Vill að Sindra verði gert að birta dóminn á Twitter Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, vill að forsendur dóms í máli gegn Sindra Þór Sigríðarssyni Hilmarssyni verði birtar á Twitter. Málið varðar meint ærumeiðandi ummæli Sindra um tónlistarmanninn en aðalmeðferð fer fram þann 18. janúar næstkomandi. Innlent 6. janúar 2022 19:03
Stjórnvöld ætla ekki að áfrýja Íslensk stjórnvöld ætla ekki að áfrýja ógildingu Héraðsdóms Reykjavíkur á úrskurði endurupptökunefndar í máli Erlu Bolladóttur. Það þýðir að hún geti farið með sitt mál fyrir nýjan endurupptökudómstól og þaðan í Hæstarétt. Innlent 6. janúar 2022 14:02
„Saman munum við mæta þessari stefnu Ingólfs af hörku“ Fyrsta meiðyrðamálið sem Ingólfur Þórarinsson tónlistarmaður hefur höfðað er á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur þann 18. janúar næstkomandi. Málið er höfðað gegn Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni sem birti færslu um efnið á Twitter-síðu sinni fyrr í dag. Þar kvaðst hann ætla að mæta Ingólfi af hörku. Innlent 5. janúar 2022 20:07
Kærir úrskurð um rúmlega þrjátíu daga sóttkví til Landsréttar Úrskurður í máli manns sem verið hefur í sóttkví síðan 11. desember síðastliðinn féll í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Héraðsdómari taldi sóttkvína standast, en lögmaður mannsins segir að til standi að kæra úrskurðinn til Landsréttar. Innlent 5. janúar 2022 19:15
Fyrsta meiðyrðamál Ingólfs á dagskrá dómstóla Fyrsta meiðyrðamálið, sem Ingólfur Þórarinsson hefur höfðað vegna ummæla sem féllu um hann á samfélagsmiðlum síðasta sumar, er á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur 18. janúar næstkomandi. Innlent 5. janúar 2022 11:47
Sýknaður af mismunun gegn transkonu á Hverfisbarnum Fyrrverandi dyravörður á Hverfisbarnum var sýknaður af mismunun. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa vísað Sæborgu Ninju Urðardóttur, transkonu, af skemmtistaðnum vegna kynvitundar hennar. Innlent 4. janúar 2022 10:28
Erla Bolla vann orrustu: „Ég fer ekki að hætta núna“ Héraðsdómur Reykjavíkur felldi rétt í þessu úr gildi úrskurð endurupptökunefndar sem hafnaði beiðni Erlu Bolladóttur um endurupptöku máls hennar árið 2017. Erla Bolladóttir kallaði „yes!“ þegar niðurstaðan var kunngjörð í dómsal í morgun. Svo streymdu tárin. Innlent 4. janúar 2022 10:22
Gripinn með gríðarlegt magn barnakláms sem uppgötvaðist fyrir tilviljun Karlmaður búsettur á höfuðborgarsvæðinu hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi, þar af fimmtán mánuði skilorðsbundna, fyrir að hafa 132 þúsund ljósmyndir og rúmlega fimm þúsund kvikmyndir sem sýndu börn á kynferðislegan og klámfengin hátt í vörslum sínum. Innlent 3. janúar 2022 20:50
Þríbólusettur og í 23 daga sóttkví gefst ekki upp fyrir dómstólum Þríbólusettur einstaklingur sem þarf samkvæmt úrskurði héraðsdóms að sæta sóttkví í 23 daga hefur kært niðurstöðuna til Landsréttar. Viðkomandi segist hafa verið útsettur fyrir smiti á heimili sínu frá 10. desember án þess að smitast. Það staðfesti fjölmörg PCR-próf sem hann hafi farið í. Innlent 29. desember 2021 15:15
Héraðsdómur staðfesti ákvörðun sóttvarnalæknis um einangrun Héraðsdómari hefur staðfest ákvörðun sóttvarnalæknis um tíu daga einangrun í tilfelli fimm einstaklinga sem greinst hafa með kórónuveiruna. Lögmaður fólksins segir það verða skoðað hvort farið verði með málið lengra. Innlent 29. desember 2021 09:34
Ómíkron kalli á breytingar á einangrun Fimm hafa kært ákvörðun sóttvarnalæknis um að skikka þá í einangrun vegna Covid-19. Aðalmeðferð í málum þeirra fer fram í dag en niðurstaðan gæti orðið til þess að endurskoða þyrfti alla nálgun á sóttvarnatakmarkanir á Íslandi. Innlent 27. desember 2021 12:08
Vilja ákvarðanir um einangrun felldar úr gildi: „Það er nauðsynlegt að það sé látið á þetta reyna“ Fimm einstaklingar hafa kært ákvörðun sóttvarnarlæknis til að láta reyna á lögmæti þess að fólk sem smitað er af kórónuveirunni sé skikkað í einangrun. Aðalmeðferð í málunum fimm fer fram á morgun. Innlent 26. desember 2021 18:38
Milljarða tjón vegna saknæmrar háttsemi dómara Íslenska ríkið og bandaríska flugvélaleigan ALC hafa verið dæmt til að greiða Isavia 2,5 milljarða króna í tengslum við deilu Isavia og ALC um yfirráð yfir flugvél flugfélagsins sáluga Wow air. Héraðsdómur Reykjavíkur telur að dómari við Héraðsdóm Reykjanes hafi komist að rangri niðurstöðu með saknæmum hætti í deilunni. Viðskipti innlent 23. desember 2021 13:31
Finnur ekki eiginkonuna og krefst skilnaðar Íslenskur karlmaður segist ekki hafa hitt eiginkonu sína í sextán ár og krefst því skilnaðar. Stefnan var nýlega birt í Lögbirtingablaðinu enda hefur manninum ekki tekist að hafa uppi á eiginkonunni til að birta henni stefnuna með hefðbundnum hætti. Innlent 22. desember 2021 18:42
Brúneggjamálinu vísað frá dómi Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað máli tveggja helstu hluthafa í Brúnegg ehf gegn Ríkisútvarpinu og MAST frá dómi. Innlent 22. desember 2021 16:13
Vanræksla í æsku og grípa hefði þurft mun fyrr inn í 22 ára karlmaður hefur verið dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir tvö kynferðisbrot og rán. Héraðsdómur segir nauðsynlegt að maðurinn leiti sér aðstoðar en hann glímir meðal annars við neysluvanda og persónuleikaröskun vegna ítrekaðra áfalla í æsku. Innlent 22. desember 2021 15:05
Tryggingastofnun hafði betur gegn Gráa hernum Íslenska ríkið var sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli Gráa hersins gegn Tryggingastofnun. Grái herinn hefur þegar ákveðið að áfrýja málinu til Landsréttar og Hæstaréttar ef til þess kemur. Innlent 22. desember 2021 13:24
Sorpa dæmd til að greiða níutíu milljónir vegna útboðsklúðurs Sorpa þarf að greiða Íslenskum aðalverktökum 89,4 milljónir vegna útboðsins á byggingu Gaju, gas- og jarðgerðarsstöð Sorpu á Álfsnesi. Héraðsdómur telur Sorpu ekki hafa gætt jafnræðis á milli bjóðenda í verkið. Innlent 21. desember 2021 10:58
Húsfélag fær 36 milljónir vegna galla Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hefur verið dæmt til að greiða húsfélaginu Lundi 2-6 í Kópavogi 36 milljónir vegna galla í þakplötu á bílastæðahúsi sem fylgdi íbúðum í húsunum. Neytendur 20. desember 2021 11:10
Börn og eiginkona fá bætur vegna húsleitar Landsréttur féllst á að greiða bæri konu, auk ólögráða barna hennar, bætur vegna húsleitar á heimili þeirra. Aðgerðir lögreglu beindust að eiginmanni konunnar en hann var þar að auki faðir barnanna, sem kröfðust bóta vegna aðgerða lögreglu. Innlent 19. desember 2021 07:48
Stjúpmóðir sökuð um að hafa haft stjúpbörn sín í nauðungarvinnu Kona hefur verið ákærð fyrir mannsal en hún er sökuð um að hafa haft fjögur stjúpbörn sín í þrælkunarvinnu. Málið var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjaness fyrr í þessum mánuði, eftir ákæru héraðssaksóknara. Innlent 18. desember 2021 15:49
Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir ítrekaðan ölvunarakstur Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja ára og tveggja mánaða fangelsi fyrir ítrekaðan ölvunarakstur þegar hann hafði auk þess verið sviptur ökuréttindum. Landsréttur dæmdi í málinu í gær og þyngdi dóm héraðsdóms talsvert. Innlent 18. desember 2021 07:59
„Vonandi eru þetta endalokin nú í desember 2021“ Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða tveimur sakborningum í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum 610 milljón krónur samanlagt í bætur. Ragnar Aðalsteinsson segir um áfellisdóm að ræða yfir íslenska ríkinu. Innlent 17. desember 2021 22:00
Sýknaður en situr uppi með lögfræðikostnað Helgi Seljan og RÚV voru sótt til saka af manni sem var ósáttur við ummæli fyrrverandi eiginkonu hans sem féllu í Kastljósþætti í ágúst 2015. Helgi segir dóminn að efni til fagnaðarefni en dómaframkvæmdin er áhyggjuefni. Innlent 17. desember 2021 16:29
Trúir ekki öðru en að íslenska ríkið sjái að sér Páll Rúnar M. Kristjánsson, lögmaður dánarbús Tryggva Rúnars Leifssonar, á von á því að íslenska ríkið geri upp við dánarbú Tryggva Rúnars. Landsréttur sýknaði íslenska ríkið af bótakröfu dánarbúsinss í dag en dæmdi um leið Guðjóni Skarphéðinssyni og dánarbúi Kristjáni Viðars Júlíussonar í hag. Innlent 17. desember 2021 16:07
Eik fær ekki að áfrýja dómi Landsréttar í málinu gegn Andra Má Hæstiréttur hefur hafnað beiðni Eikar fasteignafélags um að fá leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar í máli félagsins gegn Andra Má Ingólfsson, fjárfesti og fyrrverandi aðaleiganda Primera Air. Málið varðaði kaup félagsins á Hótel 1919 af fjárfestinum árið 2016. Innherji 17. desember 2021 15:51
Ríkið dæmt til að greiða hundruð milljóna vegna Guðmundar- og Geirfinnsmálsins Íslenska ríkið þarf að greiða dánarbúi Kristjáns Viðars Júlíussonar 350 milljónir króna og Guðjóni Skarphéðinssyni 260 milljónir króna í bætur vegna Guðmundar- og Geirfinnsmálsins. Bótakröfu dánarsbús Tryggva Rúnars Leifssonar var vísað frá dómi. Innlent 17. desember 2021 14:10
Þaulskipulagðir merkjavöruþjófar dæmdir Tveir rúmenskir karlmenn hafa verið dæmdir í nokkurra mánaða fangelsi fyrir að hafa látið greipar sópa í ýmsum verslunum víðs vegar um landið á skipulagðan hátt. Þeir virðast hafa verið sólgnir í úlpur og aðra merkjavöru. Innlent 17. desember 2021 10:14
Þrír sakfelldir fyrir að ræna áfengi og appelsínum úr sumarbústað Þrír karlmenn hafa verið dæmdir í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa brotist inn í sumarbústað á Akureyri og stolið appelsínum og áfengi. Innlent 16. desember 2021 19:20
Nauðgari undir fölsku flaggi fékk mildari dóm í Hæstarétti Gabríel Varada Snæbjörnsson hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart konu á árunum 2015 til 2017. Gabríel hlaut fjögurra ára dóm í héraðsdómi og Landsrétti. Hæstiréttur mildaði dóminn um hálft ár en þyngdi lítillega bætur til brotaþola. Innlent 16. desember 2021 15:16