Upp­gjörið: Grindavík/Njarðvík - Stjarnan 1-1 | Af­mælis­barnið Ingi­björg bjargaði stigi fyrir Stjörnuna

Andri Broddason skrifar
Afmælisbarnið Ingibjörg bjargaði stigi fyrir Stjörnuna.
Afmælisbarnið Ingibjörg bjargaði stigi fyrir Stjörnuna. vísir/guðmundur

Grindavík/Njarðvík og Stjarnan gerðu 1-1 jafntefli á JBÓ vellinum þegar liðin mættust í fimmtu umferð Bestu deildar kvenna. 

Leikurinn byrjaði með látum og mikið var sótt á bæði mörk fyrstu fimmtán mínútur leiksins. 

Fyrsta mark leiksins kom úr góðri sókn Grindavíkur/Njarðvíkur þar sem Lily Anna Farkas snéri með bakið að markinu en náði að snúa sér í skot eftir fyrirgjöf frá Sophia Faith Romine. 

Eftir markið byrjaði Stjarnan að þétta að miðjunni og varð erfitt fyrir Grindavík/Njarðvík að skapa sér færi. 

Í seinni hálfleiknum byrjaði Stjarnan að leggja meiri pressu á Grindavík/Njarðvík og þó að þær héldu boltanum vel náðu þær ekki að skapa sér mikið af færum. 

Með pressunni fylgdu fín færi en það var erfitt að nýta þau þar sem varnarlína Grindavíkur/Njarðvíkur sat þétt til baka. 

Í uppbótartíma fær Stjarnan hornspyrnu þar sem Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir bíður eftir honum og lætur vaða á markið. Boltinn tekur stefnubreytingu af varnarmanni og Kellett í marki Grindavíkur/Njarðvíkur ber engum vörnum við. 

Jöfnunarmarkið staðreynd og sanngjörn úrslit leiksins þar sem bæði lið fengu færi til að nýta en geta gengið sátt frá borði með stig. 

Atvik leiksins 

Mark Stjörnunnar í uppbótartíma er óumdeilanlega atvik leiksins. Mikilvægt mark sem tryggir að Stjörnukonur fara heim í Garðabæinn stigi ríkari. Frábær sprettur hjá Sophie Faith upp vinstri kantinn sem skilaði góðu marki. 

Stjörnur og Skúrkar 

Nóg af góðum frammistöðum í blíðunni í Njarðvík. Ingibjörg verður klárlega að fá hrós fyrir eftir að eiga skotið sem tryggði Stjörnunni gott stig í Njarðvík. 

Varnarleikur Grindavíkur/Njarðvíkur stóð þétt og var þar Hannah McLaughlin sem bjargaði heimamönnum oft þegar þær lentu í vandræðum. 

Einnig átti Hildur Katrín Snorradóttir fínan leik á miðjunni þar sem hún dreifði spilinu vel þegar Grindavík/Njarðvík var með boltann. 

Heimamenn voru mikið með boltann að stórum hluta vegna hennar framlags. 

Dómarinn 

Frekar rólegur dagur á skrifstofunni hjá Ásmundi Þór Sveinssyni en þó negldi hann allar stóru ákvarðanirnar. Stjörnukonur vildu fá vítaspyrnu þegar þær voru ennþá 1-0 undir en hann réttilega dæmdi ekki neitt. 

Stemning og umgjörð 

Góð mæting í sólina í Njarðvík og gaman að heyra í stuðningsmönnum beggja liða. Nýr og flottur skjár er mættur á JBÓ völlinn sem gerði góða upplifun enn betri.

Viðtöl

„Kannski ekkert skemmtilegasti leikurinn en ég er ánægður.“ 

„Ég er mjög sáttur við að hafa haft algjöra stjórn á þessum leik í 70 mínútur.“ segir Gylfi Tryggvason um frammistöðu sinna kvenna í leiknum. 

Gylfi nefnir að hann sé ánægður með byrjunina hjá liðinu í leiknum og fannst Grindavík/Njarðvík geta verið 3-0 yfir eftir 10 mínútur. 

„Ég skil alveg upplifun áhorfenda sem fannst þessi leikur daufur og bragðlaus.“ 

Gylfi bætir við að Stjarnan sé eitt besta varnarlið deildarinnar og fáir sem skapi jafn mörg færi á móti þeim og sitt lið. 

Ósáttur við niðurstöðuna en virðir stigið 

Óskar Smári Haraldsson var ekki ánægður með útkomu leiksins en var þó ánægður með spilamennsku sinna kvenna. 

„Við settum leikinn upp í rokk og ról, það var partur af leikplaninu en við lentum undir þar.“ 

Óskar hrósaði frammistöðu liðsins en leikplanið sem sett var upp fyrir leik hafi ekki alveg gengið. 

„Auðvitað léttir að fá stigið en ég er fyrst og fremst ánægður með frammistöðu liðsins.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira