Sigurþór og Guðrún Brá leiða í Kiðjaberginu Sigurþór Jónsson úr Golfklúbbi Selfoss og Guðrún Brá Björgvinsdóttir Keili eru efst eftir annan hringinn á fimtma stigamóti Eimskipsmótaraðarinnar. Golf 18. ágúst 2012 16:12
Birgir Leifur tveim höggum frá sigri Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson varð í 5.-15. sæti á móti í Áskorendamótaröð Evrópu. Mótið fór fram í Horsens í Danmörku. Golf 18. ágúst 2012 15:37
Tvöfaldur Skolli: Hinrik dómari fer yfir nokkur atriði í golfreglunum Þorsteinn Hallgrímsson hitti Hinrik Gunnarsson golfdómara á Grafarholtsvelli á dögunum þar sem Hinrik fór yfir nokkur atriði í golfreglunum. Atriðið var sýnt í golfþættinum Tvöföldum Skolla sem er á dagskrá Stöðvar 2 sport. Golf 18. ágúst 2012 09:00
Valdís Þóra í þriðja sæti fyrir lokahringinn í Finnlandi Íslensku kylfingarnir á Finnish Amateur Championship mótinu eru að standa sig vel en allir fjórir komust í gegnum niðurskurðinn og Íslandsmeistarinn Valdís Þóra Jónsdóttir er í þriðja sætinu fyrir lokahringinn. Golf 17. ágúst 2012 18:00
Birgir Leifur á meðal þeirra efstu fyrir lokadaginn í Horsens Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG er á meðal efstu manna fyrir lokakeppnisdaginn á Áskorendamótaröð Evrópu. Keppt er í Horsens í Danmörku en um er að ræða næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu. Birgir lék á 69 höggum í dag eða -3 og er hann samtals á 8 höggum undir pari. Klas Eriksson frá Svíþjóð er efstur en hann er á 11 höggum undir pari eftir að hafa leikið á nýju vallarmeti á fyrsta keppnisdeginum – 62 höggum. Golf 17. ágúst 2012 16:36
Guðrún Brá efst í kvennaflokki | pútterinn var sjóðheitur Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK er með forystu eftir fyrsta hring af þremur á stigamóti Eimskipsmótaraðarinnar í golfi, Securitas mótinu, sem fram fer á Kiðjabergsvelli. Hún lék hringinn í dag á 72 höggum, eða einu höggi yfir pari. "Það var fyrst og fremst pútterinn sem var heitur í dag, hann var að redda mér hvað eftir annað,“ sagði Guðrún Brá sem var með 26 pútt á hringnum í dag. Golf 17. ágúst 2012 16:26
Arnar Snær með vallarmet á Kiðjabergsvelli – 66 högg Arnar Snær Hákonarson úr GR setti nýtt og glæsilegt vallarmet á Kiðjabergsvelli í dag er hann lék á 66 höggum af hvítum teigum, eða 5 höggum undir pari vallar, á fyrsta hring á Eimskipsmótaröðinni. Hann bætti gamla vallarmetið um tvö högg, en það var í eigu Birgis Leifs Hafþórssonar og Örvars Samúelssonar. Arnar Snær lék skollalausan hring - fékk 5 fugla og 13 pör og var þetta jafnframt besti hringurinn hans á ferlinum. Golf 17. ágúst 2012 14:57
Andri Þór lék fyrri níu á Kiðjabergi á 3 höggum undir pari Andri Þór Björnsson úr GR hefur verið að leika best á fyrsta hring í karlaflokki á stigamóti GSÍ, sem hófst á Kiðjabergsvelli í morgun. Hann lék fyrri níu á 3 höggum undir pari - var með fimm fugla og tvo skolla. Reiknað er með að fyrsta hring ljúki um klukkan þrjú í dag. Veðrið hefur leikið við keppendur og Kiðjabergsvöllur skartar sínu fegursta. Golf 17. ágúst 2012 13:02
71 árs öldungur meðal keppenda á Eimskipsmótaröðinni Fimmta og næst síðasta stigamót sumarsins á Eimskipsmótaröðinni í golfi hófst á Kiðjabergsvelli í sól og blíðu í morgun. 50 keppendur eru skráðir til leiks, 40 í karlaflokki og 10 í kvennaflokki, og verða spilaðar 54 holur á þremur dögum. Það vakti athygli að elsti keppandinn í mótinu er 71 árs, en hann heitir Viktor Ingi Sturlaugsson úr GR. Golf 17. ágúst 2012 12:44
Íslenskir afrekskylfingar keppa í Finnlandi Arnór Ingi Finnbjörnsson úr GR og Rúnar Arnórsson úr GK eru í 23.-29. sæti eftir fyrsta hring á Finnish Amateur Championship mótinu sem hófst í gær í Finnlandi. Arnór og Rúnar léku báðir á 72 höggum eða einu höggi yfir pari Helsing golfvallarins í Finnlandi. Bjarki Pétursson úr GB lék á 74 höggum eða á þremur höggum yfir pari og er í 37.-44. sæti eftir fyrsta hring. Golf 17. ágúst 2012 09:00
Íslandsmeistarinn er farinn til Bandaríkjanna Fjórða og næstsíðasta mótið á Eimskipsmótaröðinni í golfi á þessu keppnistímabili hefst á Kiðjabergsvelli í dag. Íslandsmeistararnir í höggleik karla og kvenna eru fjarverandi á Securitas-mótinu vegna verkefna erlendis en keppni um stigameistaratitilinn er gríðarlega spennandi. Golf 17. ágúst 2012 07:00
Birgir á meðal þeirra efstu í Danmörku | -5 þegar keppni er hálfnuð Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, byrjar vel á Áskorendamótaröðinni í golfi, en keppt er í Horsens í Danmörku að þessu sinni. Birgir er á meðal efstu manna þegar þetta er skrifað en hann er samtals á 5 höggum undir pari en margir eiga eftir að ljúka leik í dag. Áskorendamótaröðin er næst sterkasta atvinnumótaröð Evrópu en Evrópumótaröðin er sú sterkasta. Golf 16. ágúst 2012 14:35
Olazabal hefur valið þrjá varafyrirliða Jose Maria Olazabal, fyrirliði Ryder-liðs Evrópu, hefur valið Thomas Björn, Darren Clarke og Paul McGinley sem þrjá af fjórum varafyrirliðum liðsins. Golf 16. ágúst 2012 13:30
Birgir Leifur verður með á Áskorendamóti í Horsens Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, verður á meðal keppenda á Áskorendamótaröðinni í golfi sem að þessu sinni fer fram í Horsens í Danmörku. Áskorendamótaröðin er næst sterkasta atvinnumótaröð í Evrópu á eftir Evrópumótaröðinni. Birgir Leifur var á biðlista fyrir mótið en komst inn í keppnishópinn í gær. Kylfingur.is greinir frá. Golf 15. ágúst 2012 16:30
Golfsamband Íslands fagnar 70 ára afmæli í dag Í dag fagnar Golfsamband Íslands að 70 ár eru liðin frá stofnun sambandsins. Föstudaginn 14. ágúst 1942 settust tíu men við borð í golfskála Golfklúbbs Íslands. Þeir voru þangað komnir sem fulltrúar klúbbanna þriggja sem lögðu stund á golfíþróttina til að stofna Golfsamband Íslands. Þetta voru fulltrúar Golfklúbbs Reykjavíkur, Golfklúbbs Akureyrar og Golfklúbbs Vestmannaeyja. Golf 14. ágúst 2012 14:30
McIlroy blés á gagnrýni með sigri á PGA-meistaramótinu Norður-Írinn Rory McIlroy vann í gær sigur á PGA-meistaramótinu í golfi sem fram fór á Kiawah eyju í Suður-Karólínu fylki í Bandaríkjunum. Golf 13. ágúst 2012 09:15
GR-stelpurnar unnu Sveitakeppnina þriðja árið í röð Golfklúbbur Reykjavíkur vann 1. deild kvenna í Sveitakeppni Golfsambands Íslands en konurnar spiluðu á Garðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. GR vann 3-2 sigur á Keili í úrslitaleiknum og vann því Sveitakeppnina þriðja árið í röð. Golf 12. ágúst 2012 18:19
GKG Íslandsmeistarar í sveitakeppni GSÍ Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar er Íslandsmeistari karla í sveitakeppni í golfi eftir sigur á Golfklúbbi Setbergs í úrslitaleik en 1. deildin fór fram á Hólmsvelli á Leiru. Þetta er í fjórða sinn sem GKG vinnur sveitakeppnina en Íslandsmeistaratitilinn kom einnig í hús 2004, 2007 og 2009. Golf 12. ágúst 2012 17:48
Rory Mcllroy efstur á US PGA Rory Mcllroy er efstur á US PGA mótinu eftir þrjá daga en leikmenn voru að ljúka síðustu holum þriðja hringsins rétt í þessu. Leik var frestað í gær vegna veðurs og í dag fóru fram síðustu holur þriðja dagsins. Golf 12. ágúst 2012 15:00
Gifti sig í miðri sveitakeppni í golfi Það var nóg að gera um helgina hjá Alfreð Brynjari Kristinssyni, liðsmanni í sveit Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar í Sveitakeppninni í golfi því hann gifti sig í gær í miðri sveitakeppni. Þetta kemur fram á kylfingur.is. Alfreð hefur sigrað í tveimur tvímenningsleikjum af þremur í mótinu hingað til en GKG hefur ekki tapað leik í mótinu til þessa og þykir líklegt til afreka. Golf 12. ágúst 2012 07:00
Úlfar landsliðsþjálfari: Mikið afrek hjá Axel Axel Bóasson náði frábærum árangri i dag þegar hann hafnaði i 8. til 12. sæti á Evrópumóti einstaklinga á Írlandi. Axel lék lokadaginn á 70 höggum og var i heildina á fimm höggum undir pari. Axel jafnaði með þessu besta árangur Íslendings á þessu sterka áhugamannamóti en Ólafur Mar Sigurðsson hafnaði einnig i 8. sæti á þessu sama móti árið 2002. Golf 11. ágúst 2012 19:29
Axel í 8. sæti og jafnaði met Ólafs: Ekki hægt annað en að vera sáttur Axel Bóasson, 22 ára kylfingur úr Keili, varð í 8. til 12. sæti á Evrópumóti áhugamanna í golfi sem lauk á Írlandi í dag. Evrópumótið er eitt sterkasta áhugamannamót sem fram fer á hverju ári og þetta er frábær árangur hjá stráknum. Golf 11. ágúst 2012 19:22
Axel kláraði á fimm höggum undir pari á Írlandi - er í 10. til 11. sæti Keilismaðurinn Axel Bóasson stóð sig frábærlega á Evrópumóti áhugamanna í golfi sem fer fram á Írlandi. Axel lék holurnar 72 á fimm höggum undir pari og er sem stendur í 10. til 11. sæti sem er frábær árangur. Golf 11. ágúst 2012 15:02
Tiger í efsta sæti með Petterson og Singh þegar PGA-mótið er hálfnað Tiger Woods er að spila vel á PGA-meistaramótinu í golfi og á fínan möguleika á að vinna sitt fyrsta risamót síðan 2008. Woods er í efsta sæti þegar mótið er hálfnað ásamt þeim Vijay Singh og Carl Pettersson. Allir hafa þeir leikið fyrstu 36 holurnar á fjórum höggum undir pari. Golf 11. ágúst 2012 11:00
Sveitakeppnin í golfi fer fram um helgina - GR á titla að verja Sveitakeppni Golfsambands Íslands í karla- og kvennaflokki fer fram um helgina og verður leikið í fimm deildum karla og tveimur deildum kvenna. Í karlaflokki verður leikin holukeppni í 1.- 4. deild en í fimmtu deild er leikinn höggleikur laugardag og sunnudag. Í kvennaflokki verður leikin holukeppni í 1. deild en 2. deildin er höggleikur. Golf 10. ágúst 2012 21:45
Axel lék mjög vel í dag Kylfingurinn Axel Bóasson lék stórvel á Evrópumóti áhugamanna í morgun og fór þriðja hring mótsins á fjórum höggum undir pari vallarins. Golf 10. ágúst 2012 11:40
Carl Petterson í forystu á PGA Svíinn Carl Pettersson er með forystu eftir fyrsta hring á PGA meistaramótinu í Bandaríkjunum og lék fyrsta hring mótsins á sex höggum undir pari vallarins. Hann hefur eins höggs forskot á landa sinn Alex Noren , Spánverjann Gonzalo Fernandez-Castano, Norður Írann Rory McIlroy og Bandaríkjamanninn Gary Woodland. Golf 10. ágúst 2012 10:13
Axel á einu undir eftir fyrsta hring á Írlandi Axel Bóasson úr Keili lék fyrsta hringinn á Evrópumóti einstaklinga á Írlandi á 71 höggi eða einu höggi undir pari. Golf 8. ágúst 2012 21:15
Íslandsmeistararnir fyrrverandi keppa á EM á Írlandi Axel Bóasson úr Keili, Kristján Þór Einarsson úr Keili og Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum hefja á morgun leik á Evrópumóti einstaklinga í golfi. Golf 7. ágúst 2012 22:15
Myndaveisla frá Einvíginu á Nesinu Þórður Rafn Gissurarson kom, sá og sigraði í Einvíginu á Nesinu sem fram fór í dag. Bráðabana þurfti til að knýja fram úrslit þar sem Arnór Ingi Finnbjörnsson, félagi Þórðar úr GR, mátti játa sig sigraðan. Golf 6. ágúst 2012 22:00