Formúla 1

Formúla 1

Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.

Fréttamynd

Razia rekinn til að koma Bianchi að

Luiz Razia hefur verið sagt upp sem keppnisökuþór Marussia-liðsins í Formúlu 1. Aðeins mánuður er síðan hann var kynntur sem annar ökuþór þerra við hlið Bretans unga Max Chilton. Jules Bianchi mun taka sæti Razia keppnistímabilið 2013.

Formúla 1
Fréttamynd

Dæmdur ofbeldismaður ekur fyrir Force India

Þjóðverjinn Adrian Sutil mun aka fyrir Force India í kappökstrum ársins í ár en hann var staðfestur sem keppnisökuþór liðsins í dag. Jules Biachi þarf því að gera sér hlutverk tilraunaökuþórs að góðu.

Formúla 1
Fréttamynd

Missti auga í F1-árekstri en má nú keyra á ný

Maria de Villota, fyrrum æfingaökumaður í formúlu eitt, hefur fengið leyfi til þess að setjast á bak við stýrið á ný. Hún missti hægri augað í slysi í júlí í fyrra þegar hún var að prufa Marussia-formúlubíl í Cambridgeshire.

Formúla 1
Fréttamynd

Kubica fékk ekki keppnissæti í DTM

Pólski ökuþórinn Robert Kubica var hafnað af Mercedes-bílaframleiðandanum á dögnunum þegar hann fékk ekki úthlutað keppnissæti í DTM-mótaröðinni í ár. Ungstirnið Daniel Juncadella var valinn í hans stað.

Formúla 1
Fréttamynd

Perez fljótastur á öðrum degi

McLaren-nýliðinn Sergio Perez ók hraðast um brautina í Barcelona í dag. Hann, heimsmeistarinn Sebastian Vettel, Lewis Hamilton, Kimi Raikkönen og Fernando Alonso höfðu skipst á að setja besta tíma allan daginn.

Formúla 1
Fréttamynd

Rosberg fljótastur í Mercedes-bíl í Barcelona

Nico Rosberg var örlítið fljótari umhverfis brautina í Barcelona þegar Formúlu 1-liðin hófu aðra æfingalotuna á undirbúningstímabilinu í gær. Hann var 7 þúsundustu úr sekúndu fljótari en Kimi Raikkönen á Lotus.

Formúla 1
Fréttamynd

Sutil prófar Force India í Barcelona

Adrian Sutil mun snúa aftur í Formúlu 1 í vikunni því Force India-liðið hefur staðfest að þýski ofbeldismaðurinn muni fá að spreyta sig á æfingum keppnisliðanna í Barcelona.

Formúla 1
Fréttamynd

Williams frumsýndi í Barcelona

Williams F1 frumsýndi keppnisbíl sinn fyrir árið 2013 í Barcelona í dag áður en önnur æfingalota undirbúningstímabilsins hófst þar í morgun. FW25-bíllinn er uppfærð útgáfa af bíl síðasta árs enda hefur reglunum ekki verið breytt mikið milli ára.

Formúla 1
Fréttamynd

Grosjean sótti tíma hjá sálfræðingi

Lotus-ökuþórinn Romain Grosjean heimsótti sálfræðing reglulega í haust til þess að reyna að koma í veg fyrir heimskupör sín á brautinni. Honum var til að mynda bannað að keppa í Ítalíu eftir slys í upphafi belgíska kappakstursins í september.

Formúla 1
Fréttamynd

Häkkinen: Hamilton að taka mikla áhættu

Mika Häkkinen, tvöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1 og fyrrum ökuþór McLaren-liðsins, segir að Lewis Hamilton hafi tekið mikla áhættu þegar hann skipti frá McLaren til Mercedes-liðsins í vetur.

Formúla 1
Fréttamynd

Whitmarsh: Of margir kaupa sér keppnissæti

Martin Whitmarsh, liðstjóri McLaren-liðsins í Formúlu 1, hefur sagt suma keppnisökuþórana í Formúlu 1 alls ekki nógu góða og segir þá kaupa sér keppnissæti frekar en að eiga þau skilið.

Formúla 1
Fréttamynd

Völdu versta ökuþór síðustu 20 ára

Lesendur veftímaritsins Autosport hafa valið versta Formúlu 1 ökuþór síðastliðna 20 ára. Fyrir valinu varð Japaninn Takachiho "Taki" Inoue sem keppti í átján mótum árin 1994 og 1995 með ömurlegum árangri.

Formúla 1
Fréttamynd

Massa á Ferrari langfljótastur í Jerez

Felipe Massa setti besti tíma ársins á Jerez-brautinni í dag þegar hann ók hringinn 0,4 sekúndum hraðar en Romain Grosjean gerði í gær og heilli sekúndu hraðar en Jenson Button gerði fyrir tveimur dögum. Mun fleiri hringir voru eknir í dag en í gær.

Formúla 1
Fréttamynd

Nítján mót staðfest í Formúlu 1 2013

Bernie Ecclestone, alráður í Formúlu 1, hefur nú staðfest að aðeins 19 mót verða á dagskrá Formúlu 1 árið 2013. Ecclestone hefur undanfarnar vikur reynt að finna tuttugasta mótshaldarann en það hefur ekki gengið.

Formúla 1
Fréttamynd

Caterham og Marussia frumsýndu keppnisbílana

Botnliðin tvö, Caterham og Marussia, frumsýndu keppnisbíla sína á Jerez-brautinni í dag áður en fyrstu æfingar undirbúningstímabilsins hófust þar í morgun. Bæði lið fylgja sömu línum og þau notuðu í fyrra.

Formúla 1
Fréttamynd

Button fljótastur á fyrstu æfingum ársins

McLaren-liðið í Formúlu 1 hóf undirbúningstímabilið á toppnum því Jenson Button ók langhraðast um Jerez-brautina á Spáni í dag. Hann fór 0,8 sekúndum hraðar en Mark Webber á Red Bull-bíl.

Formúla 1
Fréttamynd

Newey segir frumsýningar gamaldags

Adrian Newey, yfirhönnuður Red Bull-liðsins í Formúlu 1 og einhver sigursælasti hönnuður í mótorsporti allra tíma, segir frumsýningar á nútíma Formúlu 1-bílum vera úrelltar.

Formúla 1
Fréttamynd

Mercedes og Toro Rosso frumsýndu

Mercedes-liðið í Formúlu 1 frumsýndi keppnisbíl sinn í Jerez á Spáni í dag. Á morgun hefjast þar fyrstu æfingar keppnistímabilið sem framundan er.

Formúla 1
Fréttamynd

Red Bull frumsýndi RB9-bílinn

Red Bull-liðið í Formúlu 1 frumsýndi keppnisbíl sinn sem liðið hyggist nota árið 2013 í dag. Þeir Sebastian Vettel og Mark Webber munu aka fyrir Red Bull í sumar.

Formúla 1
Fréttamynd

Ferrari og Force India frumsýndu í dag

Ferrari-liðið svipti hulunni af nýja keppnisbíl liðsins sem þeir Fernando Alonso og Felipe Massa munu aka í sumar. Bílinn kalla þeir F138 og er hann þróaður út frá hönnun bílsins sem notaður var í fyrra.

Formúla 1
Fréttamynd

McLaren frumsýndi nýjan keppnisbíl

McLaren-liðið í Formúlu 1 hefur frumsýnt keppnisbíl sinn fyrir árið 2013 sem þeir kalla MP4-28. Þeir Jenson Button og Sergio Perez munu aka bílnum, sem eins og nýi Lotus-bíllinn, svipar mjög til forvera síns.

Formúla 1
Fréttamynd

Nürburgring á dagskrá 7. júlí

Samningar hafa tekist með Bernie Ecclestone og mótshöldurum í Nürburg í Þýskalandi þar sem Nürburgring-kappakstursbrautina er að finna. Fyrr í vikunni sagði Ecclestone samninga um kappakstur þar í sumar hafa strandað.

Formúla 1
Fréttamynd

Vill verða betri ökuþór

Einn efnilegasti kappakstursökuþór Íslendinga er Hinrik Wöhler, tvítugur handboltamaður í Víkingi. Hann stefnir langt í mótorsportinu og dreymir um að spreyta sig í gókarti gegn þeim bestu í Evrópu.

Formúla 1
Fréttamynd

Lotus frumsýndi E21-bílinn í gær

Lotus-liðið í Formúlu 1 frumsýndi keppnisbíl sinn fyrir árið 2013 á vefnum í gærkvöldi. Bíllinn er byggður á bíl síðasta árs sem reyndist liðinu mjög áreiðanlegur.

Formúla 1
Fréttamynd

Þýski kappaksturinn í uppnámi

Þýski kappaksturinn í ár mun ekki fara fram á Nürburgring eins og til stóð því samningar hafa ekki náðst milli mótshaldara og Formúlu 1. Bernie Ecclestone, alráður í Formúlu 1, hefur gefið samninga upp á bátinn.

Formúla 1