

Fótbolti
Allt það helsta sem gerist í fótbolta um víða veröld.

Hetjan Hákon Rafn: „Líður virkilega vel í þessu liði“
„Virkilega góð tilfinning,“ sagði Hákon Rafn Valdimarsson aðspurður hvernig það var að verja vítaspyrnu í sínum fyrsta keppnisleik fyrir enska úrvalsdeildarfélagið Brentford.

Mbappé hakkaður: Hraunaði yfir Messi, Ísrael og fleiri
X-aðgangur frönsku fótboltastjörnunnar Kylian Mbappé fór á mikið flug snemma í morgun og rak margur upp stór augu þegar tístum fór að rigna inn um allt og ekkert.

Nuñez dæmdur í fimm leikja bann
Darwin Nuñez, framherji Liverpool, mun missa af næstu fimm landsleikjum Úrúgvæ eftir að hafa verið dæmdur í fimm leikja bann. Þá fékk framherjinn sekt upp á nærri þrjár milljónir króna.

„Svipað og þegar við tókum yfir liðið á sínum tíma“
Gylfi Þór Sigurðsson verður hluti af landsliðshópi Íslands sem mætir Svartfjallalandi og Tyrklandi í Þjóðadeild karla í fótbolta byrjun næsta mánaðar. Hann er spenntur fyrir nýrri kynslóð leikmanna í landsliðinu.

Ronaldo vantar 101 mark til að ná markmiði sínu
Hinn 39 ára gamli Cristiano Ronaldo virðist ekki vera farinn að íhuga það að leggja skóna á hilluna. Hann er einu marki frá marki númer 900 á ferlinum en hann stefnir á að skora 1000 mörk áður en skórnir fara upp í hillu. Það sem meira er, öll mörkin til þessa eru til á myndbandi.

„Krakkar“ með blys, dós kastað að dómara og grannar sakaðir um íkveikju
ÍBV, ÍR, Þór Akureyri, KFA og Vængir Júpiters hafa öll verið sektuð af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ í sumar vegna hegðunar áhorfenda. Brotin eru misalvarleg en hæsta sektin nam 100.000 krónum.

Dagskráin í dag: Víkingar taka risaskref í Andorra
Afar líklegt er að Víkingar taki stórt skref í fótboltasögu sinni í kvöld með því að tryggja sig inn í Sambandsdeild Evrópu, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Eru þrír milljarðar nóg fyrir Orra?
Landsliðsframherjinn Orri Steinn Óskarsson er afar eftirsóttur og virðist spænska félagið Real Sociedad tilbúið að leggja mest undir til að tryggja sér þennan unga Íslending.

Lárus baunar á Hareide: Erfitt að lesa í skilaboðin úr norska garðskálanum
Ummæli Åge Hareide, þjálfara íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, varðandi Aron Einar Gunnarsson, hittu ekki beinlínis í mark í Þorpinu á Akureyri.

Nýju framherjarnir náðu ekki að skora
Atlético Madrid varð að sætta sig við markalaust jafntefli á heimavelli gegn Espanyol sem þar með náði í sitt fyrsta stig í spænsku 1. deildinni í fótbolta á þessari leiktíð.

Hákon í Meistaradeildina en Elías rétt missti af henni
Hákon Arnar Haraldsson spilar í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í vetur eftir að lið hans Lille sló út Slavia Prag í Tékklandi í kvöld.

Draumabyrjun Hákonar sem varði víti fyrir Brentford
Landsliðsmarkvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson styrkti stöðu sína í kvöld í samkeppninni um aðalmarkvarðarstöðuna hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Brentford.

Sex úr Bestu í fyrsta hópi Ólafs Inga
Ólafur Ingi Skúlason, sem í sumar var ráðinn þjálfari U21-landsliðs karla í fótbolta, hefur valið hópinn sem mætir Danmörku og Wales nú í byrjun september. Báðir leikirnir fara fram á Víkingsvelli.

Spilar fótbolta til að vera í landsliðinu
„Á meðan ég get spilað fótbolta mun ég spila fyrir landsliðið,“ segir Gylfi Þór Sigurðsson sem verður með A-landsliði karla í fótbolta í komandi leikjum í Þjóðadeildinni.

Andri Lucas í Sambandsdeildina og gæti komið til Íslands
Belgíska liðið Gent er komið áfram í aðalkeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta, rétt eins og í fyrra þegar liðið var í riðli með Breiðabliki og vann báða leiki sína.

Tilkynntu Mejbri með Oasis lagi
Knattspyrnumaðurinn Hannibal Mejbri mun leika með enska B-deildarliðinu Burnley í vetur.

„Hann er betri en allir aðrir leikmenn sem United er með í þessari stöðu“
„Hann er betri en allir aðrir leikmenn sem United er með í þessari stöðu,“ segir framherjinn Troy Deeney sem hefur blandað sér í umræðuna um að Manchester United ætli sér að klófesta Raheem Sterling frá Chelsea og mögulega skipta á honum og Jadon Sancho.

Afturelding sektað vegna ummæla: „Ertu fokking þroskaheftur?“
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ hefur sektað Aftureldingu um 25 þúsund krónur vegna framkomu stjórnarmanns félagsins í garð dómara leiks liðsins við Gróttu í Lengjudeild kvenna.

Sala Bournemouth fjármagnar kaupin á Chiesa
Allt stefnir í að Ítalinn Federico Chiesa verði leikmaður Liverpool á Englandi á næstu dögum, ef ekki hreinlega verður gengið frá skiptum hans í dag. Liverpool fær Ítalann á tombóluverði sem fjármagnast að stórum hluta utan frá.

HK sektað um 250 þúsund krónur fyrir ónýta markið
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ ákvað á fundi sínum í gær að sekta HK fyrir framkvæmd félagsins á leik liðsins gegn KR.

„Gef Orra ráð ef hann spyr“
Åge Hareide landsliðsþjálfari segist almennt ekki skipta sér af því hvar leikmenn spili en er aftur á móti alltaf til í að gefa góð ráð ef leikmenn biðja um það.

„Aron kemst ekki í landsliðið á meðan hann spilar fyrir Þór“
Staða fyrrum landsliðsfyrirliðans, Arons Einars Gunnarssonar, var rædd á blaðamannafundi KSÍ fyrr í dag.

Gylfi snýr aftur í landsliðið
KSÍ hefur tilkynnt landsliðshóp Íslands fyrir komandi verkefni í Þjóðadeildinni. Stóru tíðindin eru þau að Gylfi Þór Sigurðsson er mættur aftur í landsliðið.

Keyptur á 4,5 milljarða en sparkaður illa niður sólarhring síðar
Danski landsliðsmaðurinn Matt O'Riley lék sinn fyrsta leik með enska úrvalsdeildarfélaginu Brighton í gær en kvöldið endaði alltof snemma hjá miðjumanninum.

Barcelona óttast að táningurinn hafi slitið krossband
Barcelona varð fyrir áfalli í gær þegar ungstirnið Marc Bernal meiddist í leik liðsins á móti Rayo Vallecano í spænsku deildinni.

Alisson Becker var með í ráðum
Fyrsti leikmaðurinn sem Liverpool kaupir í stjóratíð Arne Slot er georgíski markvörðurinn Giorgi Mamardashvili.

Það misstu allir af hendinni nema Stúkan og Haraldur
Guðmundur Benediktsson og sérfræðingar hans í Stúkunni fóru aðeins yfir ótrúlegt atvik í leik Fram og KA í tuttugustu umferð Bestu deildar karla í fótbolta.

„Hjartað langaði að halda áfram að eilífu“
Það urðu tímamót hjá íslenska karlalandsliðinu í fótbolta í upphafi vikunnar er markahrókurinn Alfreð Finnbogason tilkynnti að hann hefði lagt landsliðsskóna á hilluna.

Biðin eftir Gylfa ætti að enda núna
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er búið að spila síðustu átta landsleiki án Gylfa Þórs Sigurðssonar en það er von til þess að biðin eftir Gylfa endi í næsta landsliðsglugga. Hópurinn verður tilkynntur í dag.

„Sorgardagur fyrir fótboltann“
Úrúgvæski knattspyrnumaðurinn Juan Izquierdo, sem hneig niður í Copa Libertadores leik í síðustu viku, er látinn.