

Hollywood
Fréttir af fræga fólkinu úti í hinum stóra heimi.

Morðhótanir eftir brandara um andlát Kobe Bryant
Uppistandsklúbburinn The New York Comedy Club hefur tilkynnt lögreglu um morðhótanir sem aðstandendum staðarins hafa borist í kjölfar brandara sem uppistandarinn Ari Shaffir birti á Twitter-síðu sinni.

Segir Weinstein hafa boðið sér hlutverk í skiptum fyrir kynlíf: „Svona virkar bransinn“
Leikkonan Dawn Dunning bar vitni gegn Harvey Weinstein í dag og lýsti þar meintu kynferðisofbeldi kvikmyndaframleiðandans.

James Corden keyrir aldrei sjálfur í Carpool Karaoke
Breski þáttastjórnandinn James Corden er með einn vinsælasta dagskrá lið heims í spjallþætti sínum sem ber nafnið Carpool Karaoke.

Sjö ára drengur grillaði dómarana í America´s Got Talent
JJ Pantano er sjö ára drengur sem kom heldur betur á óvart í raunveruleikaþáttunum America´s Got Talent: The Champions.

Jennifer Aniston kom aðdáendum Friends á óvart í Central Perk
Jennifer Aniston leysti af Ellen í spjallþætti þeirrar síðarnefndu á dögunum.

Jimmy Kimmel og Fallon börðust við tárin þegar þeir minntust Kobe Bryant
Spjallþáttastjórnandinn Jimmy Kimmel minntist Kobe Bryant og 13 ára dóttur hans Gianna í spjallþætti sínum í gærkvöldi.

Tilfinningaþrunginn flutningur Demi Lovato þegar hún sneri aftur
Demi Lovato kom fram á Grammy-verðlaunahátíðinni og það í fyrsta sinn eftir að hún var lögð inn á spítala vegna ofneyslu fíkniefna þann 24. júlí árið 2018.

Stjörnurnar minnast Kobe Bryant og Gianna
Bandaríski körfuboltamaðurinn Kobe Bryant lést í þyrluslysi Calabasas í Kaliforníu í gærmorgun.

Billie Eilish kom, sá og sigraði á Grammy-verðlaunahátíðinni
Bandaríska tónlistarkonan Billie Eilish, sem sló eftirminnilega í gegn á síðasta ári með fyrstu plötu sinni, When We All Fall Asleep, Where Do We Go, sópaði til sín öllum stærstu verðlaununum á Grammy-verðlaunahátíðinni sem fram fór í Los Angeles í gær.

Breytir formlega um nafn
Rapparinn Sean John Combs hefur í gegnum tíðina gengið undir nöfnunum Puff Daddy, Puffy, P. Diddy, Diddy. Hann breytir reglulega um nöfn og hefur gert það í gegnum árin.

Ótrúlegur tveggja radda flutningur á einum þekktasta dúett sögunnar
Filippseyingurinn Marcelito Pomoy vakti verðskuldaða athygli í raunveruleikaþáttunum America´s Got Talent á dögunum þegar hann flutti lagið fræga Prayer.

Nikkie opnar sig í Ellen: Markmiðið var að rústa lífi mínu
Nikkie de Jager, ein vinsælasta YouTube-stjarna heims, er transkona. De Jager greindi frá þessu í myndbandi sem hún birti á YouTube á dögunum og sagðist hafa ákveðið að taka málin í sinar hendur eftir að óprúttnir aðilar hefðu hótað því að afhjúpa hana.

Ozzy Osbourne með Parkisonssjúkdóm
Sjúkdómurinn greindist eftir að rokkarinn gamalreyndi datt í fyrra.

Brad Pitt og Jennifer Aniston verðlaunuð í nótt
Hin suðurkóreska Parasite var talin skarta besta leikarahópnum á SAG-verðlaunahátíðinni sem fram fór í Los Angeles í nótt.

Disney tekur "Fox“ úr nafni 20th Century Fox
Framkvæmdastjórn Disney hafa ákveðið að taka "Fox“ úr nafni 20th Century Fox kvikmyndaversins, sem er í eigu Disney, og telja margir það vera til að fjarlægja kvikmyndaverið frá fyrrverandi eiganda þess, Rupert Murdoch.

Tók þátt í umfangsmiklum njósnum Harvey Weinstein: „Ég var bara að vinna vinnuna mína“
Seth Freedman, sem starfaði fyrir einkaspjæjarafyrirtækið Black Cube, kveðst ekki sjá eftir neinu af því sem hann gerði í störfum sínum fyrir fyrirtækið.

Alan Walker og Viivi Niemi mættu með einkaþotu og nutu sín í botn
Tónlistamaðurinn Alan Walker og kærasta hans Viivi Niemi voru á dögunum hér á landi í fríi og nutu sín greinilega í botn.

Samtök kvikmyndagagnrýnenda verðlaunuðu Hildi Guðnadóttur
Tilkynnt um tilnefningar til Óskarsverðlauna í dag.

Missti hátt í hundrað kíló með breyttum lífstíl
Leikarinn Ethan Suplee segir kraftlyftingar og betra mataræði vera ástæðuna fyrir mun betri heilsu en áður fyrr.

Ný og öðruvísi útgáfa af The Bachelor á leiðinni í loftið
The Bachelor: Listen To Your Heart er ný útgáfa af raunveruleikaþáttunum vinsælu. Þættirnir verða frumsýndir 13. apríl næstkomandi.

Segir dómarann vanhæfan í máli Weinstein
Arthur Aidala, lögmaður kvikmyndaframleiðandans Harvey Weinstein, hefur beðið dómara í kynferðisbrotamáli Weinstein um að segja sig frá málinu vegna vanhæfis.

Meyers segir allt „súper dýrt“ á Íslandi
Grínistinn Seth Meyers, sem stýrir þættinum Late Night með Seth Meyers, nefndi Ísland í þætti sínum í gærkvöldi.

Kæfði orðróma um neyslu með því að greina frá alvarlegum veikindum
Tónlistarmaðurinn Justin Bieber hefur undanfarið glímt við alvarleg veikindi, bæði lyme-sjúkdóm og einkirningasótt.

Jennifer Aniston og Brad Pitt bara vinir
Erlendir miðlar hafa töluvert fjallað um samband Jennifer Aniston og Brad Pitt og ganga sumir það langt að halda því fram að það elski hvort annað og treysta hvort öðru á ný en fimmtán ár eru liðin frá því að þau skildu.

Tom Hanks brotnaði niður í ræðu sinni á Golden Globe
Stórleikarinn Tom Hanks fékk í nótt Cecil B. DeMille-verðlaunin á Golden Globe-hátíðinni en um er að ræða heiðursverðlaun hátíðarinnar.

Jennifer Lopez var í vandræðum með nafn Hildar
Hildur Guðnadóttir tónskáld hlaut í nótt Golden Globe-verðlaunin fyrir tónlistina í kvikmyndinni Joker.

Sjáðu upphafsræðu Ricky Gervais á Golden Globes
Breski uppistandarinn Ricky Gervais lét sem fyrr allt flakka í upphafsræðu sinni á Golden Globe verðlaunahátíðinni sem fram fór í Los Angeles í nótt.

Gefa slökkviliðinu 60 milljónir til að berjast við eldana
Hjónin Nicole Kidman og Keith Urban hafa gefið slökkviliðinu í Nýju Suður Wales fimm hundruð þúsund Bandaríkjadala.

Weinstein telur sig geta átt afturkvæmt í kvikmyndabransann
Kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein telur sig geta endurreist feril sinn að réttarhöldunum yfir honum loknum muni kviðdómur komast að þeirri niðurstöðu að hann sé saklaus.

Rod Stewart ákærður fyrir líkamsárás
Breski söngvarinn Rod Stewart hefur verið ákærður fyrir líkamsárás eftir að hafa slegið til öryggisvarðar á The Breakers hótelinu í Palm Beach í Flórída.