Segir koma á óvart hve margir finni fyrir eftirköstum svo löngu eftir veikindin Fjórðungur þeirra sem smituðust af kórónuveirunni í fyrstu bylgju faraldursins hér á landi finnur enn nokkur eða mikil einkenni sex mánuðum eftir veikindin. Innlent 27. janúar 2021 21:31
Berst við heilaþoku og ofurþreytu eftir alvarlega Covid-sýkingu í vor Einn þeirra sem er til meðferðar á Reykjalundi vegna eftirkasta Covid var meðvitundarlaus á Landspítalanum í þrjár vikur síðastliðið vor. Hann þjáist af síþreytu og hefur örmagnast við minnsta álag. Heilaþokan leikur hann grátt, kaffibragðið er ekki eins og áður - en hann er byrjaður að borða grænmeti eftir að bragðskynið breyttist. Innlent 27. janúar 2021 21:00
Fyrsti hópurinn sem var útskrifaður af Reykjalundi á enn eftir að ná sér Fyrsti hópurinn hefur verið útskrifaður úr sex vikna meðferð á Reykjalundi en á enn eftir að ná sér að fullu. Innlent 27. janúar 2021 20:17
Loka landamærum Noregs næstum alveg Hörðustu takmarkanir á landamærum Noregs síðan í mars taka gildi í landinu á miðnætti annað kvöld, 29. janúar. Landið verður í reynd lokað fyrir öllum sem ekki eru íbúar. Þetta tilkynnti Erna Solbergs forsætisráðherra Noregs á blaðamannafundi nú síðdegis. Erlent 27. janúar 2021 19:51
„Hún þarf bara eitt gott partí og þá er ballið byrjað“ Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að lítið þurfi út af að bregða til að kórónuveirufaraldurinn fari aftur af stað. Veiran sé enn úti í samfélaginu, þó það sé í litlum mæli. Fara þurfi mjög hægt í tilslakanir. Innlent 27. janúar 2021 18:35
Starfsþróun á tímum samkomutakmarkanna Það er fátt eðlilegt við það ástand sem verið hefur á vinnumarkaði síðastliðna tíu mánuði. Heilu vinnustaðirnir hafa verið lokaðir svo vikum og mánuðum skiptir vegna samkomutakmarkana og samskipti, bæði vinnutengd og önnur, fara fram með aðstoð stafrænna miðla. Skoðun 27. janúar 2021 16:27
Dansleikurinn reyndist íþróttaviðburður með tilboði á næsta bar Hátt í 25 geta búist við kæru fyrir brot á sóttvarnalögum eftir að lögregla leysti upp danssamkvæmi í miðborg Reykjavíkur í gær þar sem áfengi var haft við hönd. Áfengið hafði verið borið út af nálægum veitingastað, sem er brot á áfengislögum. Innlent 27. janúar 2021 12:01
Fyrstu innanlandssmitin í marga mánuði og opna mögulega ekki landamærin á þessu ári Þrír Nýsjálendingar hafa greinst smitaðir af Covid-19 og er það í fyrsta sinn sem slíkt gerist í marga mánuði. Ein kona greindist smituð í síðustu viku og tveir í dag. Öll þrjú luku nýverið sóttkví í sama farsóttahúsinu í borginni Auckland. Erlent 27. janúar 2021 11:18
Fjórir greindust innanlands Fjórir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Allir þeir sem greindust voru í sóttkví. Innlent 27. janúar 2021 10:57
Segir samsæriskenningar um sig vera klikkaðar og illar Auðjöfurinn Bill Gates segir magn „klikkaðra“ og „illra“ samsæriskenninga um hann hafa komið sér á óvart. Hann vonast til þess að kenningarnar, sem snúa margar að faraldri nýju kórónuveirunnar og bóluefnum, hverfi á endanum. Erlent 27. janúar 2021 10:16
Meira en 100 milljónir hafa greinst með kórónuveiruna Fjöldi þeirra sem greinst hefur smitaður af kórónuveirunni á heimsvísu er nú kominn yfir 100 milljónir manna, að því er fram kemur hjá Reuters fréttastofunni. Erlent 27. janúar 2021 08:16
Hét því að setja aukinn kraft í bólusetningar Joe Biden Bandaríkjaforseti hét því í gær að setja aukinn kraft í bólusetningu þar í landi þannig að flest allir Bandaríkjamenn verði búnir að fá bólusetningu gegn Covid-19 í lok sumars eða snemma í haust. Erlent 27. janúar 2021 07:08
Eftir tíu ára starf fær Ísland 5,5 í einkunn „Niðurstaðan var sú, að í samanburði við lönd sem við gjarnan berum okkur saman við, fær Ísland 5,5 í einkunn. Við rétt náum,“ segir Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu um niðurstöður könnunar sem gerð var meðal allra formanna, varaformanna og framkvæmdastjóra Festu til dagsins í dag og fulltrúa þeirra sex fyrirtækja sem stofnuðu Festu árið 2011. Atvinnulíf 27. janúar 2021 07:00
Fjöldi manns kærður fyrir brot á sóttvarnalögum vegna dansleiks í miðbænum Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst rétt fyrir klukkan níu í gærkvöldi tilkynning um dansleik í húsnæði við hlið veitingastaðar í miðbæ Reykjavíkur. Innlent 27. janúar 2021 06:21
Það versta líklega afstaðið og útlit fyrir bjartari tíma Ný þjóðhagsspá Íslandsbanka gerir ráð fyrir 3,2% hagvexti á þessu ári sem megi að stærstum hluta þakka vexti í ferðaþjónustu ásamt hóflegum vexti neyslu og fjárfestingar. Sem fyrr eru stærstu einstöku óvissuþættir efnahagsþróunarinnar á Íslandi sagðir vera hvenær faraldurinn tekur enda og ferðavilji tekur að aukast á ný. Viðskipti innlent 27. janúar 2021 06:00
Heltust úr bóluefnalestinni en rétta nú fram hjálparhönd Franska lyfjafyrirtækið Sanofi hyggst aðstoða lyfjafyrirtækið Pfizer við framleiðslu á hundrað milljón skömmtum af bóluefni þess síðarnefnda gegn kórónuveirunni. Fyrstu Pfizer-skammtarnir frá Sanofi eru þó ekki væntanlegir fyrr en í júlí. Erlent 26. janúar 2021 23:24
Johnson segist algjörlega miður sín Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands segist bera alla ábyrgð á aðgerðum ríkisstjórnar sinnar gegn kórónuveirufaraldrinum í landinu. Stjórnvöld hafi gert allt sem í þeirra valdi stóð í glímunni við faraldurinn. Erlent 26. janúar 2021 22:36
„Áhugavert“ bóluefni sem lofar mjög góðu Sérfræðingur í ónæmisfræðum segir bóluefni Janssen gegn kórónuveirunni, sem Íslendingar gætu átt von á til landsins á fyrsta ársfjórðungi, áhugavert bóluefni, sem svipi mjög til bóluefnis AstraZeneca. Niðurstöður úr fyrsta og öðrum fasa rannsókna lofi mjög góðu. Innlent 26. janúar 2021 19:53
Segja fréttir um takmarkaða virkni byggja á mistúlkun gagna Þýska heilbrigðisráðuneytið og AstraZeneca hafna fréttum þess efnis að bóluefni lyfjafyrirtækisins gegn Covid-19 virki ekki eins og áður hafði verið talað um. Forsvarsmenn AstraZeneca segja fréttirnar „fullkomlega rangar“ en samkvæmt heilbrigðisráðuneytinu er um að ræða mistúlkun á gögnum. Erlent 26. janúar 2021 19:37
Óeirðirnar endurspegli ekki hug almennings Lögreglan í Hollandi segir að óeirðirnar í landinu seinustu daga vegna hertra kórónuveirutakmarkana séu þær verstu í landinu í fjörutíu ár. Erlent 26. janúar 2021 19:01
„Ósköp var þetta nú Miðflokkslegt“ „Ósköp var þetta nú Miðflokkslegt. En gott og vel, það er bara partur af veruleikanum hér í þingsal og eitthvað sem við verðum að reyna að hafa skilning á,“ sagði Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, þegar hún svaraði fyrirpurn Önnu Kolbrúnar Árnadóttur, þingmanns Miðflokksins, um bóluefni. Innlent 26. janúar 2021 18:18
Tilkynningar um andlát orðnar átta Lyfjastofnun var í gær tilkynnt um andlát aldraðrar manneskju sem fengið hafði bólusetningu gegn kórónuveirunni með bóluefni Pfizer. Engar vísbendingar eru um tengsl bólusetningarinnar og andlátsins. Stofnuninni hefur nú verið tilkynnt um átta andlát eftir bólusetningu. Innlent 26. janúar 2021 17:48
Enn fækkar stöðum hjá Gló og Joe & the Juice Þremur veitingastöðum Gló hefur verið lokað á síðustu tíu mánuðum og eftir stendur einungis einn staður í Fákafeni. Fjármálastjóri segir að heimsfaraldurinn hafi reynst veitingabransanum erfiður og að stjórnendur reyni nú að koma jafnvægi á reksturinn. Þá hefur Joe & the Juice, sem er að hluta til í eigu sömu aðila, lokað flestum stöðum sínum tímabundið og tveimur varanlega. Viðskipti innlent 26. janúar 2021 17:17
Hundrað þúsund dánir í Bretlandi Rúmlega hundrað þúsund manns hafa nú dáið vegna Covid-19 í Bretlandi. Það er samkvæmt opinberum tölum en um 3,7 milljónir manna hafa smitast af nýju kórónuveirunni, sem veldur Covid-19. Erlent 26. janúar 2021 17:01
3,7 milljarðar í tekjufallsstyrki síðustu tvær vikur Undanfarnar tvær vikur hafa um 3,7 milljarðar króna verið greiddir í tekjufallsstyrki til rekstraraðila sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Viðskipti innlent 26. janúar 2021 16:37
Heilbrigðisráðherra býst við bóluefni Janssen fyrr en áður var talið Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, segir von á bóluefni Janssen fyrr en áður var talið. Þetta kom fram í máli Svandísar í umræðum um skýrslu sem hún flutti um öflun og dreifingu bóluefnis á Alþingi í dag. Innlent 26. janúar 2021 14:54
Íslendingar rifja upp síðustu utanlandsferðina „Viltu segja mér frá seinustu útlandaferðinni þinni?“ Lífið 26. janúar 2021 13:31
Vilja bíða með útgöngubann og skyldubólusetningu Velferðarnefnd Alþingis leggur til að heimild til setningar útgöngubanns og skyldubólusetningar á landamærunum verði felldar brott úr frumvarpi til breytinga á sóttvarnalögum. Innlent 26. janúar 2021 13:30
Gjöld vegna Covid-19 vottorðs geta margfaldað ferðakostnað Fleiri ríki gera nú kröfu um að flugfarþegar framvísi vottorði um neikvæða niðurstöðu úr nýlegu Covid-19 prófi þegar þeir koma til landsins. Frá og með deginum í dag þurfa allir sem koma til Bandaríkjanna að hafa undir höndum slíkt vottorð en fyrr í mánuðinum tók sú breyting til að mynda gildi í Englandi og Danmörku. Viðskipti innlent 26. janúar 2021 13:11
Uppfært: Bóluefni fyrir 35 þúsund manns væntanlegt fyrir lok mars Ísland á von á bóluefni fyrir 33.500 manns í febrúar mánuði. Enn sé stefnt að því að þorri þjóðar verði bólusettur fyrir mitt ár, þó engu sé slegið á föstu. Innlent 26. janúar 2021 12:10