Rannsóknir á heimskautaísnum í hættu Útlit er fyrir að gervihnattamælingar á þykkt íssins og norður- og suðurheimskautinu leggist af um nokkra ára skeið á meðan nýrrar kynslóðar gervitungla er beðið. Erlent 30. nóvember 2020 15:27
Vilja setja umhverfismorð á sama stall og þjóðarmorð Hópur alþjóðalögfræðinga berst nú fyrir því að sérstök lög um umhverfismorð verði tekin upp á alþjóðavísu til þess að koma í veg fyrir frekari spjöll á vistkerfum heimsins. Erlent 30. nóvember 2020 11:34
Loftslagsváin er neyðarástand Í síðustu viku tók ég þátt í umræðum á viðburðinum „Choosing Green“, stafrænum leiðtogafundi Norðurlandaráðs í aðdraganda loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP26. Þar var helsta áskorun samtímans, loftslagsváin, rædd og ýmsum spurningum velt upp í tengslum við hana en einnig kom fram skýrt ákall um aðgerðir. Skoðun 26. nóvember 2020 07:16
Hafís við Síberíu mánuði á eftir áætlun eftir mikla sumarhita Aldrei áður hefur Norður-Íshafið við strendur Síberíu lagt eins seint og í haust frá því að gervihnattamælingar hófust fyrir meira en fjörutíu árum. Íslenskur veðurfræðingur rekur ísleysið til mikilla sumarhita og bráðnunar íss við Síberíu í sumar. Innlent 25. nóvember 2020 09:00
Þetta gæti Biden gert í loftslagsmálum án þingsins Líkur eru á því að hendur Joe Biden, verðandi forseta Bandaríkjanna, verði að miklu leyti bundnar hvað varðar stórtækar aðgerðir gegn loftslagsbreytingum af völdum manna á meðan repúblikanar ráða efri deild Bandaríkjaþings. Hann gæti þó beislað framkvæmdavaldið til að bregðast við vánni. Erlent 24. nóvember 2020 11:53
Er þétting byggðar loftslagsmál? Samfélag okkar manna stendur á tímamótum. Okkar helsta sameiginlega verkefni er að takast á við loftslagsvánna. Það að flétta inn í hversdagsleikann hluti sem skipta máli til að takast á við stærsta verkefni samtímans er áskorun, ekki aðeins fyrir hvern einstakling, heldur líka fyrir okkur sem samfélag. Skoðun 21. nóvember 2020 09:01
Laddi og leiðin áfram Árangur í loftslagsmálum krefst stórra lausna. Við munum ekki ná settum markmiðum með smá grænum sköttum hér og smá ívilnunum þar. Við þurfum bæði hugarfars- og kerfisbreytingu, við þurfum að ráðast að rót vandans: Hagkerfinu sem hefur sett vöxt og neyslu framar öllu öðru. Skoðun 20. nóvember 2020 07:01
Leysanlegt kolefnisklúður 10. nóvember síðastliðinn gerði Fréttablaðið að umtalefni fyrirsjáanleg kaup ríkisins á kolefniskvótum til að uppfylla skuldbindingar Íslands gagnvart Kyoto bókuninni. Skoðun 19. nóvember 2020 11:45
Flýta banni við bensín- og dísilbílum um fimm ár Breska ríkisstjórnin kynnti áform um að flýta banni við nýjum bensín- og dísilbílum um fimm ár í dag. Bannið á nú að taka gildi árið 2030 og vera liður í gera Bretland kolefnishlutlaust fyrir árið 2050. Erlent 18. nóvember 2020 10:52
Selja olíuvinnsluleyfi á verndarsvæði á lokadögum Trump sem forseta Ríkisstjórn Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, ætlar að byrja að selja leyfi til olíuvinnslu á verndarsvæði í Alaska þrátt fyrir að nú séu aðeins um tveir mánuðir þar til ný ríkisstjórn tekur við völdum. Leyfin opna stórt svæði við Norður-Íshafið fyrir olíu- og gasvinnslu. Erlent 17. nóvember 2020 16:20
Afneitarar settir yfir loftslagsskýrslu á lokametrum Trump-stjórnarinnar Tveimur vísindamönnum sem hafna vísindalegum skilningi á loftslagsbreytingum hefur verið falið að stýra umfangsmestu loftslagsskýrslu bandarísku alríkisstjórnarinnar á lokamánuðum ríkisstjórnar Donalds Trump forseta. Erlent 17. nóvember 2020 11:01
Hamfarasvæði aftur í hættu vegna fellibyljarins Jóta Fellibylnum Jóta óx afl í Karíbahafi í dag og er nú orðinn að fimmta stigs fellibyl. Hann virðist nú stefna á hamfarasvæði í Mið-Ameríku sem urðu illa úti í fellibylnum Eta fyrr í þessum mánuði. Erlent 16. nóvember 2020 16:05
Hlýnun lengir líf fellibylja yfir landi Fellibyljir í Norður-Atlantshafi eru tvöfalt lengur missa afl sitt eftir að þeir ganga á land en fyrir fimmtíu árum vegna hnattrænnar hlýnunar af völdum manna. Þannig eru þeir nú færir um að valda enn meiri eyðileggingu á landi en áður. Erlent 11. nóvember 2020 23:30
Tröllaukinn ísjaki stefnir á breska eyju Risavaxinn ísjaki sem brotnaði úr Larsen C-ísbreiðunni á Suðurskautslandinu stefnir nú á Suður-Georgíu, breska eyju í Suður-Atlantshafinu. Jakinn er svipaður að stærð og eyjan og gæti valdið meiriháttar búsifjum fyrir dýrategundir sem þar þrífast. Erlent 10. nóvember 2020 23:35
Bein útsending: Loftslagsvænar framfarir í kjölfar Covid-19 Bein útsending verður hér á Vísi frá málfundi um loftslagsmál á vegum Loftslagsráðs og sendiráðs Bretlands í dag. Fundurinn hefst klukkan 14.30 og stendur til klukkan 16. Samstarf 10. nóvember 2020 11:13
Stefnir í milljarða kostnað vegna Kýótó Íslendingum hefur ekki tekist að standa við skuldbindingar sínar í Kýótóbókuninni en því tímabili lýkur um áramótin þegar nýtt tímabil, kennt við Parísarsamkomulagið, tekur við. Innlent 10. nóvember 2020 07:08
Metfjöldi undirskrifta fyrir rannsókn á fjölmiðlaveldi Murdoch Fleiri en hálf milljón Ástrala hefur skrifað undir áskorun um að stjórnvöld komi á fót nefnd til að rannsaka meinta misnotkun fjölmiðlaveldis Ruperts Murdoch á markaðsráðandi stöðu sinni. Fyrrverandi forsætisráðherra úr röðum Verkamannaflokksins hóf undirskriftasöfnunina. Erlent 5. nóvember 2020 13:10
Bandaríkin formlega gengin úr Parísarsamkomulaginu Bandaríkin eru formlega gengin úr Parísarsamkomulaginu frá og með deginum í dag. Samkomulagið er frá árinu 2015 og kveður á um skuldbindingar ríkja til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Erlent 4. nóvember 2020 08:43
Á leiðinni frá Kyoto til Parísar Árið 2018 komu fyrst fram yfirlýsingar stjórnvalda um kolefnishlutleysi eigi síðar en 2040. Í uppfærðri aðgerðaáætlun í loftslagsmálum fyrir 2018 – 2030 er ekki aðeins gert ráð fyrir að skuldbindandi markmiðum Íslands verði náð heldur stefnt að enn betri árangri. Skoðun 3. nóvember 2020 14:30
Sameinast um þróun fjölnota 2ja-hreyfla rafmagnsflugvélar Ítalski flugvélaframleiðandinn Tecnam og breski hreyflaframleiðandinn Rolls Royce hafa tekið höndum saman um að þróa tveggja hreyfla rafmagnsflugvél. Þau stefna að því að verða fyrst til að koma rafmagnsflugvél af þessari stærð á markað. Viðskipti erlent 1. nóvember 2020 22:19
Boða byltingu í loftslagsmálum Íslenska fyrirtækið Carbon Iceland áformar að reisa lofthreinsiver á Húsavík sem gerir kleift að hreinsa og og binda milljón tonn af koltvísýringi úr andrúmslofti. Stjórnarformaður fyrirtækisins segir um að ræða byltingu í loftslagsmálum. Innlent 30. október 2020 19:01
Kjötlaust tvo daga vikunnar í Danmörku Ekkert kjöt verður á boðstólunum í mötuneytum danskra ríkisstofnanna tvo daga í viku ef ný innkaupastefnastefna danskra stjórnvalda er samþykkt. Erlent 29. október 2020 11:47
Búa sig undir La niña-aðstæður fram á næsta ár Veðurfyrirbrigðið La niña hefur myndast í Kyrrahafi og er búist við því að það hafi sterk áhrif á hita, úrkomu og vindafar víða á jörðina fram á næsta ár. Reiknað er með að fyrirbrigðið hafi mest áhrif í Afríku, Mið- og Suðaustur-Asíu, í Kyrrahafi og í norðanverðri Suður-Ameríku en aðeins óbein áhrif á veðurfar á Íslandi. Erlent 29. október 2020 11:04
Norðurskautið gæti orðið íslaust að sumri innan tuttugu ára Fyrstu niðurstöður viðamesta leiðangurs sögunnar á Norðurskautið voru kynntar á webinar hjá Hringborði norðurslóða, Arctic Circle, í dag. Hann staðfestir miklar breytingar sem muni meðal annars stuðla að aukinni tíðni ofsaveðra um allan heim. Erlent 27. október 2020 19:21
Kallað eftir sjálfbærnileiðtogum - helst í gær... Vísindasamfélagið hefur varað við hrikalegum afleiðingum ef ekki verður gripið strax til róttækra aðgerða til að sporna við áframhaldandi hlýnun jarðar. Skoðun 27. október 2020 14:00
Þrefaldur ávinningur heimavinnu Veirufaraldurinn sem geisað hefur um heimsbyggðina, hefur heldur betur hrist upp í viðhorfi til heimavinnu. Skoðun 27. október 2020 13:31
Afríkuríki þurfa að búa sig betur undir loftslagsbreytingar Afríka verður verst úti í loftslagsbreytingum samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóðaveðurfræðistofnunar Sameinuðu þjóðanna. Heimsmarkmiðin 27. október 2020 12:05
Nýta hátækni úr Svartsengi í norskri metanólverksmiðju Norðmenn hyggjast nýta sér hátækni Carbon Recycling í Svartsengi til að reisa 28 milljarða króna verksmiðju í Norður-Noregi sem fangar útblástur frá kísilmálmvinnslu og breytir honum í umhverfisvænt eldsneyti. Viðskipti innlent 25. október 2020 23:06
Gætu tekið af rafmagn hjá milljón manna til að draga úr eldhættu Orkufyrirtæki í Kaliforníu gæti tekið rafmagn af hjá allt að milljón viðskiptavinum sínum um helgina til að draga úr hættu á frekari gróðureldum. Spáð er sérstaklega eldfimum aðstæðum, þurrki og hvassviðri víða í Kaliforníu fram í næstu viku. Erlent 24. október 2020 10:08
Velti upp þörfinni á sameinuðu efnahags- og loftslagsráðuneyti „Neyðin til að samtvinna aðgerðir í efnahagslífinu og loftslagsmálum orðin svo brýn að maður veltir því fyrir sér hvort umhverfismál og efnahagsmál eigi ekki að heyra undir sama ráðherra,“ sagði Smári McCarthy, þingmaður Pírata, í sérstökum umræðum um loftslagsmál sem fara nú fram á Alþingi. Innlent 20. október 2020 15:55