

Besta deild karla
Leikirnir

Stúkan valdi úrvalslið Bestu-deildarinnar: Ekkert pláss fyrir Kristal því hann fór
Sérfræðingar Stúkunnar gerðu upp tímabilið í Bestu-deild karla í gærkvöldi eftir að hinum hefðbundnu 22 umferðum lauk. Meðal þess sem var á dagskrá var að kynna úrvalslið deildarinnar sem þeri Reynir Leósson og Lárus Orri Sigurðsson settu saman.

Rúnar um fjarveru Kjartans Henry: „Ég þurfti að skilja þrjá eftir“
Það vakti mikla athygli að framherjinn Kjartan Henry Finnbogason var ekki í leikmannahópi KR þegar liðið heimsótti Íslands- og bikarmeistara Víkings í Bestu deild karla á sunnudag.

Sjáðu markaflóðið í Úlfarsárdal, endurkomu KR, sjálfsmörk Skagamanna og öll hin
Lokaumferð hefðbundinnar deildarkeppni Bestu deildar karla í fótbolta fór fram í gær, sunnudag. Alls voru 26 mörk skoruð í leikjunum sex, þar af tólf í Grafarholti þar sem Fram og Keflavík mættust.

Tristan Freyr sleit krossband í annað sinn á aðeins tveimur árum
Tristan Freyr Ingólfsson, varnarmaður Stjörnunnar í Bestu deild karla í fótbolta, varð fyrir því óláni að slíta krossband í hné á dögunum. Var hann að slíta krossband í annað sinn á jafn mörgum árum.

Svona lítur fyrsta úrslitakeppni Bestu-deildarinnar út
Ef engar breytingar hefðu verið gerðar á efstu deild karla í knattspyrnu væri Íslandsmótinu nú lokið. Breiðablik væri Íslandsmeistari og FH og ÍA væru á leið niður í Lengjudeildina. Breytingar voru hins vegar gerðar og enn eru eftir fimm umferðir af Bestu-deild karla.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Fram-Keflavík 4-8 | Ótrúlegur leikur í Úlfarsárdal
Fram og Keflavík áttu möguleika á að enda í efri helming Bestu deildar karla en þar sem Stjarnan vann sinn leik gerðist það ekki. Það fór hins vegar svo að Keflavík vann 8-4 í einhverjum ótrúlegasta leik síðari ára í efstu deild. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Umfjöllun: Víkingur-KR 2-2 | Endurkoma gestanna minnkaði möguleika Víkinga á að verja titilinn til muna
Íslandsmeistarar Víkings þurftu á sigri að halda þegar liðið tók á móti KR í lokaumferð Bestu-deildar karla áður en úrslitakeppnin tekur við. Víkingur komst í 2-0 en KR kom til baka og jafnaði 2-2 undir blálok leiksins. Mikið högg fyrir Víking sem er átta stigum á eftir toppliði Breiðabliks þegar fimm umferðir eru eftir af mótinu. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

„Þurfum að brýna stálið“
Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, var þungur á brún eftir tapið fyrir Leikni, 1-2, í fallslag í Bestu deild karla í dag. Skagamenn skoruðu öll þrjú mörk leiksins.

„Þeir mega alveg vera með boltann mín vegna, því það sést hverjir vinna í lok leiks“
Adam Ægir Pálsson, sóknarmaður Keflvíkinga, lagði upp þrjú mörk og skoraði eitt í 4-8 sigri gegn Fram.

„Höfum haldið haus og strákarnir eru að uppskera eftir því“
Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis, var hreykinn af sínu liði eftir sigurinn á ÍA, 1-2, á Akranesi í dag. Leiknismenn lentu undir en komu til baka og unnu leikinn, þökk sé tveimur sjálfsmörkum Skagamanna.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: ÍA - Leiknir 1-2 | Skagamenn skoruðu öll mörkin í fallslagnum
Leiknir komst upp úr fallsæti Bestu deildar karla með 1-2 sigri á ÍA á Norðurálsvellinum á Akranesi í lokaumferð Bestu deildar karla í dag. Skagamenn skoruðu öll mörk leiksins.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur-KA 0-1 | Akureyringar fara á góðu skriði inn í úrslitakeppnina
KA gerði góða ferð á Hlíðarenda og vann 1-0 útisigur gegn Val í Bestu deild karla í knattspyrnu í dag. Jakob Snær Árnason skoraði sigurmark KA á 75.mínútu en Akureyringar sitja nú í 3.sæti deildarinnar og eru jafnir Víkingum að stigum.

Logi Tómasson: Þetta var rothögg
Víkingar fengu á sig jöfnunarmark í uppbótartíma gegn KR í Bestu deild karla í dag. Jöfnunarmarkið gerir það að verkum að Víkingar eru 8 stigum á eftir Breiðablik þegar úrslitakeppnin hefst í október. Logi Tómasson, leikmaður Víkings, var gríðarlega svekktur í leikslok.

„Þú lyftir engum titli fyrr en að mótið er búið“
„Ég geri ráð fyrir að fyrri hálfleikurinn hafi ekki verið mikil skemmtun. Það var hægt tempó en svo vorum við mjög sterkir í seinni hálfleik og ég er ánægður með liði að hafa klárað þennan leik. ÍBV-liðið er gott lið. Þannig þetta var bara flott,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, eftir 3-0 sigur á ÍBV í dag.

Eiður Smári: „Það er bara gaman að fara til Vestmannaeyja einu sinni á ári“
FH-ingar enda 22 leikja deildarkeppni í 11. og næst neðsta sæti eftir tap gegn Stjörnunni í Garðabænum í lokaumferðinni í dag. FH-ingar fara því í neðri hluta úrslitakeppninnar og þurfa að leika einum útileik meira en flest önnur lið. Eiður Smári Guðjonhsen, þjálfari FH, sér eftir þessum auka heimaleik en FH-ingar þurfa að heimsækja ÍBV til Eyja í fyrsta leik úrslitakeppninnar.

Jakob Snær: Við erum alls ekki hættir
„Það er alltaf sætt að skora og sérstaklega þegar mörkin telja mikið fyrir liðin. Mér fannst við vinna fyrir þessu í dag,“ sagði Jakob Snær Árnason, hetja KA-manna, en hann skoraði sigurmarkið gegn Val í Bestu deildinni í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik-ÍBV 3-0 | Blikar í kjörstöðu fyrir úrslitakeppnina
Breiðablik, topplið Bestu-deildar karla í knattspyrnu, vann 3-0 sigur á móti ÍBV í lokaumferð deildarinnar. Liðið er í kjörstöðu fyrir skiptingu deildarinnar en Víkingur og KA eru átta stigum á eftir Blikum í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan 2-1 FH | Stjarnan endar í efri helming og FH í fallsæti
Stjarnan endar fyrsta leiktímabil Bestu-deildarinnar í 6. sæti og leikur því í efri hluta úrslitakeppninnar eftir 2-1 sigur á FH í lokaumferð deildarkeppninnar. Á sama tíma enda FH-ingar deildarkeppninna í fallsæti. Ísak Andri Sigurgeirsson skoraði bæði mörk Garðbæinga í dag.

Tekst Fram eða Keflavík að komast upp í efri hlutann?
Lokaumferð hefðbundinnar deildarkeppni í Bestu deild karla í fótbolta fer fram í dag. Eftir umferð dagsins verður deildinni skipt upp og leikið um Íslandsmeistaratitilinn annars vegar og hvaða lið falla hins vegar. Töluverð spenna er fyrir umferðinni sem verður flautuð á klukkan 14.00.

Ívar skall harkalega á stöngina: „Ætlarðu að sýna þetta?“
Ívar Örn Árnason hefur spilað frábærlega í vörn KA í sumar en hann lenti í slæmum árekstri við aðra stöngina á marki Breiðabliks í stórleiknum í Bestu deildinni í fótbolta á sunnudaginn.

Tíu sem missa af lokaumferðinni vegna leikbanns
Tíu leikmenn munu missa af lokaumferð Bestu-deildar karla áður en deildinni verður skipt upp í efri og neðri helming.

„Óska Val til hamingju og góðs gengis í Evrópukeppninni
Valur og Breiðablik skildu jöfn 1-1 og óskaði Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, Val til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn. Valur er með sex stiga forskot á toppnum þegar þrír leikir eru eftir.

Lá við hávaðakvörtun á hótelinu: „Ég öskraði svo mikið“
„Það er liðin vika síðan ég kom út. Ég er ástfanginn af borginni, hún er eins flott og allir tala um,“ segir Nökkvi Þeyr Þórisson um Antwerpen, hvar hann mun spila fótbolta með Beerschot næstu misserin. Nökkvi samdi við liðið í síðustu viku og er spenntur fyrir verkefninu.

Ætlar að ná metinu af Tryggva
Steven Lennon vonast til þess að stífla hafi brostið þegar hann skoraði sitt hundraðasta mark í efstu deild á Íslandi á sunnudaginn, fyrstur erlendra knattspyrnumanna.

Segist ekki búinn að ákveða hvað framtíðin ber í skauti sér: „Fjölskyldan tosar mig suður“
Þrátt fyrir frábæran árangur KA í Bestu deild karla í fótbolta á leiktíðinni er framtíð Arnars Grétarssonar, þjálfara liðsins, sögð í lausu lofti en samningur hans við félagið rennur út eftir tímabilið.

„Hefur vantað sjálfstraust“
Steven Lennon varð í gær fyrsti erlendi leikmaðurinn til þess að ná að skora hundrað mörk í efstu deild á Íslandi, þegar hann skoraði fyrir FH í 6-1 sigrinum gegn ÍA í Bestu deildinni. Hann var til umræðu í Stúkunni á Stöð 2 Sport í gærkvöld.

Skarð fyrir skildi hjá súrum Stjörnumönnum
Stjarnan hefur ekki átt sjö dagana sæla að undanförnu í Bestu deild karla í fótbolta. Liðið tapaði fyrir KR í gær og hefur tapað fimm leikjum í röð. Nú er ljóst að liðið verður án síns helsta framherja það sem eftir lifir leiktíðar.

„Það er enginn að verja Ingvar“
Sérfræðingarnir í Stúkunni á Stöð 2 Sport voru allir sammála um það að löglegt mark hefði verið tekið af Keflvíkingum í gær þegar liðið tapaði gegn Víkingi í Bestu deild karla í fótbolta.

Sjáðu mark númer hundrað, líflínu Birgis og mörkin úr stórleiknum
Spennan er mikil í Bestu deild karla nú þegar aðeins ein umferð er eftir þar til að deildinni verður skipt í tvennt. Öll mörkin úr næstsíðustu umferðinni má nú sjá hér á Vísi.

Fyrstur erlendra leikmanna til að skora 100 mörk
Steven Lennon skoraði í dag sitt hundraðasta mark í efstu deild í fótbolta hér á landi.