Formúla 1

Formúla 1

Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.

Fréttamynd

Hamilton vill ekki hjálp frá Button

Lewis Hamilton, ökumaður McLaren-liðsins í Formúlu 1, vill ekki að liðið beiti liðsskipunum svo Jenson Button hjálpi honum í titilbaráttunni. McLaren hefur sagt það mögulegt að Button verði gert að hjálpa til í stað þess að sækja titilinn sjálfur.

Formúla 1
Fréttamynd

Úrhelli truflar æfingar í Belgíu

Rigning og rok settu strik í reikninginn á æfingum dagsins fyrir belgíska kappaksturinn. Enginn ók raunverulega tímatökuhringi á síðustu æfingunni þrátt fyrir að hafa sett opinbera hringtíma.

Formúla 1
Fréttamynd

Austin-brautin í Texas tilbúin í tölvuleik

Formúlu 1-brautin sem verið er að byggja í Austin í Texas í Bandaríkjunum er nú alveg að verða tilbúin. Tölvuleikjarisinn Codemasters er þó tilbúinn með brautina fyrir tölvuleikinn sem þeir hyggjast gefa út í haust. Leikurinn verður sá þriðji í röðinni frá fyrirtækinu og kallast F1 2012.

Formúla 1
Fréttamynd

Raikkönen efaðist aldrei um burði Lotus

Kimi Raikkönen, ökumaður Lotus-liðsins í Formúlu 1, segist aldrei hafa haft áhyggjur af því að liðið gæti ekki bætt árangur sinn í ár frá því í fyrra. Árið 2011 var slæmt ár fyrir Lotus. Liðið endaði í fimmta sæti langt á eftir Mercedes.

Formúla 1
Fréttamynd

Schumacher ekur sinn 300. kappakstur

Michael Schumcher mun taka þátt í sínum 300. kappakstri þegar Formúla 1 snýr aftur úr sumarfríi þann 2. september. Þá verður keppt á Spa í Belgíu en þar hefur Schumacher jafnan átt sínar stærstu stundir á Formúlu 1-ferlinum.

Formúla 1
Fréttamynd

Guðmundur Ingi Íslandsmeistari í Gokart 2012

Guðmundur Ingi Arnarson varði Íslandsmeistaratitil sinn í Gokart í dag þegar hann vann fjörugt mót á keppnisbraut AÍH í Hafnarfirði. Guðmundur vann allar loturnar þrjár og var búinn að tryggja sér titilinn eftir tvær lotur.

Formúla 1
Fréttamynd

Alonso með besta stuðulinn

Fernando Alonso er talinn lang líklegastur til að vinna heimsmeistaratitilinn í haust. Veðbankar gefa honum líkurnar 11/10. Alonso hefur nú 40 stiga forystu í heimsmeitarakeppninni þegar tímabilið er rétt rúmlega hálfnað.

Formúla 1
Fréttamynd

Raikkönen gæti farið aftur til Ferrari

Kimi Raikkönen tekur ekki fyrir að snúa aftur til Ferrari á næsta ári. Hann ók fyrir ítalska liðið í þrjú ár, 2007-2009, og varð heimsmeistari í rauðum fák árið 2007. Raikkönen ekur nú fyrir Lotus.

Formúla 1
Fréttamynd

Hamilton vann ungverska kappaksturinn

Lewis Hamilton leiddi ungverska kappaksturinn frá ræsingu og kom fyrstur yfir marklínuna nú rétt í þessu. Kimi Raikkönen ók frábærlega og endaði annar eftir að hafa sett þónokkra pressu á Lewis undir lok kappakstursins.

Formúla 1
Fréttamynd

Hamilton verður á ráspól í Ungverjalandi

Lewis Hamilton á McLaren mun ræsa á ráspól í ungverska kappakstrinum á morgun. Hamilton var heilum fjórum tíundu úr sekúndu á undan Romain Grosjean á Lotus. Romain hefur aldrei ræst ofar í Formúlu 1.

Formúla 1
Fréttamynd

Fréttaskýring: Áhrif dekkjanna á keppnina í F1

Það er ekki tekið út með sældinni að vera ökuþór í Formúlu 1 í sumar því Pirelli-dekkin hafa gert leikinn enn flóknari en hann var. Dekkin eru hönnuð þannig að þau endast skemur og árangurinn sem kreista má úr nýjum dekkjum er mun meiri en úr notuðum dekkjum. Þannig hefur leikurinn verið gerður jafnari með því að kasta öllum liðum og starfsfólki þeirra á byrjunarreit.

Formúla 1
Fréttamynd

Raikkönen hefur fundið það sem vantaði

Kimi Raikkönen, ökumaður Lotus-liðsins í Formúlu 1 segist nú hafa fundið það sem uppá vantaði svo að hann gæti kreist það besta úr bíl sínum. Kimi hefur staðið sig vel það sem af er tímabilinu og staðið þrisvar sinnum á verðlaunapalli.

Formúla 1
Fréttamynd

Hamilton enn fljótastur í Ungverjalandi

Lewis Hamilton á McLaren var fljótastur á seinni æfingum keppnisliða fyrir ungverska kappaksturinn. Þó æfingarnar hafi hafist í þurru veðri fór að rigna og brautin varð mjög sleip. Kimi Raikkönen á Lotus varð annar.

Formúla 1
Fréttamynd

Hamilton og Button fljótastir á fyrstu æfingu

McLaren-tvíeykið voru fljótastir á fyrstu æfingum fyrir ungverska kappaksturinn um helgina. Lewis Hamilton var fyrstur og Jenson Button annar. Fernando Alonso á Ferrari var þriðji og heilum 0,8 sekúndum á eftir Hamilton.

Formúla 1
Fréttamynd

Alonso hefur aldrei verið í betra formi

Það er Fernando Alonso sem hefur stolið senunni í Formúlu 1 í ár. Hann hefur unnið þrjá kappakstra á tímabilinu og leiðir heimsmeistarakeppnina með 34 stigum. Mark Webber er honum næstur með 120 stig og Sebastian Vettel þriðji með 110.

Formúla 1
Fréttamynd

Raikkönen: Óheppni hefur ekkert með málið að gera

Eric Boullier, liðstjóri Lotus-liðsins, segir lið sitt þurfa að skáka McLaren til að eiga möguleika á þriðja sætinu í heimsmeistarakeppni bílasmiða í ár. McLaren færðist upp fyrir Lotus á stigatöflunni eftir kappaksturinn í Þýskalandi.

Formúla 1
Fréttamynd

Vettel refsað og fær ekki annað sætið

Sebastian Vettel á Red Bull tók ólöglega fram úr Jenson Button á lokametrunum í þýska kappakstrinum í dag. Þetta er niðurstaða dómara mótsins. Jenson Button verður því annar í kappakstrinum.

Formúla 1
Fréttamynd

Fernando Alonso vann í Þýskalandi

Fernando Alonso á Ferrari vann þýska kappaksturinn á Hockenheim. Hann leiddi kappaksturinn frá fyrsta hring og gerði gríðarlega vel þegar Jenson Button setti á hann mikla pressu undir lok kappakstursins.

Formúla 1
Fréttamynd

McLaren vongóðir en Vettel vonsvikinn

Sam Michael, íþróttastjóri McLaren-liðsins í Formúlu 1, segir sigur í þýska kappakstrinum enn vera raunhæfan möguleika þrátt fyrir lélega tímatöku í dag. Jenson Button mun ræsa sjötti og Lewis Hamilton sjöundi.

Formúla 1
Fréttamynd

McLaren-menn efstir eftir fyrstu æfingar

Jenson Button á McLaren var fljótastur um Hockenheim-brautina í Þýskalandi í dag þegar fyrstu æfingar fyrir þýska kappaksturinn fóru fram þar í morgun. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton, var annar nánast hálfri sekúndu á eftir.

Formúla 1
Fréttamynd

Kovalainen hugsanlega á förum frá Caterham

Finnski ökuþórinn Heikki Kovalainen hjá Caterham hefur lýst því yfir að taki liðið ekki framförum á seinni hluta tímabilsins muni hann ekki aka þar á næsta ári. Samningur hans við liðið rennur út í lok árs.

Formúla 1
Fréttamynd

Ólympíuleikvanginum hugsanlega breytt í F1 braut

Umsókn um að fá að breyta ólympíuleikvanginum í London í Formúlu 1-braut hefur verið samþykkt af yfirvöldum þar. Þeir munu nú kanna þann möguleika áður en ákvörðun verður tekin um framtíð ólympíusvæðisins í kjölfar Ólympíuleikana í ágúst.

Formúla 1
Fréttamynd

Grosjean fær fimm sæta víti í Þýskalandi

Romain Grosjean hjá Lotus-liðinu fær fimm sæta viti á ráslínunni í næsta móti sem fram fer í Hockenheim í Þýskalandi um næstu helgi. Gírkassinn í Lotus-bílnum bilaði svo um hann þurfti að skipta.

Formúla 1
Fréttamynd

Bíllinn ekki áhrifavaldur í slysi De Villota

Marussia-liðið hefur lokið rannsókn sinni á því hvað olli slysi Mariu de Villota fyrir tveimur vikum. Maria er tilraunaökuþór liðsins og var að prófa bílinn á flugbraut á Englandi þegar slysið varð.

Formúla 1
Fréttamynd

Sæti Massa ekki á uppboði strax

Ferrari segist ekki vera neitt að drífa sig að finna ökumann við hlið Fernando Alonso árið 2013. Jafnvel þó Mark Webber, sem álitinn var augljós kostur fyrir Ferrari, hafi dregið sig úr keppninni um sæti Felipe Massa.

Formúla 1
Fréttamynd

Webber endurnýjar samninginn við Red Bull

Mark Webber, ökumaður Red Bull-liðsins í Formúlu 1, hefur endurnýjað saming sinn við heimsmeistaraliðið. Hann skrifaði undir árslangan samning. Liðsfélagi Webbers verður áfram Sebastian Vettel.

Formúla 1