Leituðu ekki nægilega víða eftir umsögnum um sálfræðinginn sem braut á barni Yfirstjórn velferðarsviðs Reykjavíkurborgar segir skerpt hafi verið á því í verklagsreglum að leitað sé víða eftir umsögnum við ráðningar í störf þar sem unnið er með börnum og fötluðu fólki. Innlent 28. júní 2019 14:00
Notaði Google Translate til að segjast ætla að sprengja spítalann Lögregla var kölluð út um klukkan fimm síðdegis í gær. Innlent 28. júní 2019 11:12
Maðurinn sem leitað var að er fundinn Renars Mezgalis sem lýst var eftir í gær er fundinn heill á húfi. Innlent 28. júní 2019 08:59
Lögreglan með allar klær úti í vændis- og mansalsmálum Í nýrri afbrotaskýrslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kemur fram kynferðisbrotamálum hafi fjölgað töluvert í maímánuði. Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar segir allar klær vera úti í vændis- og mansalsmálum sem útskýri fjölgunina. Innlent 27. júní 2019 19:45
Lögreglan lýsir eftir Renars Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir hinum 19 ára gamla Renars Mezgalis. Innlent 27. júní 2019 17:19
Þrír áfram í gæsluvarðhaldi en einum sleppt Þrír menn hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. júlí á grundvelli almannahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á skipulagðri brotastarfsemi. Innlent 26. júní 2019 11:33
Kastaðist sjö metra af mótorhjólinu Rúmlega fertugur karlmaður var fluttur á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi um helgina eftir mótorhjólaslys á Suðurnesjum. Innlent 26. júní 2019 10:01
Veittist að lögreglu og öryggisverði á bráðamóttökunni Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Innlent 26. júní 2019 06:41
Stálu öllu nema bröndurunum af kanadískum grínista sem heimsótti Ísland um helgina Bíræfnir þjófar brutust inn í Airbnb-íbúð sem kanadíski grínistinn Ryan Dillon hafði á leigu í Reykjavík um helgina ásamt kærustu og tveimur vinum. Innlent 25. júní 2019 15:00
Þrír handteknir vegna heimilisofbeldis Alls voru 63 mál bókuð hjá lögreglu frá klukkan fimm síðdegis í gær og þangað til fimm í morgun. Innlent 25. júní 2019 06:27
Handtekinn eftir átök í heimahúsi Alls voru 83 mál bókuð í dagbók lögreglu frá því klukkan fimm síðdegis í gær til klukkan fimm í morgun. Innlent 24. júní 2019 06:51
Ökumaður fluttur á sjúkrahús Ökumaður fólksbifreiðar var fluttur á slysadeild eftir að hafa lent út í skurði við útafakstur. Innlent 23. júní 2019 21:37
Helmingi færri fíkniefnamál og engin hávaðakvörtun Helmingi færri fíkniefnamál hafa komið upp á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í ár en í fyrra og lögreglu hefur ekki borist nein hávaðakvörtun. Lögregla telur hátíðina hafa farið vel fram enda voru færri á svæðinu og mikil gæsla. Tvö fíkniefnamál eru til rannsóknar en í öðrum tilvikum var um neysluskammta að ræða. Innlent 23. júní 2019 19:15
10 þúsund manns á Secret Solstice í gær Talið er að um 10.000 manns hafi verið á Secret Solstice í gærkvöldi Innlent 23. júní 2019 07:11
Lögreglan hafi gengið of langt í Laugardalnum Samtök um borgaraleg réttindi gagnrýna framgöngu lögreglu á Secret Solstice í gær. Innlent 22. júní 2019 14:02
Reyndi að tæla stúlku upp í bíl með því að segja að móðir hennar væri slösuð Lögreglan á Suðurnesjum leitar nú karlmanns sem reyndi að tæla unga stúlku upp í bifreið sína í Reykjanesbæ. Stúlkan brást hárrétt við er hún hljóp í burtu og lét vita af atvikinu. Innlent 22. júní 2019 13:29
Dansandi ökumaður brást illa við athugasemdum lögreglu Hvergi kom fram hvaða tónar reyndust svo ómótstæðilegir. Innlent 22. júní 2019 10:13
Slagsmál, stympingar og fíkniefni Nokkur erill hefur verið hjá lögreglu í kvöld og nótt vegna skemmtanahalds en flest mál hafa þó verið leyst nokkuð farsællega og einungis sex gista í fangaklefa þegar þetta er ritað. Innlent 22. júní 2019 07:07
Slasaður í hlíðum Búrfells eftir nauðlendingu svifvængs Um klukkan 12:30 barst Lögreglunni á Suðurlandi hjálparbeiðni gegnum Neyðarlínu vegna manns sem hafði nauðlent svifvæng í norðanverðu Búrfelli. Innlent 20. júní 2019 13:33
Þremenningunum sleppt og rannsókn miðar vel Þremur mönnum, sem handteknir voru í aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gegn skipulagðri brotastarfsemi í síðustu viku, hefur verið sleppt úr haldi. Innlent 19. júní 2019 13:52
Rússinn með falda myndavél þegar hann greiddi sektina á lögreglustöðinni Rússneska Instagram-stjarnan Alexander Tikhomirov hefur birt um hálftíma langt myndband frá Íslandsreisu sinni fyrr í mánuðinum en í ferðinni gerðist hann sekur um utanvegaakstur við Bjarnarflag í Mývatnssveit. Innlent 19. júní 2019 13:45
Helgafellskrotið tilkynnt til lögreglu Umhverfisstofnun lýsir krotinu inn í mjúkt móbergið í Helgafelli við Hafnarfjörð sem alvarlegum náttúruspjöllum. Innlent 19. júní 2019 10:25
Fundu kannabis og kókaín við húsleit á Suðurnesjum Tveir voru handteknir eftir að lögregla á Suðurnesjum fann talsvert magn fíkniefna við húsleit í umdæminu í fyrrakvöld. Innlent 19. júní 2019 09:47
„Það eitt að draga fána mannréttinda að húni heimilar ekki þeim sem það gera að brjóta gegn mannréttindum annarra“ Oddný Aradóttir og Hildur Lilliendahl Viggósdóttir, sem í dag voru dæmdar til að greiða miskabætur vegna ummæla sem þær létu falla um tvo menn vegna Hlíðamálsins-svokallaða, njóta að mati Héraðsdóms Reykjavíkur, engrar sérstöðu sem veitt geti þeim aukið rými til tjáningar, þrátt fyrir að þær hafi talið sig vera að tala sem fulltrúi mannréttinda. Innlent 18. júní 2019 20:00
Uppnám á Keflavíkurflugvelli vegna falskra Fabergé-eggja Mikill viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli nú síðdegis vegna grunsamlegs hlutar sem fannst í farangri. Innlent 18. júní 2019 17:17
Þrír handteknir vegna gruns um ölvunarakstur Afskipti voru höfð af 120 ökumönnum. Innlent 16. júní 2019 09:18
Lögregla lýsir eftir konu á fimmtugsaldri Síðast er vitað um ferðir hennar í Reykjavík síðastliðinn miðvikudag. Innlent 16. júní 2019 00:39
Þrír til viðbótar í gæsluvarðhaldi Þrír eru í haldi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á skipulagðri brotastarfsemi, en þremenningarnir, sem voru handteknir fyrr í vikunni, voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 19. júní á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Innlent 14. júní 2019 11:26
Háværir ökufantar gera íbúum Akureyrar lífið leitt Þorvaldur Bjarni er búinn að fá nóg af hávaða tengdum Bíladögum. Innlent 14. júní 2019 10:43