Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar 19. október 2026 07:45 Efnisviðvörun: Í greininni er fjallað um kynferðisofbeldi og vísað í dóm sem inniheldur atvikalýsingar á grófu kynferðisofbeldi og líkamsmeiðingum, auk niðrandi orðfæris og hugarfars í garð kvenna. Dómur Landsréttar frá 15. október síðastliðnum, þar sem maður var sýknaður af nauðgun með vísan til samþykkis brotaþola fyrir harkalegu kynlífi, hefur vakið óhug og reiði í samfélaginu. Héraðsdómur hafði dæmt manninn í fimm ára fangelsi og taldi sannað að konan hefði meðal annars hlotið rifbeinsbrot, heyrnartap, áverka á höfði, eymsli í kjálka og tognanir á hálsi, öxl, mjóbaki og mjaðmagrind. Hún er enn óvinnufær þremur árum síðar. Tveir dómarar af þremur sýknuðu ákærða, þar sem ósannað þótti að hann hefði af ásetningi gengið lengra en hann hafði réttmæta ástæðu til að ætla að konan samþykkti. Þriðji dómarinn skilaði sératkvæði og vildi staðfesta sakfellingu héraðsdóms. Þegar ég sá fyrst umfjöllun um þetta mál í fjölmiðlum hélt ég að dómararnir tveir hlytu að vera svona svakalega illa að sér um ósjálfráð viðbrögð þolenda kynferðisofbeldis og alveg úti á túni varðandi hvað felst í samþykki og mörkum í kynlífi. En svo las ég dóminn. Skýringin á þessari fráleitu niðurstöðu getur ekki verið þekkingarleysi dómaranna tveggja. Í rökstuðningi sínum viðurkenna þeir sjálfir tvennt sem skiptir sköpum í þessu máli, annars vegar að þolendur nauðgana geti frosið af hræðslu og hins vegar að ofbeldi í kynlífi þurfi að samþykkja sérstaklega og með skýrum hætti. Hið fyrra byggja dómararnir á greinargerð með breytingunni á nauðgunarákvæði hegningarlaga árið 2018 og í endursögn þeirra segir „að þekkt væri að þolendur nauðgana gætu ekki veitt geranda mótspyrnu, til dæmis vegna þess að þeir frysu eða lömuðust af hræðslu, en þá þyrfti gerandinn ekki að beita miklu líkamlegu afli til að ná fram vilja sínum“ (20. efnisgrein). Hið síðara árétta þeir með því að taka fram að athafnir sem fela í sér ofbeldi í kynlífi þurfi að samþykkja sérstaklega og með skýrum og ótvíræðum hætti og að skortur á andmælum jafngildi ekki samþykki (22. efnisgrein). Dómararnir vissu því bæði hvernig þolendur geta brugðist við nauðgun og hvaða kröfur íslensk hegningarlög gera til samþykkis. Samt þykir dómurunum tveimur einkennilegt að konan hafi ekki notað öryggisorðið oftar en hún gerði eða gefið manninum betur til kynna á annan hátt að hún vildi hætta (36. efnisgrein). Einmitt þau viðbrögð sem dómararnir viðurkenna að þolendur nauðgana geti sýnt eru notuð gegn konunni, til að draga í efa að maðurinn hafi haft ástæðu til að ætla að hún vildi hætta. Ábyrgðin á að stöðva ákærða er þar með öll lögð á hana, þótt fyrir liggi í orðum dómaranna að hún geti sem brotaþoli reynst ófær um það. Mótsögnin hér stafar ekki af þekkingarleysi heldur vali dómaranna um að beita ekki eigin þekkingu þar sem hún átti við. Þetta eru óverjandi vinnubrögð í sakamáli þar sem líf og heilsa konu eru í húfi. Gervivafi búinn til þar sem hann er ekki Með þessu búa dómararnir tveir til „lögfræðilegan gervivafa“ í málinu, því þeir sækja vafann um ásetning mannsins ekki í sönnunargögnin heldur í það sem konan gerði ekki. Að mínu mati sýnir þetta mál í hnotskurn hvernig dómstólar búa alltof oft til slíkan gervivafa, ekki aðeins í kynferðisbrotamálum heldur einnig í öðrum málum sem varða ofbeldi karla gegn konum. Þessi uppdiktaði vafi þjónar því hlutverki að varpa ábyrgðinni á ofbeldinu yfir á konurnar sjálfar, í samræmi við ríkjandi en óyrtar hugmyndir um undirskipun kvenna og normalíseringu ofbeldis gegn konum í samfélaginu. Í þessu máli var vafinn búinn til þrátt fyrir óumdeild sönnunargögn. Enginn vafi er um áverkana. Enginn vafi er um að ofbeldið átti sér stað, því maðurinn viðurkennir það sjálfur. Enginn vafi er um að konan notaði öryggisorðið þegar henni fannst hún vera að kafna. Ákærði, dómararnir tveir og dómarinn sem skilaði sératkvæði eru bókstaflega öll sammála um hvað það merkir, eins og fram kemur í dómnum. Það þýðir að ákærði átti að stoppa! Orðið var eina umsamda leiðin sem konan hafði til að draga samþykki sitt til baka. Þetta skiptir sköpum, því dómararnir byggðu sjálfir á því að afturköllun samþykkis þyrfti að tjá þannig að hinn aðilinn yrði þess áskynja. Það gerði konan, með orðinu sem ákærði hafði að eigin sögn látið hana hafa. Samkvæmt rökstuðningi dómaranna sjálfra var samþykkið þar með ekki lengur fyrir hendi og hvorki lögin né dómurinn krefjast þess að afturköllun þess sé ítrekuð. Konan átti sem sagt samkvæmt dómurunum tveimur bæði að geta stöðvað ákærða þótt hún lýsti því að hún hefði frosið og að tala skýrt þótt hún næði ekki andanum, á meðan hann beitti hana ofbeldi og hún óttaðist um líf sitt. Slík krafa er ekki bara fjarstæðukennd, hún á ekkert skylt við lögfræðilegt mat. Þannig komust dómararnir tveir líka hjá því að skera úr um það sem raunverulega var deilt um fyrir dóminum, það er hversu mikið ofbeldið var, hversu lengi það stóð og hvað gerðist eftir að konan notaði öryggisorðið. Þess í stað færðu þeir vafann í spurninguna um „ásetning“, inn í höfuðið á manninum, þar sem aldrei er hægt að útiloka vafa ef einungis er spurt hvað hann ætlaði sér. Ásetning má hins vegar ráða af verknaðinum sjálfum og í þessu máli nægir það sem óumdeilt liggur fyrir til að sýna fram á hann. Samþykki snúið á hvolf Merkingu samþykkis er líka snúið við. Dómurinn tekur sjálfur fram þá einföldu reglu að samþykki gildi aðeins um það sem var samþykkt. Dómararnir tveir ganga samt út frá því að konan hafi samþykkt allt það sem hún bannaði ekki fyrir fram. Í ákvæðum hegningarlaga um líkamsárásir eru samþykki sett skýr mörk. Eins og refsiréttarnefnd hefur bent á getur samþykki fyrir ofbeldi ekki gert líkamsárás refsilausa ef hún veldur meiri háttar meiðslum, heldur í mesta lagi lækkað refsinguna. Í umræddum dómi Landsréttar virðist samþykki fyrir harkalegu kynlífi hins vegar eiga að ná yfir meiðsli á borð við beinbrot og heyrnartap, eins og það að skilgreina ofbeldið sem kynlífsathöfn geri það sjálfkrafa refsilaust. Það er ekki séríslenskt að samþykki fyrir harkalegu kynlífi sé notað sem málsvörn í málum sem varða kynferðisbrot og líkamsárásir gegn konum.Í Englandi og Wales var lögfest árið 2021 að samþykki fyrir alvarlegu líkamstjóni í kynlífi sé ekki gild málsvörn fyrir dómstólum. Ástæðan fyrir lagabreytingunni var sú að menn sem höfðu valdið konum alvarlegum skaða eða dauða höfðu í auknum mæli misnotað þá vörn að konurnar hefðu sjálfar viljað harkalegt kynlíf. Landsréttur á Íslandi fer nú með það samþykki sem konan veitti eins og óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi. Sjónarhorn þess sem beitir ofbeldinu gert að viðmiði Afstaða ákærða er í reynd gerð að afstöðu dómsins. Málið er metið út frá sjónarhorni þess sem beitti ofbeldinu, ekki þeirrar sem það beindist að. Maðurinn lýsti því sjálfur fyrir dómi að í slíku kynlífi sé það sá sem drottnar sem stjórni ferðinni, en að það hefði verið hlutverk konunnar að láta vita ef hann væri of harkalegur. Sú lýsing á lítið skylt við BDSM, þar sem grunnreglan er gagnkvæmt samþykki og að öryggisorðið sé alltaf virt. Landsréttur skilgreinir í dómi sínum reynslu þess sem beitti ofbeldinu sem hið hlutlausa viðmið og metur viðbrögð konunnar sem frávik frá því. Það er nánast óþarfi að segja það en þessi mælikvarði er í eðli sínu karllægur þótt hann sé settur fram á kynhlutlausu máli, því þau sem beita kynferðisofbeldi eru langoftast karlar. Hann bitnar kerfisbundið á konum þegar þær leita réttar síns, enda voru þær 93% brotaþola í tilkynntum nauðgunum á fyrri hluta þessa árs. Með breytingunni á nauðgunarákvæðinu árið 2018 átti einmitt að hverfa frá þeirri hugsun að þolandi kynferðisofbeldis þyrfti að veita mótspyrnu til að brotið teldist nauðgun. Nú árið 2026 ákveður Landsréttur að vekja upp þennan draug. Í niðurstöðunni birtist jafnframt kvenfyrirlitning sem er samofin rótgrónu feðraveldi. Hún stafar ekki fyrst og fremst af kyni dómaranna, þótt þeir tveir sem sýknuðu séu karlar og dómarinn sem vildi sakfella kona, heldur af því viðhorfi sem ræður túlkun laganna og framkvæmd þeirra í þessu tilviki. Dómurinn nærir þannig þetta feðraveldi, þar sem karlar geta tryggt sér stöðu í valdastiganum með því að niðurlægja konur og beita þær ofbeldi. Þeir karlar sem kannast ekki við sig í þeirri lýsingu kannast kannski við hversdagslegri birtingarmyndir kvenfyrirlitningar, eins og brandara á kostnað kvenna eða umtal um útlit þeirra í vinahópnum. Margir kannast án efa við að hafa verið í félagsskap þar sem niðrandi ummæli um konur eru látin flakka og að hafa hlegið með eða þagað af ótta við að missa stöðu sína í karlahópnum. Þetta er það sem breski félagsfræðingurinn Liz Kelly kallar samfellu kynferðisofbeldis (e. continuum of sexual violence), þar sem hversdagsleg kvenfyrirlitning og alvarlegt ofbeldi gegn konum eru hluti af sama kerfinu. Dómstólar eru þar ekki undanskildir. Með því að gera skynjun þess sem beitir ofbeldinu að mælikvarða á það hvað telst samþykki þolandans, viðhalda þeir ofbeldi gegn konum. Réttarkerfið stendur ekki við eigin leikreglur Deila má um hvort refsikerfið sé yfir höfuð fært um að taka á því samfélagsmeini sem kynferðisofbeldi er. En á meðan kynferðisbrotamál rata fyrir dóm eiga brotaþolar samt rétt á að gildandi lögum sé fylgt. Ákærði á að njóta vafans þegar vafi er til staðar, ekki þegar dómstóll seilist svo langt að búa hann sjálfur til. Það vill ítrekað gleymast í umræðunni að brotaþoli á líka mannréttindi sem ríkinu og þar með dómstólum ber að verja. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur sagt berum orðum að aðildarríkjum sé skylt að refsa fyrir kynferðismök án samþykkis og að mótspyrna þolanda megi ekki vera skilyrði fyrir því að það sé gert. Í dómi Landsréttar er rétti konunnar til verndar gegn kynferðisofbeldi ýtt til hliðar í skjóli þeirrar reglu að ákærði skuli njóta vafans. Sératkvæði þriðja dómarans í Landsrétti, sem vildi staðfesta sakfellingu héraðsdóms, sýnir okkur hvert lögin og sönnunargögnin í málinu leiða réttilega þegar þeim er fylgt til enda. Niðurstaða meirihluta dómsins var því hvorki óumflýjanleg né í samræmi við eigin rökstuðning. Almenningur á að lágmarki heimtingu á því að dómstólar beiti þeirri þekkingu sem þeir setja sjálfir fram í dómum sínum. Slíkur dómur má ekki verða fordæmisgefandi í kynferðisbrotamálum. Ef samþykki fyrir harkalegu kynlífi nær líka yfir beinbrot og heyrnartap eru engin takmörk á því hvað karlar mega gera konum í nafni kynlífs. Þeir sem beita ofbeldi geta þá borið samþykki fyrir sig, hvort sem þeir valda skaða af ásetningi eða gáleysi. Réttargæslumaður konunnar hefur einmitt sagt að dómurinn leggi „línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk“. Því ætti ríkissaksóknari tvímælalaust að óska leyfis til að áfrýja dóminum til Hæstaréttar, enda getur konan ekki áfrýjað sjálf þar sem brotaþolar eru ekki aðilar að sakamálum. Dómurinn er jafnframt tilefni til að Alþingi skoði rækilega hvort ekki þurfi ákvæði um nauðgun af gáleysi í þeim tilvikum þar sem sýnt er að ofbeldið hafi valdið alvarlegu tjóni á líkama eða heilsu, svo sem beinbrotum eða áfallastreituröskun (e. post-traumatic stress disorder, PTSD). Á meðan ásetningur er skilyrði sakfellingar er of mikil hætta á að krafan um hann sé notuð til að búa til gervivafa, eins og hér var gert. Slík breyting væri ekki framandi íslenskum rétti, því samkvæmt hegningarlögum er þegar refsivert að valda öðrum líkamstjóni af gáleysi. Í Englandi og Wales er gengið enn lengra, því þar er maður sekur um nauðgun ef hann hafði ekki skynsamlega ástæðu til að ætla að samþykki lægi fyrir, meðal annars með hliðsjón af því hvað hann gerði sjálfur til að ganga úr skugga um það. Hvernig sem málinu lyktar býr konan við afleiðingar ofbeldisins sem hún var beitt. Kynbundið ofbeldi skerðir heilsu, starfsgetu og öryggi þolenda, oft til langs tíma og þær afleiðingar hverfa ekki þó að dómsmál leiði til sakfellingar. Dómur sem varpar ábyrgðinni á ofbeldinu sem kona var beitt yfir á hana sjálfa er þó síst til þess fallinn að draga úr þeim. Hann sendir þau skilaboð út í samfélagið að ofbeldi gegn konum hafi enga íþyngjandi eftirmála fyrir þann sem beitir því ef það er kallað kynlíf. Skyldi nokkurn undra að við konur eigum erfitt með að treysta réttarkerfinu? Höfundur er verkefnastjóri við Háskóla Íslands með MS-próf í sálfræði á sviði taugafræðilegrar hugfræði og sjónskynjunar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kynferðisofbeldi Mest lesið Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Sjá meira
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun