Hættir við æfingabúðir af ótta við ebólu Ágúst Orri Arnarson skrifar 20. maí 2026 22:37 Landslið Austur-Kongó ætlar ekki að taka neinar áhættur í aðdraganda HM. Manuel Velasquez - FIFA/FIFA via Getty Images Landslið Austur-Kongó hefur hætt við fyrirhugaðar æfingabúðir af ótta við ebólusmit en mikill faraldur geysar þar í landi.
Austur-Kongó er á leiðinni á HM í Bandaríkjunum og ætlaði að halda æfingabúðir í heimalandinu áður en liðið leggur af stað til Belgíu, þar sem það mun spila tvo æfingaleiki fyrir HM. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að hætta alfarið við æfingabúðirnar. Leikmennirnir munu bara hittast í Belgíu og fara þaðan til Bandaríkjanna. Sjá einnig: Lýsa yfir neyðarástandi vegna ebólufaraldursins Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur líka sett ferðabann á alla sem hafa heimsótt Austur-Kongó, Úganda eða Suður-Súdan síðustu þrjár vikur. Ferðabannið gildir næstu þrjátíu daga. Það gæti komið einhverjum stuðningsmönnum Austur-Kongó í klandur en leikmenn liðsins ættu ekki að lenda í vandræðum, því enginn leikmaður landsliðsins spilar í heimalandinu Austur-Kongó. Meðal landsliðsmanna má nefna Axel Tuanzebe (Burnley), Noah Sadiki (Sunderland), Aaron Wan Bissaka (West Ham) og Yoan Wissa (Newcastle). Þeir eru allir að klára tímabilið með félagsliðum sínum um helgina og hefðu verið á leiðinni til Austur-Kongó fljótlega eftir helgi. Austur-Kongó hefur leik á HM þann 17. júní gegn Portúgal en Kólumbía og Úsbekistan eru með þeim í riðli.
HM 2026 í fótbolta Austur-Kongó Ebóla Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Fótbolti „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti Haukur leiddi endurkomu Löwen Handbolti Fleiri fréttir Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Neitar að hafa tekið þátt í mannráni „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ „Við náðum einum af þessum stóru í ár“ „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Breiðablik - Afturelding 2-1 | Blikar bikarmeistarar í annað sinn Lagði upp á leið í undanúrslit FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Viktor skoraði í fjórða sigrinum í röð Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Sjá meira