Red Bull bíllinn betri en Renault vélin

Munurinn á milli Mercedes og Renault er einna greinilegastur á beinum köflum. Ricciardo telur að Red Bull bíllinn hafi meira að bjóða en Renault vélin getur gert honum kleift að sýna.
„Ekki misskilja mig, þetta er þreytandi. Þetta er erfitt vegna þess að það munurinn er svo mikill á beinu köflunum og það þarf enga hæfileika á beinu köflunum. Þetta er tilgangslaus sóun á getu. Ekki misskilja mig, það getur hver sem er hoppað um borð sem er ekki hræddur við að fara á 300 km/klst þá getur þú auðveldlega botnað Formúlu 1 bíl á beinum kafla,“ sagði Ricciardo.
„Við höfum varið tíma og peningum í að hanna bíl sem er fljótur í beygjum en sú vinna verður að engu á beinu köflunum. Það er það sem er þreytandi. En þetta er eins og þetta er,“ sagði Ricciardo.
Ricciardo vill forðast að vera of beittur í gagnrýni sinni á Renault enda er hann á sínu fyrsta tímabili hjá Red Bull.
„Ég er nýr í liðinu svo ég ætla ekki að koma hérna inn og byrja að grýta hlutum um herbergið og segja hvernig hlutirnir eiga að vera, það er annað fólk í því. Ég ek bara þeim bíl sem ég fæ. Ég trúi því að við getum snúið þessu við, þetta ár er að renna út í sandinn en fyrir 2015 hef ég trú á að við getum hiklaust bætt okkur,“ sagði Ricciardo að lokum.
Liðsfélagi Ricciardo, fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel hefur ekki verið eins varkár í gagnrýni sinni á Renault. Hugsanlega er Ricciardo að vísa til þess þegar hann segir að aðrir séu í því að grýta hlutum til og frá.
Tengdar fréttir

Nico Rosberg fyrstur í mark í Austurríki
Nico Rosberg vann keppnina í Austurríki, liðsfélagi hans Lewis Hamilton á Mercedes varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji. Fjórfaldi heimsmeistarinn Sebastian Vettel hætti keppni.

Daniel Ricciardo vann í Kanada
Daniel Ricciardo vann gríðarlega spennandi kappakstur í Kanada. Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Sebastian Vettel varð þriðji.

Samantekt frá austurríska kappakstrinum í formúlu 1
Stöð 2 Sport sýndi beint frá Formúlu 1 kappakstrinum í Austurríki í dag og eftir kappaksturinn var farið yfir það helsta sem gerðist í keppninni í dag. Nú er hægt að sjá Samantektarþáttinn hér inn á Vísi.

Renault mun ekki ná framförum fyrr en 2015
Franski vélaframleiðandinn Renault gerir ekki ráð fyrir miklum bætingum á vél sinni í ár vegna takmarkana á þróun.

Bílskúrinn: Veislan í Kanada
Kanadíski kappaksturinn í ár einkenndist af drama og skakkaföllum. Dramatíkin náði nýjum hæðum og Mercedes vann ekki.

Webber: Ricciardo ekki gert nein mistök
Ástralinn Mark Webber hrósaði samlanda sínum og arftaka hjá Red Bull, Daniel Ricciardo eftir að sá síðarnefndi vann kanadíska kappaksturinn á sunnudag.

Renault loksins með fullt afl í Kanada
Franski bílaframleiðandinn telur að vélar sínar séu nú lausar við vandamálin sem hrjáðu þær í byrjun tímabilsins.

Bílskúrinn: Harmleikur heimsmeistarans
Keppnin á Red Bull Ring brautinni í Austurríki var athyglisverð fyrir margt. Hvað kom fyrir Red Bull, hvernig er stemmingin hjá Mercedes og hvernig stóðst Williams áhlaup Mercedes?