Fótbolti

„Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Vincent Kompany með fyrrum knattspyrnustjóra sínum Pep Guardiola en þeir unnu titla saman hjá Manchester City.
Vincent Kompany með fyrrum knattspyrnustjóra sínum Pep Guardiola en þeir unnu titla saman hjá Manchester City. Getty/Victoria Haydn

Vincent Kompany, þjálfari þýska fótboltafélagsins Bayern München, er í stöðugu ástandi en verður áfram á sjúkrahúsi næstu daga. Enn er unnið að því að finna orsök þess að hann hneig niður á föstudag.

Þetta upplýsti Max Eberl, íþróttastjóri félagsins, á blaðamannafundi á laugardag. Hann útskýrði að Kompany myndi ekki snúa aftur til starfa fyrr en hann væri orðinn fullfrískur á ný.

„Við erum ekki að tala um daga, heldur vikur. Það gera sér allir grein fyrir því,“ sagði Eberl.

Rannsóknirnar hafa þegar gefið einhver svör en það á eftir að skoða Belgann betur.

„Vinnie fær allan þann tíma sem hann þarf. Við ætlum ekki að fara að setja neinn tímaramma,“ sagði Eberl.

„Fyrst þurfum við að komast að því hvað þetta er og síðan ræðum við í rólegheitum hversu langan tíma batinn á að taka,“ sagði Eberl.

„Staðreyndin er sú að við verndum þjálfarann okkar hvar sem við getum. „Ef þjálfari segist vera tilbúinn til að gera eitthvað, þá ætlum við ekki að segja ‚við leyfum það ekki‘ ef við vitum ekki hvað er í gangi,“ sagði Eberl.

„Það er líka á ábyrgð hvers og eins að segja: Ég get ekki haldið áfram núna. Vinnie er mikill vinnuþjarkur. Ef maður hlustar ekki á fínlegu merkin sem líkaminn sendir, þá mun hann á endanum öskra af sársauka,“ sagði Eberl.

„Vinnie fær þann tíma [núna] og við munum halda áfram að reyna, enn frekar en áður, að vernda hann fyrir sjálfum sér,“ sagði Eberl.

Aðstoðarþjálfarinn Aaron Danks tekur við liðinu í leikjum þangað til annað verður ákveðið.

Kompany hefur síðustu vikuna glímt við veirusýkingu og verið verulega slappur. Ekki hefur verið gefið upp hvort veikindin á föstudag hafi verið bein afleiðing af því. Eberl segir að læknar vinni enn að því að finna orsök þess að hann hneig niður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×