Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. júlí 2026 23:30 Elliot Anderson er dýrasti leikmaður í sögu Manchester City. getty/Sarah Stier Enski landsliðsmaðurinn Elliot Anderson segir að Manchester City sé aðalliðið í borginni en ekki Manchester United. Hann lét þessi ummæli falla í fyrsta viðtalinu sínu sem leikmaður City.
Anderson skrifaði undir fimm ára samning við City með möguleika á árs framlengingu. Félagið keypti hann frá Nottingham Forest fyrir 116 milljónir punda. „Ég get ekki beðið eftir því að spila fyrir þetta félag. Þetta er félag sem er byggt upp til að vinna titla og keppa meðal þeirra bestu. Það er spennandi fyrir alla leikmenn,“ sagði Anderson eftir undirskriftina. „Þeir eru sigurvegarar, þeir halda alltaf áfram og ég vil vera hluti af svoleiðis liði. Undanfarin 10-12 ár hafa þeir verið ráðandi og þess vegna vildi ég koma hingað.“ United hafði einnig áhuga á Anderson en City hafði betur í kapphlaupinu um miðjumanninn. Anderson gat ekki stillt sig um að skjóta á United sem tekur á móti City 13. september næstkomandi. „Þetta er einn stærsti grannaslagur í heimi en svo lengi sem ég hef þekkt Manchester hafa City verið kóngarnir í borginni. Þetta verður frábær viðureign og ég get ekki beðið eftir að taka þátt í henni,“ sagði Anderson. Hann var í stóru hlutverki hjá enska landsliðinu sem vann til bronsverðlauna á heimsmeistaramótinu í Norður-Ameríku. Hinn 23 ára Anderson hefur leikið sautján landsleiki. City endaði í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili en vann bikarkeppnina og deildabikarinn. City tekur á móti Bournemouth í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar sunnudaginn 23. ágúst.
Enski boltinn Manchester City Manchester United Mest lesið Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Sjá meira