BioNTech í kapphlaupi til að fylla upp í ESB-gatið Stjórnendur þýska lyfjafyrirtækisins BioNTech gagnrýna Evrópusambandið fyrir seinagang í pöntunum á bóluefni fyrirtækisins og Pfizer. Þeir segja fyrirtækin nú leggja allt kapp á að auka framleiðsluna til að brúa bilið sem seinagangurinn, og of mikið traust ESB til annarra framleiðenda, hafi búið til. Erlent 1. janúar 2021 21:06
„Bara smá tilfinning og búið“ Stefán Þorleifsson, 104 ára og elsti núlifandi karlmaður á Íslandi, var bólusettur fyrir kórónuveirunni í Neskaupstað fyrr í vikunni. Hann segir sprautuna ekki hafa verið neitt mál og hefur ekki fundið fyrir eftirköstum. Innlent 1. janúar 2021 20:31
Vísbendingar um að fólk hafi verið að gleyma sér Yfirlögregluþjónn segir annríki hjá lögreglu og á bráðamóttöku í nótt áhyggjuefni þegar kemur að útbreiðslu kórónuveirunnar. Það gefi vísbendingu um að fólk hafi aðeins verið að gleyma sér sem gæti skilað sér í að fleiri smitist af veirunni. Innlent 1. janúar 2021 19:30
Hópamyndun við Hallgrímskirkju í nótt tilkynnt til lögreglu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um hópamyndun við Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti í Reykjavík um klukkan eitt í nótt. Innlent 1. janúar 2021 14:02
Koma þarf bóluefni til landsins með öllum tiltækum ráðum Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands segir að koma þurfi bóluefni gegn kórónuveirunni hingað til lans með öllum tiltækum ráðum. Þetta sagði hann í nýársávarpi sínu til þjóðarinnar. Innlent 1. janúar 2021 13:40
Ekki heyrt af stórum brotum á samkomutakmörkunum í gærkvöldi Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum, segist ekki vita til þess að í gærkvöldi hafi verið mikið um brot á samkomutakmörkunum. Innlent 1. janúar 2021 12:01
Þrír greindust innanlands Þrír greindust með kórónuveiruna hér á landi í gær, samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavörnum. Tveir hinna smituðu voru í sóttkví. Þá greindust þrír á landamærunum. Innlent 1. janúar 2021 11:17
Handtekinn grunaður um að spilla bóluefni viljandi Lyfjafræðingur í Wisconsin í Bandaríkjunum hefur verið handtekinn fyrir að eyðileggja hundruð skammta af bóluefni Moderna við Covid-19, með því að geyma þá við stofuhita í tvær nætur. Erlent 1. janúar 2021 10:40
„Við förum bara þegar þú kemur næst“ Ragnar Axelsson ljósmyndari hitti fyrst Halldór Agnar Jónasson á sjúkrahúsinu á Akureyri. Halldór, betur þekktur sem Dóri, var þá með Covid-19 og barðist fyrir lífi sínu. Hann sagði við RAX að hann hafði valið að fara ekki í öndunarvél, taldi að hann myndi ekki lifa það af. Menning 1. janúar 2021 07:00
„Íslenskir stjórnmálamenn ákváðu að láta faraldurinn ekki snúast um sig“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra óskaði landsmönnum öllum ljóss og friðar á nýju ári sem nú fer í hönd í áramótaávarpi sínu í kvöld. Hún stiklaði á stóru yfir fordæmalaust ár, litað af heimsfaraldri, og kvað það „heilbrigðismerki“ að stjórnmálamenn á Íslandi hefðu ekki látið faraldurinn snúast um sig. Innlent 31. desember 2020 20:16
Þórólfur Guðnason valinn maður ársins Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er maður ársins að mati fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Margir voru um hituna á viðburðaríku ári en tilkynnt var um valið í þættinum Kryddsíld í dag, þar sem árið 2020 er gert upp. Innlent 31. desember 2020 15:21
„Við eigum býsna góða fylgismenn innan Pfizer“ Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir að Ísland eigi sér „býsna góða fylgismenn“ innan lyfjafyrirtækisins Pfizer. Hvort það dugi til að tryggja 60 prósent þjóðarinnar bóluefni liggi þó ekki fyrir. Áhugi innan Pfizer á Íslandsrannsókn sé „geysimikill“. Innlent 31. desember 2020 14:00
Engir áhorfendur leyfðir í Liverpool-borg Ensku úrvalsdeildarfélögin Liverpool og Everton munu ekki geta fengið áhorfendur á leiki sína á næstunni eftir að Liverpool-borg var færð niður í „Tier 3.“ Það þýðir að engir áhorfendur eru leyfðir á íþróttaviðburði. Enski boltinn 31. desember 2020 13:01
Katrín hvetur landsmenn til að fara varlega í kvöld Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist stolt af íslensku samfélagi nú þegar árið 2020 er senn á enda og hvetur landsmenn til að fara varlega í kvöld. Þetta segir Katrín í færslu á Twitter. Innlent 31. desember 2020 11:17
Heilbrigðisstarfsmaðurinn maður ársins 2020 Heilbrigðisstarfsmaðurinn er maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Niðurstaðan var kynnt í Reykjavík árdegis í morgun. Niðurstaðan var afgerandi en af tæplega 25 þúsund atkvæðum fékk heilbrigðisstarfsmaðurinn tvöfalt fleiri en næsti maður eða 8965 atkvæði. Innlent 31. desember 2020 10:58
Óttast að aðeins „pínulítill hundraðshluti þjóðarinnar“ verði bólusettur fyrir lok næsta árs Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur hættu á að aðeins „pínulítill hundraðshluti þjóðarinnar“ verði bólusettur fyrir kórónuveirunni fyrir lok næsta árs. Samningar stjórnvalda um kaup á bóluefni feli aðeins í sér magn en ekki afhendingartíma. Innlent 31. desember 2020 10:44
Þrír greindust innanlands og þar af tveir í sóttkví Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og þar af voru tveir í sóttkví, samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Innlent 31. desember 2020 10:25
Þórólfur segist hafa elst um 15 ár 2020 „2 0 2 0 drífðu þig út,“ syngja þeir félagar í hljómsveitinni Vinum og vandamönnum í nýju lagi og myndbandi þar sem árið 2020 er gert upp og nýtt ár, 2021, er kallað til leiks. „2 0 2 0 hvað varst þú að spá?“ syngja þeir enn fremur og „2 0 2 1 drífðu þig inn.“ Lífið 31. desember 2020 09:12
Ljós við enda ganganna eftir tíu mánaða baráttu Síðasti dagur ársins 2020 í dag. „Sem betur fer,“ segja eflaust margir enda verður því seint lýst sem venjulegu ári. Samkomubann hefur verið í gildi síðustu níu mánuði eða svo og daglegt líf okkar allt öðruvísi en fyrir kórónuveirufaraldurinn. Það birti aðeins til í sumar en það var skammgóður vermir þar sem haustið reyndist afar erfitt. Innlent 31. desember 2020 09:00
Grænland lokað næstu tvær vikur Grænlenska landsstjórnin hefur bannað allt farþegaflug til Grænlands næstu tvær vikur, til 12. janúar. Aðeins verður leyft farþegaflug á vegum stjórnvalda og neyðarflug. Þetta kom fram á fréttamannafundi sem Kim Kielsen forsætisráðherra og Henrik L. Hansen, landlæknir Grænlands, héldu í Nuuk í gær. Erlent 31. desember 2020 06:12
Hundrað þúsund lögreglumenn munu koma í veg fyrir samkomur Yfirvöld í Frakklandi hafa ákveðið að setja hundrað þúsund lögreglumenn í viðbragðsstöðu á gamlárskvöld til þess að sporna gegn samkomum og fögnuðum. Útgöngubann er í gildi frá klukkan 20 og mun lögregla vera með sýnilega viðveru á almenningssvæðum. Erlent 30. desember 2020 23:39
Baráttunni „engan veginn lokið“ í Bretlandi Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hefur biðlað til landsmanna að halda sig heima um áramótin og sýna þolinmæði. Baráttunni væri „engan veginn lokið“ þar sem veiran væri í mikilli útbreiðslu, þá sérstaklega vegna nýja afbrigðisins sem hefur hingað til verið kennt við Bretland. Erlent 30. desember 2020 21:06
Færri gjaldþrot en óttast var Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, segist búast við því að atvinnuleysi haldist svipað um áramót. Hún á ekki von á því að ástandið batni í fyrsta mánuði næsta árs, en enn eigi eftir að spá fyrir um vormánuðina. Viðskipti innlent 30. desember 2020 19:40
Telur árið vera það erfiðasta frá upphafi Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir árið sem er að líða vera það erfiðasta fyrir Icelandair og fluggeirann í heild sinni frá því að ferðalög hófust. Krísan hafi verið fordæmalaus og breytt öllum áætlunum fyrir ár sem stefndi annars í að vera með þeim stærri frá upphafi. Viðskipti innlent 30. desember 2020 19:10
Yfirvöld í Essex lýsa yfir neyðarástandi: Óska eftir aðstoð frá hernum Neyðarástand er að skapast í Essex vegna Covid-19 faraldursins og hafa yfirvöld á svæðinu biðlað til breska hersins um aðstoð. Essex er á efsta viðbúnaðarstigi en ástandið er hvergi verra á Englandi heldur en í suðurhluta sýslunnar. Erlent 30. desember 2020 18:38
„Við verðum bara að vinna úr því sem við höfum“ Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir ljóst að margir sem starfa í heilbrigðisþjónustu og telja sig útsetta fyrir kórónuveirusmiti munu þurfa að bíða í einhvern tíma eftir bóluefni þar sem þeir eru ekki fremstir í forgangsröðuninni. Sjúkraflutningamenn hafa gagnrýnt mjög að vera í fjórða forgangshópi samkvæmt reglugerð á meðan annað heilbrigðisstarfsfólk er í fyrstu hópum. Innlent 30. desember 2020 17:54
Segist eitt af „líkamsræktarsmitunum“ jafnvel þótt ekki sé vitað hvar hún smitaðist Forsvarsmenn World Class hafa birt erindi frá konu sem segir farir sínar ekki sléttar af smitrakningu í kjölfar Covid-19 greiningar en smitið hafi verið sett í flokk smita á líkamsræktarstöðvum, jafnvel þótt hún hefði getað smitast á ótal öðrum stöðum. Innlent 30. desember 2020 17:44
Mæla með frekari grímunotkun í ljósi metfjölda dauðsfalla Yfirvöld í Svíþjóð lögðu til í dag að farþegar almenningsamganga notuðust við grímur á háannatíma. Það yrði væri gert til að sporna gegn mikilli dreifingu nýju kórónuveirunnar. Svíar tilkynntu í dag að 8.846 hefðu greinst smitaðir nýverið og voru 243 ný dauðsföll tilkynnt. Erlent 30. desember 2020 16:09
Leik Fulham og Tottenham frestað vegna smita Leik Fulham og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni hefur verið frestað vegna kórónuveirusmita í herbúðum Fulham. Enski boltinn 30. desember 2020 15:03