„Íbúar í Grindavík geta verið rólegir“ HS orka undirbýr nú varnargarða vegna mögulegs eldgoss nærri Grindavík. Yfirlögregluþjónn almannavarna segir mjög litlar líkur á að gos sem hæfist núna hefði áhrif í Grindavík með stuttum fyrirvara, því geti íbúar Grindavíkur verið rólegir. Innlent 9. nóvember 2023 21:15
Vinna hafin við undirbúning varnargarða í Svartsengi Ummerki eftir skjálftana í nótt sjást víða. Á Grindavíkurvegi eru sprungur í malbiki sem Vegagerðin vaktaði í dag og í orkuverinu í Svartsengi eru víða sprungur. Þar er hafin vinna við undirbúning varnargarða. Innlent 9. nóvember 2023 20:30
Enginn hafi sofið af sér erfiða og langa jarðskjálftahrinu Íbúar í Grindavík lýsa erfiðri nótt og einhverjir pökkuðu jafnvel í töskur. Bláa lóninu var lokað eftir mikla og tíða skjálftavirkni á svæðinu, sá stærsti var 4,8 að stærð Innlent 9. nóvember 2023 19:22
Lokun Northern Light Inn: Fjölmiðlaumfjöllun „ekki í neinu samræmi við raunveruleikann“ Hótelið Northern Light inn, sem staðsett er við Svartsengi hefur farið að frumkvæði Bláa lónsins og verður lokað næstu vikuna. Eigandi hótelsins segir lokunina þó einungis stafa af umfjöllun fjölmiðla um ástandið á Reykjanesskaga vegna jarðhræringa. Innlent 9. nóvember 2023 19:01
Hægt að nota pastavatn til að hita upp eldhúsið HS Veitur hafa birt ábendingar til íbúa á Suðurnesjum vegna mögulegs langtíma þjónusturofs veitukerfa vegna náttúruhamfara. Fólki er meðal annars bent á að lágmarka notkun þvotta-, og uppþvottavéla og draga fyrir glugga þegar ekki er sólskin. Innlent 9. nóvember 2023 14:56
Bygging varnargarða bíði tillögu „Er ekki orðið tímabært að fara að ráðum þessara sérfræðinga og að minnsta kosti, taka einhverja ákvörðun og helst þá að hefja framkvæmdir til að verja byggð og aðra innviði?“ spurði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnartíma í dag. Innlent 9. nóvember 2023 14:40
Nokkuð jafnt landris þó hröðunin sé ólík Stórir skjálftar á Reykjanesinu í nótt þarf ekki að þýða aukinn hraða á kvikusöfnun. Skjálftarnir eru dæmi um hviðakennda skjálftavirkni sem búast má við meðan að kvikusöfnun er í gangi. Landið rís nokkuð jafnt þó hröðun mælist ólík á milli daga. Innlent 9. nóvember 2023 13:52
Engin merki um að kvika sé að færast ofar þrátt fyrir stóru skjálftana Frá miðætti hafa á þriðja tug jarðskjálfta mælst yfir þremur að stærð og þar af hafa sjö mælst fjórir að stærð og jafnvel stærri. Stærsti skjálftinn upp á 4,8 að stærð reið yfir klukkan 0:46 í nótt og svo fylgdi fjöldinn allur af stórum eftirskjálftum. Stóri skjálftinn í nótt er sá stærsti frá upp hafi jarðskjálftahrinunnar 25. október. Innlent 9. nóvember 2023 12:33
Telur að Grindvíkingar ættu að sofa annars staðar en heima hjá sér Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjalla- og bergfræði við Háskóla Íslands segir að réttast væri að rýma Grindavík eins og hægt sé. Hann segir jafnframt að ekki sé seinna vænna að koma upp varnargörðum til að verja bæinn. Innlent 9. nóvember 2023 12:26
„Nóttin var vægast sagt hræðileg“ Hljóðbrot sem Lilja Ósk Sigmarsdóttir, íbúi í Grindavík náði þegar stór skjálfti reið yfir í nótt, sýnir raunveruleikann sem íbúar búa við þessa dagana. Hún segir nóttina hafa verið hræðilega og taugakerfið orðið ansi marið. Innlent 9. nóvember 2023 12:09
Bláa lóninu lokað í viku en starfsmenn fá greitt og gestir endurgreitt Forsvarsmenn Bláa lónsins hafa ákveðið að loka starfstöðvum sínum í Svartsengi í eina viku, þrátt fyrir að viðbúnaðarstig almannavarna hafi ekki verið aukið. Innlent 9. nóvember 2023 07:23
Skelkaðir hótelgestir við Bláa lónið láti sækja sig vegna skjálftanna Leigubílstjórar á Reykjanesskaga ferja nú gesti af hóteli Bláa lónsins sem eru óttaslegnir vegna stórra jarðskjálfta á svæðinu, sem fóru að gera vart við sig upp úr miðnætti. Innlent 9. nóvember 2023 01:50
„Það er líklegra en ekki að það verði ekki svarta myndin“ Víðir Reynisson, sviðstjóri almannavarna hjá Ríkislögreglustjóra, sagði mikilvægt að muna að svartasta sviðsmyndin væri ekki sú líklegasta, þegar hann ræddi jarðhræringar á Reykjanesskaga á íbúafundi í Stapa í Reykjanesbæ í kvöld. Innlent 8. nóvember 2023 21:38
Bein útsending: Upplýsingafundur í Stapa vegna jarðhræringa Upplýsingafundur vegna jarðhræringa á Reykjanesi verður haldinn í Stapa Hljómahöll klukkan 20 í kvöld. Fylgjast má með fundinu í beinni hér á Vísi. Innlent 8. nóvember 2023 19:00
Svona gætu varnargarðar við Svartsengi litið út Starfshópur verkfræðinga og fræðimanna hefur gert greiningu á innviðum og skilað af sér tillögum að varnargörðum vegna mögulegs eldgoss á Reykjanesskaga. Innlent 8. nóvember 2023 18:55
Fimm rúmmetrar streyma í sylluna á hverri sekúndu Um það bil 1200 jarðskjálftar hafa mælst síðasta sólahring, flestir á svæðinu milli Þorbjörns og Sýlingarfells svipað og daginn áður. Stærsti skjálftinn var 3,4 að stærð klukkan 00:31 í nótt skammt sunnan við Þorbjörn. Innlent 8. nóvember 2023 14:55
Upplýsingafundur um jarðhræringarnar í Hljómahöll í kvöld Í hinu sögufræga félagsheimili Stapa, stærsta sal Hljómahallar, verður haldinn upplýsingafundur vegna jarðhræringa og landriss við Grindavík. Fundurinn hefst klukkan átta en einnig verður hægt að fylgjast með honum í beinni útsendingu á fréttavef okkar Vísi og í sjónvarpinu á stöð 2 Vísi. Innlent 8. nóvember 2023 13:40
Flúði skjálftana og komin í hjólhýsi í Árbænum Sigríður Jónasdóttir, íbúi í Grindavík, hefur fengið sig fullsadda af skjálftahrinunni á Reykjanesi og er flutt í borgina. Þar býr hún nú í hjólhýsi í garðinum hjá tengdaforeldrum dóttur sinnar. Innlent 8. nóvember 2023 09:00
Fjörutíu skjálftar í nótt á Reykjanesinu Fremur rólegt er á um að litast á skjálftatöflum Veðurstofunnar þennan morguninn. Innlent 8. nóvember 2023 07:12
„Miklu hraðara innflæði og hraðara landris“ Land heldur áfram að rísa við Þorbjörn. Fagstjóri náttúruvöktunar segir ástandið núna öðruvísi en undanfarin ár þegar gosið hefur á Reykjanesi. Nú flæði kvika mun hraðar og landris sé hraðara. Innlent 7. nóvember 2023 19:36
Ekkert stressuð yfir jarðhræringum í bakgarðinum Viðbragðs- og rýmingaráætlanir hafa verið æfðar í skólanum í Grindavík undanfarið en nemendur þar segjast þó ekki hafa miklar áhyggjur af jarðhræringunum í bakgarðinum. Innlent 7. nóvember 2023 18:40
Skoða hvort þörf sé á fleiri mælum við Þorbjörn Sérfræðingar Veðurstofunnar funduðu með lögreglu, almannavörnum og öðrum hagsmunaaðilum vegna stöðunnar við Svartsengi vegna mögulegs eldgoss. Engar stórar breytingar eru frá því í gær. Innlent 7. nóvember 2023 12:45
Upplýsum ferðamenn Á heimasíðu Bláa lónsins kemur í dag fram að óvissustigi hafi verið lýst yfir vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Þar kemur einnig fram að allar byggingar á svæðinu eigi að þola jarðskjálfta. Á heimasíðunni er ekkert minnst á hættu á eldgosi. Skoðun 7. nóvember 2023 09:01
Kynnisferðir hætta ferðum í Bláa lónið Forsvarsmenn Kynnisferða hafa ákveðið að hætta ferðum í Bláa lónið frá og með hádegi á morgun. Framkvæmdastjóri segir það gert með öryggi starfsmanna og gesta að leiðarljósi. Staðan verður endurmetin eftir þrjá daga. Innlent 6. nóvember 2023 20:46
Varaaflsvélar komnar til Grindavíkur Fyrstu tvær varaaflsvélarnar eru komnar til Grindavíkur. Sviðsstjóri rafmagnssviðs HS veitna segir þær hluta af undirbúning fyrir verstu sviðsmyndina ef til eldgoss kæmi og ekkert rafmagn né hiti kæmi frá Svartsengi. Innlent 6. nóvember 2023 20:06
Finnur fyrir óöryggi hjá starfsfólki Bláa lónsins Framkvæmdastjóri Bláa lónsins telur að hægt væri að rýma svæðið innan klukkustundar ef til þess kæmi. Þessa dagana er gestafjöldi yfir tvö þúsund manns á hverjum degi. Mikil áhersla er lögð á að undirbúa starfsfólk fyrir mismunandi sviðsmyndir, en lóninu hefur verið skipt upp í tíu rýmingarsvæði. Innlent 6. nóvember 2023 18:12
Svona var upplýsingafundur almannavarna vegna jarðhræringa Almannavarnir boða til upplýsingafundar í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð klukkan 15 vegna jarðhræringanna á Reykjanesinu. Innlent 6. nóvember 2023 14:01
Land risið um sjö sentimetra Frá 27. október hefur land risið um sjö sentimetra samkvæmt GPS-mælistöð á fjallinu Þorbirni. Aflögunin verður vegna kvikusöfnunar í syllu á um fimm kílómetra dýpi. Innlent 6. nóvember 2023 13:39
Varar við því að ala óþarflega á ótta vegna mögulegs eldgoss Formaður Landsbjargar varar við því að ala of á ótta íbúa í Grindavík. Ástandið sé alvarlegt en viðbragðsaðila tilbúna og sérfræðinga fylgjast vel með stöðunni allan sólarhringinn. Skjálftavirkni er stöðug við Þorbjörn og landris sömuleiðis. Innlent 6. nóvember 2023 13:01
Birta leiðbeiningar til íbúa á Reykjanesi Björgunarsveitin Suðurnes hefur birt svör við ýmsum spurningum íbúa um hvað sé best að gera til að undirbúa sig heima fyrir ef það fer að gjósa við Svartsengi. Íbúar eru hvattir til að kynna sér viðbragðsáætlanir. Boðað hefur verið til upplýsingafundar almannavarna klukkan 15:00 í dag. Innlent 6. nóvember 2023 11:52