

Fótbolti
Allt það helsta sem gerist í fótbolta um víða veröld.

Nýstárlegur undirbúningur fyrir landsleik
Bosníumenn hafa farið athyglisverða leið í undirbúningi sínum fyrir komandi leik við Þýskaland í Þjóðadeild karla í fótbolta.

Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu
Gróttumenn gleðjast yfir því að hafa fengið Rúnar Pál Sigmundsson sem þjálfara meistaraflokks karla í fótbolta. Hann skrifaði undir samning til þriggja ára við félagið.

Gæti fengið sjö leikja bann fyrir rasisma í garð samherja
Rodrigo Bentancur, leikmaður Tottenham, er væntanlega á leið í langt bann fyrir kynþáttafordóma í garð fyrirliða liðsins, Sons Heung-min.

Kane gagnrýnir þá sem drógu sig út úr landsliðshópnum
Harry Kane, fyrirliði enska landsliðsins, hefur gagnrýnt þá sem drógu sig út úr landsliðshópnum fyrir næstu leiki þess. Hann segir að landsliðið sé mikilvægara en félagsliðið.

Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool
Alexis Mac Allister, leikmaður Liverpool og argentínska landsliðsins, hefur greint frá því að fyrrverandi kærasta hans hafi kært hann.

Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“
Hermann Hreiðarsson, nýráðinn þjálfari karlaliðs HK í fótbolta, segir það eitt af draumastörfunum sem að þjálfari getur fengið að taka þátt í uppbyggingu og framförum. Hann fær það verkefni að reyna stýra liðinu strax aftur upp í Bestu deildina. Eyjamaðurinn og harðhausinn Hermann setti það ekki fyrir sig að fara inn í hlýjuna í Kórnum.

Ný keppni FIFA sem enginn virðist vilja spila í
Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, tilkynnti á mánudag að dregið verði í riðlakeppni í nýrri heimsmeistarakeppni félagsliða þann 5. desember næstkomandi. Fyrirhuguð keppnin hefur sætt mikilli gagnrýni víða að.

„Vinsamlegast látið hann í friði“
Þrátt fyrir að Kylian Mbappé sé hvergi sjáanlegur í franska landsliðinu þá þarf franski landsliðsþjálfarinn engu að síður að svara spurningum um hann á blaðamannafundi liðsins.

Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út
Cristiano Ronaldo hefur enn það markmið að skora þúsund mörk á ferlinum en viðurkennir þó að tíminn sé orðinn knappur fyrir hann til að ná því.

Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni
Rúben Amorim er tekinn við sem knattspyrnustjóri Manchester United og stýrir liðinu í fyrsta sinn eftir landsleikjahlé. Þetta verður þó ekki í fyrsta sinn sem Amorim mætir á Old Trafford.

Martröð fyrir markakónginn í lokaumferðinni
Nikola Vasic varð markakóngur sænsku úrvalsdeildarinnar en liðsfélagi Hlyns Freys Karlssonar skoraði sautján mörk fyrir Brommapojkarna.

Coote dómari í enn verri málum
Ensku dómarasamtökin taka nýjustu fréttir af dómaranum David Coote mjög alvarlega en dómarinn umdeildi virðist vera kominn í enn verri mál.

Misskemmtilegt kvöld hjá íslensku konunum í Meistaradeildinni
Landsliðskonurnar Sveindís Jane Jónsdóttir og Amanada Andradóttir voru báðar í byrjunarliði liða sinna í Meistaradeildinni í kvöld.

Kanté fær fyrirliðabandið hjá Frökkum
N’Golo Kanté verður fyrirliði franska fótboltalandsliðsins í þessum landsleikjaglugga en landsliðsþjálfarinn gaf þetta út á blaðamannafundi í dag.

Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag
Howard Webb, yfirmaður dómara í enska fótboltanum, hefur viðurkennt það að myndbandsdómarar gerðu mistök í leik West Ham og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni fyrr í vetur.

Sá sem beit mótherja mætir ekki Íslandi
Milutin Osmajic, samherji Stefáns Teits Þórðarsonar hjá enska B-deildarliðinu Preston, mun ekki mæta Stefáni á laugardaginn þegar Svartfjallaland og Ísland eigast við í Þjóðadeildinni í fótbolta.

Reiddist blaðamanni: „Þú ert alveg vonlaus“
Ståle Solbakken, landsliðsþjálfari Noregs í fótbolta, fékk sig fullsaddan af ítrekuðum spurningum blaðamanns VG um Martin Ödegaard og skipaði honum að róa sig niður. „Þú ert alveg vonlaus,“ sagði Solbakken við blaðamanninn.

Furða sig á fangelsisdómnum sem forsetinn fékk
Tyrkneska fótboltafélagið Ankaragücü er ósátt við fangelsisdóminn sem fyrrverandi forseti þess, Faruk Koca, fékk fyrir að kýla dómara.

Tómas tryggði strákunum sigur á Aserum
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta skipað leikmönnum nítján ára og yngri sigraði Aserbaídsjan, 0-2, í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2025.

Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins
Daníel Tristan Guðjohnsen, yngsti sonur íslensku knattspyrnugoðsagnarinnar Eiðs Smára Guðjohnsen og Ragnhildar Sveinsdóttur, segir aðeins tímaspursmál hvenær hann muni sýna hvað í sér býr af fullum krafti inn á knattspyrnuvellinum.

Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur sektað bæði Víking R. og Breiðablik vegna hegðunar stuðningsmanna í úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitil karla í fótbolta, sem fram fór í Víkinni 27. október. Sekt heimaliðsins er þrefalt hærri en sekt útiliðsins.

Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt
ÍA var í dag sektað um 75 þúsund krónur af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ vegna ummæla Jóns Þórs Haukssonar, þjálfara karlaliðs félagsins, eftir tap fyrir Víkingi í haust.

Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC
Mark Chapman ku hafa hafnað tilboði BBC um að taka við Match of the Day af Gary Lineker þar sem hann vildi ekki deila stjórn þáttarins með Kelly Somers.

Tengdasonur Roy Keane í enska landsliðinu
Roy Keane var fyrirliði írska landsliðsins á sínum tíma. Tengdasonur hans var hins vegar valinn í enska landsliðið í fyrsta sinn á dögunum.

Íslenski risinn sem gnæfir yfir Porto: „Myndi ekki vilja gera neitt annað“
Íslenski landsliðsmaðurinn í handbolta, Þorsteinn Leó Gunnarsson, hefur stimplað sig inn í atvinnumennskuna af krafti með liði sínu Porto. Þorsteinn, sem minnti rækilega á sig með skotsýningu í landsleik Íslands gegn Bosníu á dögunum, tók skrefið út í atvinnumennskuna og samdi við sigursælasta lið Portúgal, Porto fyrir yfirstandandi tímabil frá Aftureldingu þar sem hann hefur náð að fóta sig vel og býr úti ásamt kærustu sinni.

Óþekkjanlegur Adriano: „Ég drekk á hverjum degi“
Adriano segir að ferill sinn sé mesta sóun á hæfileikum í fótboltanum. Brasilíumaðurinn glímir við alkahólisma og margir höfðu áhyggjur af honum eftir að myndband af honum þamba bjór úti á götu fór í dreifingu.

Hætt eftir drónaskandalinn
Bev Priestman er hætt sem þjálfari kanadíska kvennalandsliðsins í fótbolta eftir drónaskandalinn á Ólympíuleikunum í París.

Frönsk fótboltastjarna fékk fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot
Wissam Ben Yedder, sem lék nítján leiki fyrir franska fótboltalandsliðið á sínum tíma, hefur verið dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot.

Leika fyrir luktum dyrum í öðru landi eftir lætin í Amsterdam
Leikur Besiktas, frá Tyrklandi, og Maccabi Tel Aviv, frá Ísrael, í Evrópudeild karla í knattspyrnu fer fram fyrir luktum dyrum í Ungverjalandi. Ástæðan eru ólætin sem stuðningsmenn Maccabi voru með þegar liðið sótti Ajax heim í síðustu umferð.

Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds
Markvörðurinn Mary Earps verður fyrst knattspyrnukvenna til að fá vaxmynd af sér á hið víðfræga vaxmyndasafn Madame Tussauds.