Grípum alla Grindvíkinga Við Íslendingar lifum á eyju elds og ísa. Við elskum okkar land og þekkjum þess gjafir og àskoranir. Nú á þessu ári fögnum nú 80 àra líðveldi Íslands og okkur fjölgar stöðugt, íbúafjöldinn er bráðum 400.000. Fimmtungur landsmanna eru með erlent ríkisfang en hafa kosið að setjast hér að og skipta miklu máli fyrir okkar samfélag. Sum þeirra hafa flúið erfiðar aðstæður og sjá fram á betra líf hér norður í Atlantshafi. Við reynum að taka vel á móti þeim og þeirra vinna og framlag skilar þjóðarbúinu miklu. Skoðun 21. janúar 2024 20:00
Segir almannavarnir fara offari og opna eigi Grindavík á ný Stefán Kristjánsson, eigandi fiskvinnslunnar Einhamar Seafood, segir aðgerðastjórn almannavarna fara offari í lokunum í Grindavík og að opna eigi bæinn á ný. Innlent 21. janúar 2024 18:59
Ríkisstjórnin kynnir aðgerðir varðandi Grindavík á morgun Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra, lofar tillögum frá ríkisstjórn á morgun varðandi Grindavík. Skilaboðin til Grindvíkinga séu skýr: „Við ráðum við þetta og gerum það sem þarf.“ Innlent 21. janúar 2024 13:27
Pirraðir Grindvíkingar og andleg heilsa þeirra ekki góð „Það er margt sem hefði mátt fara betur og laga“ segir formaður bæjarráðs Grindavíkurbæjar vegna ástandsins í bæjarfélaginu. Þá sé heilmikill pirringur á meðal Grindvíkinga og andleg heilsa íbúa ekki góð. Innlent 21. janúar 2024 13:04
„Alvarlegra og langvinnara en menn gátu logið að sjálfum sér“ Framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Vísis í Grindavík segir þann tímapunkt runninn upp að meta þurfi hvort það sé þess virði að reyna að halda lífi í bænum með fyrirtækjarekstri. Banaslys og eldgos hafi gert það að verkum að algjör umbreyting hafi orðið á viðhorfi fólks til veru í bænum. Innlent 21. janúar 2024 13:00
Rafmagn fór af Grindavík í nótt Rafmagn fór af Grindavík kl. 03:30 í nótt, þegar stofnstrengur, sem fór undir hraun í eldgosi um síðustu helgi gaf sig. Hluti bæjarins er nú á varaafli. Innlent 21. janúar 2024 10:10
Ekkert lát á landrisi við Svartsengi Land við Svartsengi er komið talsvert hærra en áður hefur mælst á svæðinu. Nú þegar slétt vika er liðin frá hinu skammvinna eldgosi við Grindavík er ekkert lát á landrisinu. Búast má við nýju kvikuinnskoti og mögulegu eldgosi eftir nokkrar vikur. Innlent 21. janúar 2024 09:48
Ferðamenn óhræddir við að fara í nýopnað lónið Bláa lónið var opnað aftur í dag eftir að hafa verið lokað í flýti síðastliðinn sunnudag vegna eldgossins við Grindavík. Framkvæmdastjóri segir gleðitíðindi að starfsemi sé hafin að nýju og ferðamenn, þeir eru ánægðir. Innlent 20. janúar 2024 21:51
„Ég er mest feginn að hafa keyrt yfir sprunguna en ekki labbað yfir hana“ Dekkið á vinnubíl Benedikts G. Jónssonar, pípulagningameistara, pompaði niður í holu þegar jörð gaf sig í Grindavík í dag. Benedikt var fljótur að aka upp úr holunni og sakaði engan í atvikinu. Innlent 20. janúar 2024 21:01
„Nýr og breyttur veruleiki sem við ætlum að lifa með“ Bláa lónið opnaði á ný í morgun eftir vikulokun. Framkvæmdastjóri sölu- rekstrar og þjónustu Bláa Lónsins.s segir enga ónotatilfinningu á meðal starfsfólks né gesta. Nýr veruleiki blasi við og ljóst að Bláa lónið muni koma til með að opna og loka á víxl næstu árin. Innlent 20. janúar 2024 16:31
„Ekki í boði“ að starfsemi í Svartsengi leggist af Bláa lónið opnar aftur í dag eftir að hafa verið rýmt síðastliðinn sunnudag, í aðdraganda eldgossins í Grindavík. Framkvæmdastjóri samtaka ferðaþjónustunnar segir að leita verði lausna fyrir fyrirtæki í Svartsengi. Það sé ekki í boði að starfsemi þeirra leggist af. Viðskipti innlent 20. janúar 2024 11:55
Margir Grindvíkingar í óviðunandi húsnæði eða búi við óvissu Innviðaráðherra segir alltof marga Grindvíkinga enn í óviðunandi húsnæði eða búa við óvissu. Stjórnvöld skoði hvernig hægt sé að koma til móts við kröfur um að ríkið kaupi upp húsnæði bæjarbúa þó hann sé ekki tilbúinn að slá af byggð í Grindavík til framtíðar. Innlent 19. janúar 2024 23:12
Ný sprunga opnaðist í Grindavík í dag og gosið formlega búið Ný og djúp sprunga opnaðist í Grindavík í dag en hættumat Veðurstofunnar var fært niður þar sem eldgosi er formlega lokið. Fjöldi viðbragðsaðila var að störfum í bænum í dag og í fyrramálið opnar Bláa lónið á ný. Innlent 19. janúar 2024 19:33
Skoðar hvað gæti gerst ef ríkið myndi kaupa Grindavík Hildur Margrét Jóhannsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum, segir að ef stjórnvöld ákveði að láta hið opinbera kaupa íbúðir Grindvíkinga myndi það að öllum líkindum auka eftirspurn á íbúðamarkaði sem gæti hækkað íbúðaverð. Viðskipti innlent 19. janúar 2024 16:20
Hættustig fært niður á öllum svæðum Hættustig hefur verið fært niður á öllum svæðum í nýju hættumatskorti sem birtist á vef Veðurstofu Íslands rétt í þessu. Innlent 19. janúar 2024 15:28
Framlengir einnig úrræði fyrir Grindvíkinga Landsbankinn hefur ákveðið að framlengja úrræði fyrir Grindvíkinga vegna náttúruhamfaranna sem orðið hafa á Reykjanesskaga. Viðskipti innlent 19. janúar 2024 13:44
Rafmagn aftur komið á Grindavík Rafmagn er eftir komið á Grindavík eftir að hafa farið út um klukkan 7:15 í morgun vegna bilunar í stofnstreng sem liggur undir hrauni í kjölfar eldgossins um helgina. Innlent 19. janúar 2024 11:59
Rafmagnslaust eftir að stofnstrengur undir hrauni gaf sig Rafmagn fór af Grindavík á áttunda tímanum í morgun þegar stofnstrengur, sem er undir hrauni, gaf sig. Unnið er að því að koma rafmagni á bæinn. Innlent 19. janúar 2024 08:27
Allt er breytt Allt er breytt, jarðhræringarnar á Reykjanesskaga og hamfarirnar í Grindavík hafa breytt öllum forsendum byggðarþróunar á höfuðborgarsvæðinu. Við þurfum að skoða skipulagsmálin upp á nýtt. Skoðun 19. janúar 2024 08:00
„Eykur óvissuna enn og aftur“ Otti Rafn Sigmarsson, björgunarsveitarmaður hjá Þorbirni, segir að sér hafi liðið vel í Grindavík í dag þar sem hann, ásamt fleirum, vann í bænum. Vinnu við að koma hita og rafmagni á hús í Grindavík var frestað í dag vegna snjóþyngsla, en björgunarsveitir og slökkvilið voru í bænum og unnu að því að moka snjó. Innlent 18. janúar 2024 22:12
„Virðist vera að fara upp með svipuðum hraða“ Kvika heldur áfram að safnast saman undir Svartsengi og jarðeðlisfræðingur segir að á meðan landris heldur áfram gæti gosið innan næsta mánaðar. Hætta innan Grindavíkur er áfram talin mjög mikil. Innlent 18. janúar 2024 21:25
„Svo vökvuðum við blómin fyrir ykkur“ Pípararar sem yfirfóru hús í Grindavík létu sér ekki nægja að sinna lögnum heldur vökvuðu þeir líka blómin. Grindvíkingur segir gjörninginn hafa fyllt hjarta sitt af gleði. Innlent 18. janúar 2024 18:30
Drónamyndir af því þegar sprungan í grennd við Grindavík opnaðist Bandaríski jarðfræðingurinn Shawn Willsey var að lýsa gosinu við Grindavík í beinni útsendingu þegar hann kom auga á þegar jörð rofnaði nálægt bænum síðastliðinn sunnudag. Innlent 18. janúar 2024 15:44
Ekki hægt að hugsa lengra fram í tímann en klukkutíma í senn Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf, útgerðarfélags í Grindavík, segir ekki hægt að hugsa lengra fram í tímann en eina klukkustund í senn. Hann segir starfsmenn sína merkilega bratta miðað við aðstæður. Viðskipti innlent 18. janúar 2024 14:04
Hafnfirðingar bíði rólegir eftir hættumati Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar, segist bíða róleg eftir hættumati Veðurstofu Íslands og almannavarna vegna mögulegrar goshættu í byggð. Það sé væntanlegt í vor og þá verði hægt að skoða vinnu við mögulega varnargarða. Innlent 18. janúar 2024 14:00
Landris heldur áfram við Svartsengi Landris heldur áfram við Svartsengi og er hætta áfram metin mjög mikil innan Grindavíkur. Innlent 18. janúar 2024 13:47
Óvíst hvenær hægt verður að opna Bláa lónið á ný Óvíst er hvenær hægt verður að opna Bláa lónið á ný. Forsvarsmenn þess bíða eftir nýju hættumati til að hægt verði að taka ákvörðun um framhaldið. Nýja hættumatið verður birt á morgun. Þá hefur vinnu við að koma hita og rafmagni á hús í Grindavík verið frestað í dag af öryggisástæðum en mikið hefur snjóað á svæðinu. Innlent 18. janúar 2024 13:24
„Það er ekki í genum Grindvíkinga að vera upp á aðra komnir“ Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir íslenskt samfélag skulda Grindvíkingum það að rétta fram hjálparhönd og kaupi eignir þeirra. Grindvíkingar verði að fá stjórn á eigin lífi og svigrúm til að fóta sig. Það sé ekki í genum Grindvíkinga að vera upp á aðra komna. Innlent 18. janúar 2024 09:57
Framlengja úrræði vegna húsnæðislána Grindvíkinga Íslandsbanki mun framlengja það úrræði sem Grindvíkingum hefur staðið til boða um frystingu húsnæðislána og fella niður vextir og verðbætur af húsnæðislánum. Viðskipti innlent 18. janúar 2024 08:26
Gera hlé á vinnu við varnargarða Vinna við varnargarðana á Reykjanesi hefur verið stöðvuð tímabundið á meðan staðan er endurmetin. Innlent 18. janúar 2024 07:25