Íslenski boltinn

Koma Eiðs vendi­punktur: „Hafa ofur­trú á því sem hann kemur fram með“

Sindri Sverrisson skrifar
Eiður Smári Guðjohnsen sá sína menn vinna öruggan 3-0 sigur gegn Stjörnunni á laugardaginn.
Eiður Smári Guðjohnsen sá sína menn vinna öruggan 3-0 sigur gegn Stjörnunni á laugardaginn. vísir/Guðmundur

Það virðist hafa verið mikið framfaraskref fyrir KA að hafa fengið Eið Smára Guðjohnsen inn sem þjálfara í ágúst þó að liðið sé enn í bullandi fallbaráttu í Bestu deildinni.

Innkoma Eiðs Smára var til umræðu í Stúkunni á Sýn Sport Ísland í gær en brot úr þættinum má sjá hér að neðan.

Klippa: Stúkan - Umræða um KA og Eið Smára

KA tapaði gegn KR 5-3 í fyrsta leiknum eftir komu Eiðs í ágúst og gerði svo 2-2 jafntefli á útivelli gegn Fram en hefur síðan unnið þrjá af fjórum leikjum. Liðið vann Stjörnuna 3-0 í Garðabæ um helgina og tók Sigurbjörn Hreiðarsson undir það að stígandi væri í leik KA-manna, undir handleiðslu Eiðs sem er með Hallgrím Jónasson sér til halds og trausts.

„Alveg klárlega. Það eru leikmenn þarna sem að stíga upp. Hann kemur með trú þarna, leikmenn líta upp til hans, fylgja því sem hann er að segja og hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með,“ sagði Sigurbjörn.

„KA-liðið er að gera þetta mjög vel en að sama skapi mættu þeir þarna liði sem er algjörlega flatt. Alveg farið. Þeir voru nokkuð heppnir með mótherja að þessu sinni,“ sagði Sigurbjörn ómyrkur í máli í garð Garðbæinga.

KA og Þór berjast nú um að forðast að fylgja ÍBV niður í Lengjudeildina og eru KA-menn tveimur stigum fyrir ofan Þór og með mun betri markatölu. 

KA á útileik við Val næsta laugardag og tekur svo á móti ÍBV í lokaumferðinni 24. október en Þór mætir Stjörnunni á laugardaginn og sækir svo FH heim í lokaumferðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×