Jólavefur Vísis

Jólavefur Vísis

Allt um undirbúninginn, aðventuna, uppskriftir, jólalög og margt fleira.

Fréttamynd

Jólin magnað ritúal

Jólin eru auðvitað magnað ritúal, klókindaleg sáttagjörð kristninnar á milli sólhvarfahátíðar heiðinna manna og fæðingarhátíðar Krists. Hvernig væri skammdegisland á borð við Ísland án þeirra?

Jól
Fréttamynd

Dýrlingar drekka romm

Kristjana Hrönn fór yfir hálfan hnöttinn og hélt þar jól. "Ég fór til Gvatemala sem nokkurs konar skiptinemi í byrjun nóvember árið sem ég útskrifaðist úr menntaskóla. Ég kveið dálítið fyrir því að vera fjarri fjölskyldunni um jólin en þau urðu svo öðruvísi að maður saknaði eiginlega einskis þrátt fyrir þrjátíu stiga hitann.  </font /></b />

Jól
Fréttamynd

Þegar hátíð gengur í garð

Til að fá góð ráð og hollar leiðbeiningar um hátíðamatinn snerum við okkur til Óla Páls Einarssonar, matreiðslumeistara á Hótel Loftleiðum, og eldaði hann fyrir okkur tvenns konar kjötrétti, annars vegar andabringu með ýmsu meðlæti og hins vegar hamborgarhrygg.

Matur
Fréttamynd

Jólaföndur í Vesturbæjarskólanum

Mikil jólastemning var á hinu árlega jólaföndri Vesturbæjarskóla þegar allir sem vettlingi gátu valdið mættu í góðu jólaskapi. Börnin máluðu á fallegar jólakúlur af mikilli natni og héldu uppi góðum anda með því að skemmta sjálfum sér og öðrum.

Jól
Fréttamynd

Jólagjafir undir 500 kr.

Úrvalið í verslunum landsins er óendanlegt og ætti ekki að vera svo erfitt að finna ódýrar gjafir.

Jól
Fréttamynd

Eftirrétturinn góði Ris a la mande

Ólafur Helgi Kristjánsson matreiðslumaður á Skólabrú brást vel við bón okkar um að laga þennan sívinsæla eftirrétt sem tilheyrir jólahaldinu á mörgum heimilum. Þessi er með auka tilbrigðum.

Matur
Fréttamynd

Máltíð í myrkri og friði

"Ég kom til Tobago rétt fyrir jólin og lenti í smá vandræðum með gistingu. Þar var reyndar nýbúið að byggja nokkur stór strandhótel í þeim tilgangi að græða á ferðamannaiðnaði. En þótt engir ferðamenn sæjust enn voru þau samt á fullu verði og því of dýr fyrir mig.

Jól
Fréttamynd

Toblerone-jólaís Margrétar

"Systir mín gaf mér þessa uppskrift fyrir mörgum árum og síðan hef ég ekki gert annan ís á jólunum. Þetta er mjög einföld uppskrift og hver sem er getur gert svona ís. Mikilvægast er að þeyta eggjarauðurnar og púðursykurinn mjög vel,“

Matur
Fréttamynd

Ég er algjört jólabarn

"Við systurnar allar eru jafn skelfilegar fyrir jólin og ég byrjaði að hugsa um jólaskrautið í september," segir Marta Hrafnsdóttir söngkona.

Jól
Fréttamynd

Engill frá nunnum

Alma skreytir herbergið sitt og heldur upp á jólaseríur af öllum gerðum

Jól
Fréttamynd

Jólakompumarkaður undir stúku

Jólakompumarkaður undir stúku Laugardalsvallar verður haldinn næsta laugardag á vegum áhugasamra íbúa í skólahverfunum þremur sem umlykja Laugardalinn, þ.e. Langholtshverfi, Vogahverfi og Laugarneshverfi

Jól
Fréttamynd

Sítrónur, kerti, sykur og te

"Þetta voru mjög heillandi jól og ég fékk mikið út úr þeim. Ég var að vinna með skemmtilegu fólki sem var tilbúið til að láta eitthvað gott af sér leiða þannig að við ákváðum að reyna að gera jólin svolítið sérstök fyrir sjúklingana okkar, fangana í fangelsinu.

Jól
Fréttamynd

Ljós í myrkri

Léttur ilmur af eplakertum mætir manni þegar komið er í kertagerðina Vaxandi. Þar er námskeið í gangi og kennarinn Helga Björg Jónasardóttir myndlistarkona er að fræða fimm konur um helstu atriðin í sambandi við vax, kerti og hitastig.

Jól
Fréttamynd

Lögreglufylgd fyrir jólasveininn

Jólasveinninn fær lögreglufylgd í bænum Alloa í Skotlandi þessi jólin. Þar hefur jólasveinninn þrammað í sérhvert hús undanfarin 40 ár, en fyrir tveimur árum síðan varð hann fyrir aðkasti og í hann var kastað flöskum og steinum á fleiri en einum stað.

Jól
Fréttamynd

Rauð jól þau úti séu þau hvít

Rauði liturinn fylgir jólunum enda sígildur og afar hátíðlegur litur og þótt flestir óski sér hvítra jóla geta þau verið rauð innandyra

Jól
Fréttamynd

Persónulegur blær

Jólakúlur er afar einfalt að útbúa sjálfur. Efni í þær er fáanlegt í helstu föndurverslunum og getur aðeins skortur á hugmyndum takmarkað það sem hægt er moða úr því.

Jól
Fréttamynd

Íslenskir jólaveinar frá Kína

Brian Pilkington, rithöfundur og myndlistarmaður, kom hingað fyrir tæpum þrjátíu árum í frí og fannst svo gaman að hann er enn þá í fríinu og langar ekkert heim. Hann hefur myndskreytt fjölda bóka og sjálfur skrifað textann í margar þeirra. Íslensk tröll hafa gengið í endurnýjun lífdaga í bókum Brians,

Jól
Fréttamynd

Jólaþorp í Hafnarfirði

Jólastemmning réð ríkjum í Hafnarfirði í dag þegar jólaþorpið þar var opnað. Hefðbundinn, evrópskur jólamarkaður verður í miðbænum allar helgar fram að jólum. Í tuttugu litlum tréhúsum er seldur ýmiskonar jólavarningur, gjafavörur frá Karmelsystrum, pólskt jólaskraut, íslenskt handverk og fjöldamargt fleira.

Jól
Fréttamynd

Allir fá þá eitthvað fallegt

Í dag kl.16 opnar HANDVERK OG HÖNNUN jólasýninguna "Allir fá þá eitthvað fallegt" í Aðalstræti 12. Þetta er í sjötta sinn sem HANDVERK OG HÖNNUN heldur jólasýningu, og er um að ræða sölusýningu þar sem 32 aðilar sýna íslenskt handverk og listiðnað úr fjölbreyttu hráefni. Munirnir voru valdir inn á sýninguna af sérstakri dómnefnd.

Jól
Fréttamynd

Aðventudagskrá í Garðabæ

Aðventudagskrá  er fyrir alla fjölskylduna í Bókasafni Garðabæjar á morgun, laugardaginn 27. nóvember, milli klukkan 12 og 14.

Jól
Fréttamynd

Látum ljós okkar skína

Látum ljós okkar skína" er áskorun sem hefur verið send á Laugarvatni og í nágrenni í tilefni þess að aðventuskemmtun verður á Laugarvatni á morgun.

Jól
Fréttamynd

Hó, hó, hó í Hafnarfirði

"Ég byrjaði að skipuleggja Jólaþorpið í september, en fleiri starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar koma að þessu verkefni með einum eða öðrum hætti en þetta er á vegum bæjarins," segir Albert Eiríksson, verkefnisstjóri jólaþorpsins í Hafnarfirði. </font /></b />

Jól
Fréttamynd

Kirkjan iðar af lífi í desember

Við göngum að sjálfsögðu inn í aðventuna með opnum huga," segir Jón Dalbú Hróbjartsson, sóknarprestur í Hallgrímskirkju. "Við sjáum hvernig allt iðar af lífi og krafti í þjóðfélaginu, en reynum eins og við getum að koma með hinn kristna boðskap inn í aðventuhátíðina, þar sem rödd Jesú Krists fær að hljóma um frið í hjarta. 

Jól