn Djibril Cisse hjá Marseille segist enn elska stuðningsmenn Liverpool en ætlar sér að þagga niður í þeim þegar hann mætir þangað með franska liðinu í kvöld. Fótbolti 3. október 2007 18:10
Terry reyndi að meiða mig Fernando Morientes, framherji Valencia, segir að John Terry fyrirliði Chelsea hafi viljandi reynt að meiða sig þegar liðin mættust í Meistaradeildinni í fyrra. Þá var Morientes meiddur á öxl, en í kvöld er það Terry sem spilar meiddur. Fótbolti 3. október 2007 17:59
Terry spilar með grímu í kvöld John Terry verður í byrjunarliði Chelsea gegn Valencia í Meistaradeildinni í kvöld. Enski boltinn 3. október 2007 16:25
Totti varar Ronaldo við Francesco Totti hefur sent Cristiano Ronaldo tóninn eftir leik Manchester United og Roma í Meistaradeildinni í gær. Fótbolti 3. október 2007 15:36
Er skoskur fótbolti betri en franskur? Skotar halda nú vart vatni yfir gengi Glasgow Rangers í Meistaradeildinni sem og skoska landsliðsins í undankeppni EM 2008. Fótbolti 3. október 2007 15:22
Zlatan gerði gæfumuninn Inter vann mikilvægan 2-0 sigur á PSV Eindhoven í Meistaradeildinni í kvöld. Zlatan Ibrahimovic stal senunni en hann skoraði bæði mörk Inter. Það fyrra úr vítaspyrnu sem hann sótti sjálfur. Fótbolti 2. október 2007 22:06
Smith: Enginn bjóst við þessu Walter Smith, knattspyrnustjóri Glasgow Rangers, viðurkennir að vera furðu lostinn eftir að lið hans vann frönsku meistarana í Lyon 3-0. Skoska liðið hefur nú unnið báða leiki sína í Meistaradeildinni. Fótbolti 2. október 2007 21:33
Sir Alex: Heppnin var með okkur Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, viðurkennir að lið hans hafi verið nokkuð heppið að fá þrjú stig úr leiknum gegn Roma í kvöld. Fótbolti 2. október 2007 21:17
Wenger: Sýndum skynsemi Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að sérstakur andi sé yfir liðinu um þessar mundir og vonast til að hann endist. Liðið vann Steaua Búkarest í kvöld 1-0 í Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 2. október 2007 21:05
Rooney tryggði United sigur Manchester United vann 1-0 sigur á Roma í Meistaradeild Evrópu í kvöld og skaust á toppinn í sínum riðli. Wayne Rooney skoraði eina mark leiksins með skoti sem fór í stöngina og inn á 71. mínútu. Fótbolti 2. október 2007 20:33
Markalaust í hálfleik á Old Trafford Nú er hálfleikur í leikjum kvöldsins í Meistaradeildinni. Staðan á Old Trafford er markalaus í viðureign Manchester United þó leikurinn hafi verið nokkuð fjörlegur. Fótbolti 2. október 2007 19:30
Jafntefli í Moskvu CSKA Moskva og Fenerbache gerðu 2-2 jafntefli í G-riðli Meistaradeildar Evrópu í dag. Gestirnir jöfnuðu leikinn fjórum mínútum fyrir leikslok. Inter og PSV Eindhoven mætast í hinum leik riðilsins sem fer að hefjast. Fótbolti 2. október 2007 18:30
Leikir kvöldsins í Meistaradeildinni Í kvöld hefst 2. umferð í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Reyndar er einn leikur hafinn en það er viðureign CSKA Moskva og Fenerbache í G-riðli. Aðrir leikir kvöldsins hefjast allir klukkan 18:45. Fótbolti 2. október 2007 17:00
Ronaldo: Roma grátbað um miskun Cristiano Ronaldo segir að leikmaður Roma hafa grátbeðið sig um miskunn í 7-1 sigri United á Roma í Meistaradeildinni í vor. Fótbolti 2. október 2007 09:48
Morientes spáir Chelsea vandræðum Valencia vill hefna fyrir tapið fyrir Chelsea í Meistaradeildinni í vor en liðin mætast í B-riðli annað kvöld. Fótbolti 2. október 2007 09:12
Totti vill vinna United 7-0 Francesco Totti, fyrirliði Roma, vill koma fram hefndum á morgun þegar liðið mætir Manchester United. Flestum er enn í fersku minni 7-1 sigur United á Roma á síðustu leiktíð. Fótbolti 1. október 2007 23:15
Eiður og Ronaldinho til Stuttgart Eiður Smári Guðjohnsen og Ronaldinho eru í leikmannahópi Barcelona sem mætir Stuttgart annað kvöld í Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 1. október 2007 15:07
Við erum klárlega með betra lið en Chelsea Spænski landsliðsmaðurinn David Villa hjá Valencia fer ekki leynt með skoðanir sínar á Avram Grant og liði hans Chelsea fyrir viðureign liðanna í Meistaradeildinni á miðvikudaginn. Fótbolti 30. september 2007 13:43
Uefa ætlar ekki að banna Grant Talsmaður Knattspyrnusambands Evrópu segir að ekki standi til að banna Avram Grant að stýra liði Chelsea í Meistaradeildinni. Grant er ekki með opinbert atvinnuleyfi til að þjálfa og er á undanþágu, en Uefa segir málið ekki í sínum höndum. Fótbolti 27. september 2007 12:53
Roma leitar hefnda Önnur umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu fer fram í næstu viku þar sem nokkrir stórleikir verða á dagskrá. Einn af athygliverðari leikjunum verður án efa slagur Manchester United og Roma, en þar eiga Rómverjar sannarlega harma að hefna eftir útreiðina á síðustu leiktíð. Fótbolti 27. september 2007 11:32