Lífið

Lýsa eftir bangsanum Bangsa: „Sárt saknað af litlum eig­anda“

Lovísa Arnardóttir skrifar
Bangsi er brúnn á litinn og er klæddur í gráan og bláköflóttan bol.
Bangsi er brúnn á litinn og er klæddur í gráan og bláköflóttan bol.

Lögreglan á Suðurnesjum hefur lýst eftir bangsanum Bangsa. Í tilkynningu frá embættinu á Facebook segir að vinur lögreglunnar, Adam, hafi haft samband til að tilkynna hvarf hans.

Talið er líklegt að bangsinn sé einhvers staðar á svæðinu í kringum leikskólann Garðasel. Leikskólinn er í Hólmgarði í Reykjanesbæ.

„Bangsi (sjá mynd) hefur fylgt honum hvert sem er, hvern einasta dag frá rúmlega 8 mánaða aldri og er honum mjög kær,“ segir í tilkynningu lögreglunnar og að hans sé sárt saknað af „litlum eiganda“. 

Hafi fólk upplýsingar um Bangsa er það beðið að leita til lögreglunnar með þær. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.