Vildi ferðast og eignast hund en dreymir nú um sprengjubyrgi til að verja fjölskylduna 23 ára úkraínskur kennari sem flúið hefur Kænugarð segir að Rússar hafi skotið níu ára stelpu og foreldra hennar til bana á götum borgarinnar í gær. Maria Huresh segir að átökin hafi lagt líf Úkraínumanna í rúst og hún þrái nú fátt heitar en að eignast heimili með stóru sprengjubyrgi til að tryggja öryggi fjölskyldu sinnar. Erlent 27. febrúar 2022 17:32
Flugáhugamenn uggandi um stærstu flugvél heims Flugáhugamenn um heim allan hafa síðustu sólarhringa beðið áhyggjufullir fregna af örlögum stærstu flugvélar heims, hinnar úkraínsku Antonov An 225. Eitt af fyrstu skotmörkum rússneska hersins í innrásinni í Úkraínu var nefnilega Antonov-flugvöllurinn við bæinn Hostomel, sem er heimaflugvöllur risaþotunnar. Utanríkisráðherra Úkraínu lýsti því yfir síðdegis að Rússar hefðu eyðilagt flugvélina en hún var eitt helsta stolt Úkraínumanna. Erlent 27. febrúar 2022 14:14
Rússar og Úkraínumenn hittast til friðarviðræðna Volódímír Selenskíj, forseti Úkraínu, hefur samþykkt að senda nefnd til landamæra Hvíta-Rússlands til friðarviðræðna við rússneska sendinefnd sem kom til landsins í dag. Erlent 27. febrúar 2022 14:12
Pútín virkjar hersveitir sem sjá um fælingarvopn Rússa Þær hersveitir sem halda utan um fælingarvopn Rússa hafa verið settar í viðbragðsstöðu af Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Hann segir þetta gert vegna „óvinsamlegra“ aðgerða vesturveldanna gegn Rússlandi. Erlent 27. febrúar 2022 13:53
Íþróttaheimurinn bregst við innrás Rússa Viðbrögð við innrás Rússa í Úkraínu hafa ekki látið á sér standa. Þjóðir, einstaklingar, fyrirtæki og fleiri hafa keppst um að sýna samstöðu með Úkraínu en Íþróttahreyfingin út um allan heim hefur einnig brugðist harkalega við, hér að neðan má sjá samantekt af viðbrögðum félaga, sambanda og leikmanna hingað til. Sport 27. febrúar 2022 13:00
Á sjötta hundrað mótmæla við sendiráðið og enn bætir í Fólk streymir að rússneska sendiráðinu í Túngötu þar sem fólk mótmælir nú rússneskum stjórnvöldum og innrás þeirra í Úkraínu. Á sjötta hundrað eru þegar við sendiráðið og lögreglufulltrúi á staðnum segir enn bætast í hópinn. Innlent 27. febrúar 2022 13:00
Í biðröð til að komast til Póllands: „Það er eins og það sé heimsendir“ Úkraínsk kona, sem fréttastofa hefur verið í sambandi við, hefur verið föst í bílaröð við landamærin að Póllandi frá því á aðfaranótt föstudags. Enn er fjöldi fólks á undan henni í röðinni og hún ekki örugg. Rússneski herinn sprengdi upp húsnæði úkraínska hersins í nágrenninu í nótt. Erlent 27. febrúar 2022 12:16
Svíar og Tékkar bætast í hóp þjóða sem neita að spila gegn Rússum Hvorki Svíþjóð né Tékkland mun spila gegn Rússlandi í umspili um laust sæti á HM 2022 í Katar, komi til þess að liðin mætast í úrslitaleik umspilsins. Fótbolti 27. febrúar 2022 12:00
Ísland lokar fyrir flugumferð Rússa og vegabréfaáritun ekki í boði fyrir diplómata Ísland hefur lokað fyrir flugumferð Rússa í loftrými Íslands. Þá fá rússneskir diplómatar og viðskiptamenn ekki að koma til landsins en búið er að loka fyrir vegabréfsáritanir þeirra. Innlent 27. febrúar 2022 10:19
Boða til mótmæla um allt land í dag Boðað hefur verið til mótmæla- og samstöðufunda í Reykjavík, á Akureyri og Reyðarfirði í dag vegna innrásar Rússa inn í Úkraínu. Innlent 27. febrúar 2022 10:17
Götubardagar og sprengingar í Kænugarði í alla nótt en nú dauðaþögn Enn ein erfið nótt er liðin í Úkraínu og var hart barist í öllum stærstu borgum landsins. Útgöngubann er í gildi í Kænugarði og verður í gildi þar til klukkan átta í fyrramálið. Íbúi í Kænugarði segir hörðustu bardagana háða í skjóli nætur. Innlent 27. febrúar 2022 08:37
Úkraínuvaktin: Úkraínuforseti ræðir við leiðtoga vesturlanda og ýjar að ESB-aðild Nýjar gervihnattamyndir sýna nokkurra kílómetra langa bílalest, sem inniheldur meðal annars skriðdreka, stefna í átt að Kænugarði. Erlent 27. febrúar 2022 07:31
Frysta eigur Seðlabanka Rússlands og aftengja vissa banka frá SWIFT Ríki Evrópusambandsins, Bandaríkin, Bretland og Kanada hafa komist að samkomulagi um að loka aðgangi tiltekinna rússneskra banka að SWIFT, greiðslukerfi sem notað er við miðlun fjármuna milli alþjóðlegra banka. Erlent 26. febrúar 2022 22:37
Þeim ríkjum fjölgar sem samþykkja að aftengja Rússland frá SWIFT Þeim ríkjum fjölgar sem samþykkja að aftengja Rússland frá greiðslukerfi sem notað er til að miðla fjármunum milli alþjóðlegra banka en rússneskir hermenn hafa nú tekið að beina sprengjuárásum að spítölum og skólum í Úkraínu. Erlent 26. febrúar 2022 20:01
Roman Abramovich stígur til hliðar Roman Abramovich og Chelsea gáfu út sameiginlega yfirlýsingu rétt í þessu þar sem kemur fram að Abramovich muni stíga til hliðar sem stjórnandi í daglegum rekstri félagsins. Ekki er tekið fram hvers vegna Abramovich er að stíga til hliðar. Enski boltinn 26. febrúar 2022 19:22
„Vonum það besta en erum hræddir við að eitthvað slæmt geti gerst“ Netöryggisfyrirtækið Syndis hefur hækkað viðbúnaðarstig sitt vegna hugsanlega yfirvofandi netárása Rússa. Framkvæmdastjóri Syndis segir mikilvægt að fólk sé á varðbergi og opni ekki furðulega pósta. Innlent 26. febrúar 2022 18:40
„Enn þá meiri uggur í mér“ Íslendingur sem býr í Kænugarði segist lítið hafa sofið í nótt fyrir sprengingum. Útgöngubann tók gildi þar klukkan þrjú í dag og stendur til átta í fyrramálið. Hann segir óþægilegt að hafa fylgst með starfsfólk Öryggis-og samvinnustofnunar Evrópu flýja úr borginni í morgun. Innlent 26. febrúar 2022 18:30
„Erfitt að sjá fólk sem í ofsareiði og af óskiljanlegum ástæðum vill tortíma okkur“ Sendiherra Úkraínu í Finnlandi og Íslandi kallar eftir því að íslensk stjórnvöld slíti stjórnmálasambandi við Rússland og vísi rússneska sendiherranum úr landi. Hann voni að rússneskur almenningur geri uppreisn annars verði skömmin og blóð Úkraínumanna á þeirra höndum næstu aldirnar. Innlent 26. febrúar 2022 16:01
Búast við rússneskum netárásum á Ísland Aðstoðarforstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis segir að viðbúnaður hér á landi vegna yfirvofandi netárása Rússa hafi aukist, sem og í öðrum ríkjum Atlantshafsbandalagsins. Alþjóðlegur hópur hakkara hefur ráðist á Rússa með góðum árangri, en búast má við því að Rússar ráðist á netinnviði NATO-ríkja. Innlent 26. febrúar 2022 14:18
Abramovich íhugar að selja Chelsea Rússneski milljarðamæringurinn Roman Abramovich, eigandi Chelsea, er að íhuga að selja félagið. Vegna innrásar Rússa í Úkraínu hafa vesturveldi lagt til viðskiptaþvingana á Rússa og rússneska viðskiptamenn. Fótbolti 26. febrúar 2022 12:32
Pólverjar neita að spila við Rússa Cezary Kulesza, forseti pólska knattspyrnusambandsins hefur gefið það út að þeir muni ekki leika við Rússland í umspili fyrir heimsmeistaramótið í Katar 2022. Fótbolti 26. febrúar 2022 11:30
Man Utd bætist í hóp félaga sem segja upp styrktarsamningum við rússnesk fyrirtæki Fótboltalið víðs vegar um Evrópu hafa sagt upp styrktarsamningum sínum við rússnesk fyrirtæki eftir að fréttir bárust um innrás Rússa í Úkraínu. Fótbolti 26. febrúar 2022 10:30
Formúlu 1 kappakstri í Rússlandi aflýst Formúlu 1 kappaksturinn bætist við þá íþróttaviðburði sem átti að fara fram í Rússlandi en hefur nú verið aflýst vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Formúla 1 26. febrúar 2022 10:00
„Ég vaknaði nokkrum sinnum við sprengingar og byssuhvelli“ Miklir bardagar voru í Kænugarði í nótt og heyra mátti sprengingar og byssuhvelli. Borgarstjóri Kænugarðs sagði í tilkynningu í morgun að 35 almennir borgarar hafi særst í átökunum í nótt, þar af tvö börn. Innlent 26. febrúar 2022 09:30
Útilokar ekki að slíta stjórnmálasambandi við Rússa Fjármálaráðherra segir ekki útilokað að íslensk stjórnvöld muni slíta stjórnmálasamstarfi við Rússa. Minni þolinmæði sé fyrir rússneskum kafbátum og herþotum sem reglulega rjúfi lofthelgi Íslands en algjört slit stjórnmálasambands yrði þó líklega síðasta úrræði sem stjórnvöld gripu til. Innlent 26. febrúar 2022 09:19
Nato sendir hermenn til nágrannaríkja Úkraínu Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Nato, sagði í yfirlýsingu seint í gærkvöldi að bandalagið sé að senda viðbragðsveitir, reiðubúnar til bardaga, til nágrannalanda Úkraínu og muni þar að auki halda áfram að senda Úkraínumönnum vopn, þar á meðal loftvarnir. Erlent 26. febrúar 2022 08:39
Vaktin: Allt stefnir í aðra erfiða nótt Rússneskar hersveitir segjast hafa náð yfirráðum í borginni Melitopol í suðausturhluta Úkraínu. Melitopol er fyrsta stóra borgin, utan þeirra sem eru á yfirráðasvæði aðskilnaðarsinna í austri, sem fellur í hendur Rússa. Varnarmálaráðherra Breta segir þessar fregnir þó ekki réttar. Erlent 26. febrúar 2022 07:37
„Hreint neyðarástand hjá Útlendingastofnun“ Dómsmálaráðherra segir að hreint neyðarástand ríki hjá Útlendingastofnun. Flóttamenn sem fyrir eru teppi aðstöðuna fyrir þeim flóttamönnum sem kunna að koma frá Úkraínu. Innlent 25. febrúar 2022 20:38
Putin hvetur til herforingjabyltingar í Úkraínu Vladimir Putin Rússlandsforseti skorar á úkraínska herinn að steypa lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum landsins. Landinu væri stjórnað af nasistum og fíkniefnaneytendum. Erlent 25. febrúar 2022 20:30
Íbúar Kænugarðs leita skjóls í neðanjarðarlestarstöðvum Fólk hefur hópast niður í neðanjarðarlestarstöðvarnar í Kænugarði frá því loftvarnaflautur fóru að hljóma í gær. Erlent 25. febrúar 2022 20:00