Fótbolti

Fé­lag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið á­fall

Sindri Sverrisson skrifar
Tiago Santos hefur nú slitið krossband í báðum hnjám á aðeins tveimur árum.
Tiago Santos hefur nú slitið krossband í báðum hnjám á aðeins tveimur árum. Getty/Catherine Steenkeste

Daginn fyrir stórleikinn við Arsenal í Meistaradeild Evrópu hefur franska knattspyrnufélagið Lille, sem Hákon Arnar Haraldsson leikur með, greint frá því að portúgalski bakvörðurinn Tiago Santos sé með slitið krossband í hné í annað sinn á ferlinum.

Forráðamenn Lille eru æfir yfir niðurstöðunni í ljósi þess að leikmaðurinn sem braut á Santos þegar hann meiddist, Amir Richardson miðjumaður Le Havre, fékk ekki svo mikið sem gult spjald.

Telja þeir með öllu óskiljanlegt að hann hafi ekki fengið rautt spjald, sérstaklega í ljósi þess að myndbandsdómgæsla var á leiknum sem fram fór nú á laugardaginn í frönsku 1. deildinni.

Í yfirlýsingu forráðamanna Lille segir að félagið hafi krafist skýringa frá frönsku deildinni og franska knattspyrnusambandinu og að formaður franska sambandsins vísi málinu til aganefndar. Þá kveðst félagið vera að skoða allar lögfræðilegar hliðar málsins og hvort að félagið eigi rétt á bótum vegna málsins.

Í yfirlýsingu frá Le Havre er Santos óskað góðs bata og bent á að dómari leiksins hafi ekki talið að brot Richardson verðskuldaði refsingu.

Tiago Santos og Hákon Arnar Haraldsson mættir til að fagna með Ayase Ueda eftir mark gegn Real Betis í september.Getty/Pim Waslander

Santos er aðeins 24 ára gamall en hefur nú slitið krossband í báðum hnjám á aðeins tveimur árum því hann sleit krossband í vinstra hné í október 2024.

Lille vann leikinn 1-0 og er í 2. sæti frönsku deildarinnar en á morgun sækja Hákon og félagar Englandsmeistara Arsenal heim í Meistaradeild Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×