Hvort er betra fyrir umhverfið að keyra bensín- eða dísilbíl? Þegar stjórnvöld hvöttu almenning til að keyra frekar á dísilbílum en bensínknúnum, fyrir um áratug, er eitt þekktasta dæmi þess að nauðsynlegt er að skoða umhverfismál í víðu samhengi. Skattar voru lækkaðir á dísilolíu og dísilknúnar bifreiðar til að hvetja til minni losunar á koldíoxíði í andrúmsloftið en koldíoxíð er gróðurhúsalofttegund. Losun gróðurhúsalofttegunda veldur loftslagsbreytingum á jörðinni sem leiða til súrnunar sjávar, veðurfarsbreytinga, bráðnunar jökla, hækkunar sjávarborðs, röskunar vistkerfa ásamt fleiri neikvæðum áhrifum. Heilsuvísir 26. október 2017 10:15
Ekkert kjöt á matseðlinum Einkaþjálfarinn og grænmetisætan Þórdís Ása Dungal hefur undanfarið vakið athygli fyrir að benda á að það sé óþarfi að borða kjöt til að byggja vöðvamassa og vera í góðu líkamlegu formi. Lífið leitaði til hennar og fékk að vita nákvæmlega hvað það er sem hún borðar. Heilsuvísir 19. október 2017 10:15
Laus við erfiða verki, bólgur og bjúg KYNNING Tinna Barkardóttir var aðeins 29 ára þegar hún fékk heilablóðfall og lamaðist. Hún hefur náð ótrúlegum bata á stuttum tíma, meðal annars með hjálp þrýstings- og lofttæmisnudds hjá Heilsu og útliti, Hlíðasmára 17. Lífið kynningar 19. október 2017 10:00
Hvernig er hægt að minnka líkur á brjóstakrabbameini? Þó svo að lífsstíll geti haft áhrif á áhættuna á að greinast með krabbamein þá greinist fólk sem hefur lifað mjög heilbrigðu lífi stundum með krabbamein. Heilsuvísir 19. október 2017 08:00
Hver er munurinn á kaffi og orkudrykkjum? Lesendum Vísis og Fréttablaðsins gefst kostur á því að senda sérfræðingum spurningar tengdar heilsu og lífsstíl á netfangið heilsanokkar@frettabladid.is. Í hverri viku birtast svör við völdum spurningum í Fréttablaðinu og hér á Vísi. Heilsuvísir 12. október 2017 15:30
Hvað veist þú um krabbamein? Þriðji hver einstaklingur greinist með krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni. Taktu prófið og sjáðu hvað þú veist um krabbamein á Íslandi. Heilsuvísir 11. október 2017 17:00
Verum til staðar Þegar vinur eða ættingi greinist með krabbamein vitum við stundum ekki alveg hvað við getum gert til að hjálpa. Það þarf samt ekki að vera mikið. Þetta snýst bara um að vera til staðar. Heilsuvísir 11. október 2017 16:48
Breyting á kynlífi og nánd Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, hjúkrunar- og kynfræðingur, vinnur nú að doktorsverkefni sínu um þróun meðferðarúrræða fyrir konur með krabbamein og maka þeirra, tengd kynlífi og nánd. Heilsuvísir 10. október 2017 16:30
Hvernig efli ég sjálfstraustið? Fólk með lítið sjálfstraust á gjarnan erfitt með að taka við hrósi. Taktu eftir því hvort sjálfvirka niðurrifið fer af stað þegar þér er hrósað, staldraðu við þá hugsun og skoðaðu hana. Falleg einlæg orð frá öðrum næra sjálfstraustið og það er mikilvægt að hleypa þeim orðum inn á við. Heilsuvísir 5. október 2017 16:00
Hvers vegna þurfum við að sofa? Svefn er áhugavert fyrirbæri. Salvador Dali var með þráhyggju fyrir sköpunarmætti svefns sem sést berlega í draumkenndum verkum hans og Richard Wagner var þekktur fyrir að nota svefn til að fá hugmyndir að óperum. Aðrir hafa keppst við að slá heimsmet í vöku. Peter Tripp sturlaðist eftir að hafa vakað í átta daga árið 1959 en betur fór fyrir Randy Garner sem árið 1967 var vakandi í ellefu daga. Á meðan keppnin stóð yfir sýndu þeir einkenni svefnskorts á háu stigi: athyglisbrest, einbeitingarleysi, minnisleysi, rugl, ofskynjanir og skapgerðarbreytingar. Heilsuvísir 28. september 2017 09:30
Hvað er til ráða gegn kvíða unglinga? Foreldrahús hyggst bjóða upp á ókeypis fræðslukvöld fyrir foreldra í vetur. Heilsuvísir 24. september 2017 10:00
Stundar hugleiðslu og jóga en fær útrás á racernum Sóley Stefánsdóttir stundar jóga og hugleiðslu milli þess sem hún þeysist um á racer. Hún segir hugarró jógafræðanna fara vel með útrásinni sem hún fær á hjólinu. Heilsuvísir 24. september 2017 10:00
Hvernig minnka ég plastnotkun? Allt plast sem hefur verið framleitt er enn til í einni eða annarri mynd. Í raun eyðist plast ekki heldur verður það að sífellt minni ögnum sem kallast örplast. Stór hluti af framleiddu plasti endar í sjó eða vatni, skemmir lífríki og getur valdið dauða dýra. Heilsuvísir 22. september 2017 13:00
Erfitt að bera sig saman við Photoshop Lára Rúnarsdóttir heldur námskeið í kvíðastjórnun fyrir unglinga með kundalini jóga. Íslenskar samfélagsmiðlastjörnur, sem nota Photoshop, sýna falska mynd. Samanburðurinn gangi frá mörgum. Heilsuvísir 18. september 2017 14:45
Þarf ég að taka vítamín á veturna? Takk fyrir spurninguna. Ef þú borðar mikið af ávöxtum, grænmeti, heilkornavörum, sjávarfangi, baunum, hnetum og jurtaolíum ættir þú að fá nóg af vítamínum með fæðunni, fyrir utan D-vítamín sem við þurfum að taka daglega sem fæðubót. Konur í barneignahugleiðingum þurfa auk þess að taka inn fólasín til að minnka líkur á miðtaugakerfisgöllum hjá fóstri. Heilsuvísir 14. september 2017 20:00
Missti meira en helming líkamsþyngdar með þessari litlu lífsstílsbreytingu Hinn sautján ára Elliott Hulse var orðinn 140 kíló þegar hann ákvað að taka sig í gegn og breyta um lífstíl. Heilsuvísir 13. september 2017 13:30
Hvernig tekst ég á við skammdegið? Mikilvægt er að hafa eitthvað til að hlakka til yfir dimmasta árstímann. Taktu frá tíma til að sinna því sem þú elskar að gera – og leyfðu þér að hlakka til þess! Hafðu frumkvæði að því að skipuleggja hittinga með þeim sem þér finnst gefandi að umgangast. Góðar samverustundir með skemmtilegu fólki geta virkað eins og bestu vítamínsprautur í skammdeginu. Heilsuvísir 7. september 2017 10:00
Er í lagi að gefa börnum melatónín? Læknar og vísindamenn hafa haft áhyggjur af að melatónín geti truflað hormónabúskap barna því melatónín tengist æxlunartíma sumra dýra. Það hafa ekki fundist neinar vísbendingar um slík áhrif hjá mönnum. Melatónín hefur þvert á móti reynst talsvert öruggt. Heilsuvísir 31. ágúst 2017 11:30
Sársaukinn hefur mörg andlit Málþingið Svipbrigði sársaukans verður haldið í Háskóla Íslands dagana 1. til 3. september. Þar kemur saman fólk úr ólíkum fræðigreinum og ræðir um sársauka og þjáningu frá ýmsum hliðum. Heilsuvísir 29. ágúst 2017 10:00
Öllum spurningunum var svarað á einu augnabliki Göngur vinna bæði á andlega og líkamlega þættinum. Það þekkir Guðný Björg Helgadóttir vel en hún stofnaði Gönguhóp unga fólksins nýlega. Heilsuvísir 24. ágúst 2017 10:00
Lagði stresspakkann til hliðar Eftir að hafa rekið líkamsræktarstöð fyrir konur í tuttugu ár hefur Linda Pétursdóttir tekið nýtt skref í lífinu. Með fram því heldur hún áfram að gefa fólki góð ráð um betri lífsstíl. Lífið 24. ágúst 2017 09:30
Æfa af krafti á meðgöngu Tvíburasysturnar Elín og Jakobína Jónsdætur eru afar samstíga. Þær eiga báðar þriggja ára drengi og eiga báðar von á sínu öðru barni. Að þessu sinni eru rúmar sex vikur á milli og aftur er von á drengjum. Heilsuvísir 24. ágúst 2017 08:00
Dansað af gleði Anna Claessen hefur dansað í gegnum lífið og kennt jazzballett, brúðarvals og zumba. Hún mun kynna sjóðheitt jallabina fyrir Frónbúum í vetur. Heilsuvísir 22. ágúst 2017 10:30
Átta vannýttar útivistarperlur á höfuðborgarsvæðinu Víða á stórhöfuðborgarsvæðinu er að finna skemmtileg útivistarsvæði. Sum hver eru nýtt af íbúum í næsta nágrenni, önnur af fáum. Lífið 12. júlí 2017 16:00
Ellefu góðar hjólreiðaleiðir um Rangárvallasýslu Ómar Smári Kristinsson myndlistarmaður gaf nýlega út fimmtu hjólabók sína. Að þessu sinni lýsir hann ellefu hjólreiðaleiðum um Rangárvallasýslu. Lífið 12. júlí 2017 11:30
Setti sér markmið og reif sig upp úr óhollustu og þunglyndi Bloggarinn Inga Kristjánsdóttir setti sér lífsstílsáskorun sem snýst um að ná betri andlegri og líkamlegri heilsu á 50 dögum. Áskorunina setti hún sér eftir að hafa farið langt niður eftir áföll og erfiðleika. Lífið 12. júlí 2017 09:45
Tíu ráð í átt að sykurlitlum lífsstíl Margt fólk dreymir um að minnka sykurneyslu og koma mataræðinu í lag í leiðinni. Næringarfræðingurinn Geir Gunnar Markússon lumar á góðum ráðum fyrir þá sem vilja segja skilið við sykurinn og deilir hér með lesendum tíu skotheldum ráðum í átt að sykurlitlum lífsstíl. Lífið 29. júní 2017 19:15
Gott fyrir líkamann að hlaupa úti í náttúrunni Elísabet Margeirsdóttir segir mjög mikilvægt að fara hægt af stað þegar fólk byrjar að hlaupa. Annars sé hætta á beinhimnubólgu. Henni finnst best að hlaupa á mjúkum stígum í náttúrunni, þannig hlaup séu skemmtileg upplifun. Lífið 24. júní 2017 14:00
Setti Íslandsmet í Járnmanni Hjördís Ýr Ólafsdóttir setti Íslandsmet í hálfum Járnmanni á heimsmeistaramóti í Slóvakíu. Þríþraut á hug hennar allan og fram undan eru keppnir og stífar æfingar. Heilsuvísir 16. júní 2017 11:00
Kyrrstaða eykur stoðverki Fjölmargir þjást af verkjum í stoðkerfinu. Haraldur Magnússon osteópati segir mikilvægt að brjóta daginn upp með litlum pásum til að hreyfa sig og huga að almennu heilbrigði. Heilsuvísir 30. maí 2017 11:00