Skemmtiferðaskip eiga að vera ávinningur fyrir samfélög – þörf á breyttri nálgun á nýrri auðlind Ásókn skemmtiferðaskipa til Íslands hefur tekið stökk eftir kóvið. Íslenskar hafnir sem eru eftirsóknarverðar í þessum tilgangi eru orðnar einskonar auðlind, jafnvel takmörkuð auðlind. Það er okkar tækifæri að þessi nýja auðlind norður í höfum getur skilað miklum hagnaði, líklega milljörðum á ári. Skoðun 19. júlí 2023 15:01
Ekki klefar heldur snagar: „Þetta er bara fyrsti áfangi framkvæmda“ Framkvæmdir sem hafnar eru í Landmannalaugum eru fyrsti áfangi í heildar endurbótum á Landmannalaugasvæðinu, byggja á verðlaunatillögu VA arkitekta og Landmótunar frá 2014 og munu að endingu falla einstaklega vel að umhverfinu. Innlent 19. júlí 2023 14:14
Ferðamaðurinn sem hneig niður á gosstöðvum látinn Ferðamaður sem hneig niður við gosstöðvarnar við Litla Hrút í gærkvöldi og var sóttur af þyrlu landhelgisgæslunnar er látinn. Innlent 19. júlí 2023 09:07
Bandarískir ferðamenn slá met Icelandair sagði frá því á dögunum að sætanýting í flugi til og frá Norður-Ameríku hafi aldrei verið betri í júní. Það stemmir vel en Bandaríkjamenn eyddu 14,14 milljörðum króna á Íslandi í júní samkvæmt tölum frá Rannsóknasetri verslunarinnar (RSV). Skoðun 19. júlí 2023 07:00
Birgitta ætlar aldrei aftur af landi brott: „Fólk þarf að fara að vakna“ Birgitta Jónsdóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata, er hætt að fljúga og segir það vera sitt framlag í baráttunni gegn loftlagsbreytingum. Hún segir fáa vilja horfast í augu við að massatúrismi sé vandamál og segist ekki eiga eftir að sakna þess að fara til útlanda, íslensk náttúra komi þar til bjargar. Innlent 19. júlí 2023 06:45
„Það er allt heimskulegt við þetta“ Nýir búningsklefar sem verið er að smíða í Landmannalaugum hafa vakið töluverða athygli. Karen Kjartansdóttir almannatengill segir klefana gera fátt annað en að skyggja á útsýnið til fjalla og þar að auki veita spéhræddum lítið skjól. Innlent 18. júlí 2023 21:22
Svíta fyrir ferðamenn í gömlu kirkjunni á Blönduósi Kirkjan í gamla bænum á Blönduósi hefur fengið nýtt hlutverk en hún er nú notuð, sem svíta fyrir ferðamenn, sem vilja prófa að gista í kirkju. Innlent 17. júlí 2023 20:30
„Ég er þakklátur fyrir að þetta fór ekki verr“ Betur fór en á horfðist þegar öflug alda strandaði bátnum Hesteyri ÍS 95 á Hornströndum og hvolfdi slöngubát sem notaður var til að flytja fólk og farangur í land. Reynslumikill skipstjórinn segist aldrei hafa séð annað eins. Innlent 17. júlí 2023 11:28
Ný Þjórsárbrú við Árnes sett í salt eins og Hvammsvirkjun Ný brú yfir Þjórsá á móts við Árnes, sem til stóð að bjóða út í haust, frestast um óákveðinn tíma eftir að virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar var fellt úr gildi. Oddvitar sveitarfélaganna beggja vegna Þjórsár vonast til að brúarsmíðin tefjist ekki of mikið og segja brúna hafa mikla þýðingu fyrir uppsveitir Suðurlands. Innlent 16. júlí 2023 22:20
Farþegaskip strandaði á Hornströndum Farþegaskip, sem var á leið frá Ísafirði til Hornstranda, strandaði þegar komið var á leiðarenda. Engin hætta var á ferðum og komust farþegar sjálfir úr skipinu. Þeir afþökkuðu ferð til baka með björgunarbát, enda komin á áfangastað. Innlent 16. júlí 2023 21:30
Gagnrýnir gestgjafaverkefni Samtaka ferðaþjónustunnar: „Þvílík skömm, þvílíkt siðleysi“ Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, skaut föstum skotum á Bjarnheiði Hallsdóttur, formann Samtaka ferðaþjónustunnar, og á Góða gestgjafa, nýtt samstarfsverkefni sem er meðal annars á vegum Samtaka ferðaþjónustunnar, í Facebook færslu sem hún birti í dag. Innlent 16. júlí 2023 15:06
Þveraði landið með föður sínum á fjórhjóli Fyrir rúmri viku síðan lagði Birna Bragadóttir af stað í ævintýraför ásamt föður sínum, Braga Guðmundssyni. Feðginin ferðuðust á fimm dögum þvert yfir Ísland á fjórhjólum, horn í horn eins og þau kalla það. Lífið 16. júlí 2023 07:00
Ferðaþjónustan flytji út gestrisni þjóðarinnar Verkefninu Góðir gestgjafar var hleypt af stokkunum á veitingastaðnum Önnu Jónu í Tryggvagötu í gær, föstudaginn 14. júlí, þar sem þau Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamálaráðherra, Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar og Arnar Már Ólafsson, ferðamálastjóri opnuðu vefsíðu verkefnisins og birtu sín póstkort á samfélagsmiðlum. Innlent 15. júlí 2023 23:12
Þrælahald Ég hef unnið núna við ferðaþjónustu síðastliðin sjö ár og verð að viðurkenna að sem leiðsögumaður með meirapróf hef ég fengið að njóta gífurlegra vellystinga fjárhagslega og andlega sem nokkru sinni um ævina. Þetta er sannkallað partý með fólki sem hefur nötrað af tilhlökkun við að koma til Íslands, frír matur og lúxushótel. Skoðun 15. júlí 2023 13:01
Ætlar að verða fyrsta sádi-arabíska konan sem hjólar hringveginn um Ísland „Ef það væri ekkert sem stoppaði mig, hvað myndi ég þá gera? Það er það sem kom upp í hugann á mér. Ég vildi upplifa alvöru ævintýri – krefjandi ævintýri. Eitthvað sem myndi ögra mér og þvinga mig til að þroskast,“ segir Yasmine Adriss sem hyggst hjóla hringveginn um Ísland á næstu vikum. Hjólaferð hennar hófst þann 4. júlí síðastliðinn en ef hún kemst á leiðarenda mun hún verða fyrsta sádi-arabíska konan sem afrekar það. Innlent 15. júlí 2023 08:00
Náttúran reyndist Skúla vel eftir fall Wow air Sjóböðin við Hvammsvík eru eins árs og verður boðið upp á dagskrá um helgina í tilefni af því. Eigandi þeirra Skúli Mogensen segist mæla með útivist og líkamlegri vinnu fyrir alla sem upplifi hverskyns áföll en sjálfur segist hann nánast þekkja hvern stein í Hvammsvíkinni eftir framkvæmdir þar. Viðskipti innlent 14. júlí 2023 15:04
Segir bílaplanið sprungið og tekur upp gjald Tekin verður upp gjaldskylda fyrir bílastæði í Reynisfjöru í næstu viku. Gestir á fólksbílum munu þurfa að greiða þúsund krónur fyrir að leggja á neðra bílastæðið við fjöruna en 750 krónur í það efra. Innlent 14. júlí 2023 06:45
Hemjum hamfarahamingjuna Í þriðja sinn á rúmum tveimur árum gýs nú á Reykjanesskaganum. Í þriðja sinn erum við tiltölulega heppin því hvorki er um að ræða mikið gosútfall sem ógnar flugi til og frá landinu eða veldur slæmu öskufalli í grennd gossins, né er gosið staðsett þannig eða af þeirri stærðargræðu að það ógni innviðum og íbúðabyggð. Skoðun 13. júlí 2023 15:01
Loka gönguleiðinni að gosstöðvunum Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um loka Meradalaleið upp að gosstöðvunum til laugardags hið minnsta. Um er að ræða einu leiðina sem göngufólki hefur verið leyft að ganga að gosinu við Litla-Hrút. Allar gönguleiðir eru því lokaðar inn á svæðið. Innlent 13. júlí 2023 10:19
Segir Hraunssels-Vatnsfell með aðgengilegasta útsýnið Almannarvarnir hófu strax í gærkvöldi að stika leið til að beina ferðafólki með sem öruggustum hætti að gosstöðvunum. Formaður Landsbjargar segir að illa hafi gengið á fá björgunarsveitafólk til starfa úr sumarfríi. Innlent 12. júlí 2023 23:35
Fólk hætti sér með ung börn í gegnum reykjarmökkinn Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að eldgosinu á Reykjanesi í dag í ágætu veðri en mjög erfiðum aðstæðum vegna mikils reyks frá gróðureldum. Dæmi eru um að foreldrar gangi með ung börn á bakinu í gegnum reykmökkinn til að komast að gosinu. Innlent 12. júlí 2023 20:34
Hættu sér upp á sjóðheitt hraunið: „Leggja líf sitt í hættu til að ná einhverju svona skoti“ Hjartaskurðlæknir fékk hland fyrir hjartað í gær þegar hann sá tvo erlenda ferðamenn ganga upp á nýjan hraunhól við Litla-Hrút þar sem skömmu áður var sprunga og glóandi hraun. Innlent 12. júlí 2023 19:22
Nóróveirur grassera í skemmtiferðaskipunum Skæðir nóróveirufaraldrar hafa ítrekað komið upp á skemmtiferðaskipum í ár. Nú síðast í skipi sem sigldi frá Íslandi til New York. Innlent 12. júlí 2023 16:50
Öryggi og velferð í Uppsveitum Sem íbúi í Uppsveitum Árnessýslu er ég mjög hugsi þessa dagana varðandi öryggi og velferð okkar hér í því samfélagi sem við búum og störfum í. Skoðun 12. júlí 2023 15:31
Landverðir verði að standa vaktina við eldgosið Dómsmálaráðherra mun kalla eftir því að landverðir standi vaktina á gosstöðvunum við Litla-Hrút til að létta undir með björgunarsveitum. Ekki sé annað hægt en að stjórnvöld stígi inn í verkefnið með einhverjum hætti. Innlent 12. júlí 2023 12:19
Met í komum skemmtiferðaskipa til Ísafjarðar Algengt er að ferðamenn sem heimsækja Ísafjörð á góðum degi séu nærri tvöfalt fleiri en fólkið sem býr í bænum. Stærstu skemmtiferðaskipin hafa þó afbókað komu sína á þessu sumri vegna tafa á stækkun Sundahafnar. Innlent 11. júlí 2023 20:22
Igor og Wojciech fyrstu ferðamennirnir að gosinu Það má segja að Pólverjarnir Igor og Wojciech séu lukkunnar pamfílar. Þeir eru fyrstu ferðamennirnir sem hleypt var inn á svæðið við gosstöðvarnar á Reykjanesi. Innlent 11. júlí 2023 16:50
„Jörðin hérna gengur bara eins og alda á sjó“ Þegar jarðskjálftar sem eiga upptök sín nálægt Kleifarvatni ganga yfir í Seltúni í Krýsuvík, þá gengur jörðin hreinlega í bylgjum. Afleiðingarnar eru grjóthrun og tómar hillur. En það sem er ívið verra að sögn landvarðar, eru klósettmálin. Innlent 11. júlí 2023 07:00
Hreiðar hyggst setja hótelbyggingu á fullt Hreiðar Hermannsson, eigandi Orustustaða í Skaftárhreppi, segir að framkvæmdir við tíu milljarða króna hótel á jörðinni fari núna fullt en hann hafði betur í dómsmáli um vegtengingu fyrir helgi. Hann vonast til að hótelið verði opnað eftir átján til tuttugu mánuði. Innlent 10. júlí 2023 23:16
Sefur í bílnum þar til hann fær að sjá gosið Eldgos er enn hafið á Reykjanesskaga, þriðja árið í röð. Áhugi fólks á því að berja náttúruöflin augum virðist þó lítið hafa dvínað. Fréttastofa ræddi við fólk sem var mætt að Keilisafleggjaranum út af Reykjanesbraut í kvöld, en lögregla lokaði veginum fljótlega eftir að gos hófst. Einhverjir héldu þó í vonina um að svæðið yrði opnað síðar í kvöld. Innlent 10. júlí 2023 20:33