Skoðun

Hvað er svona sér­stakt við börn fædd í apríl?

Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar

Fyrir helgi bárust fréttir af því að heilbrigðisráðherra, Alma D. Möller, hafi ákveðið að tryggja fjármagn í áframhaldandi bólusetningar á ungabörnum gegn RS vírusnum. Þetta eru auðvitað frábærar fréttir enda þekkt að RS veiran getur lagst mjög þungt á börn á fyrsta aldursári. Sem móðir drengs sem fæddist núna í apríl var ég ákveðin í því að þiggja bólusetninguna. Það kom þó ekki til þess.

Bólusetning gegn RS býðst nefnilega ekki börnum sem fædd eru í apríl. Yfirvöld telja ekki þörf á því. En hvernig má það vera, ætli vírusinn ráðist í manngreiningarálit? Börn sem fæðast á skilgreindu RS tímabili, október til mars, fá boð um bólusetningu ásamt þeim sem ekki hafa náð sex mánaða aldri fyrir 1. nóvember, það eru börn fædd 1. maí og út september. Börn sem fædd eru á þessu 30 daga millibilstímabili, í apríl, eru ekki talin þurfa aukna vörn gegn vírusnum, enda augljóslega reginmunur á því að fæðast 30. apríl eða 1. maí, eða hvað?

Þá er það ekki svo að öll lönd hafi sama háttinn á, þvert á móti. Í Bandaríkjunum er t.a.m. miðað við að börn séu sérstaklega viðkvæm fyrir RS vírusnum fyrstu átta mánuðina, þá telur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) að ávinningur geti verið af bólusetningu barna allt að 12 mánaða.

Skýr svör óskast

Eins og áður segir skilgreinir embætti landlæknis RS tímabilið frá október til mars. Það þýðir þó ekki að veiran láti ekki á sér kræla aðra mánuði ársins, það sýna raunar tölur embættisins sjálfs um staðfestar greiningar. Smit koma upp allt árið um kring þótt þau séu sannarlega flest yfir vetrarmánuðina. Eðlilega vakna því upp spurningar um hversu vel föst dagsetning bólusetningartímabilsins endurspeglar raunverulega smithættu ungra barna. Ef sonur minn hefði fæðst 11 dögum fyrr eða 12 dögum síðar hefði hann fengið aðgang að þeirri vörn sem bólusetningin veitir.

Ég kalla eftir skýringum á því hvers vegna ákveðið var að fara þessa leið, að undanskilja aðeins einn fæðingarmánuð. Var það hugsunarleysi? Það er þá auðvelt að leiðrétta. Eru til ítarlegar greiningar sem sýna fram á að börn fædd í apríl veikist ekki alvarlega ef þau fá vírusinn? Eða er þetta kannski aðeins fjárhagsleg ákvörðun sem verður þess valdandi að foreldrar þessara u.þ.b. 300 barna sem fædd eru í apríl fá ekki val um að þiggja bólusetninguna?

Nú er haustið gengið í garð og fyrsti vetur lítilla kríla fram undan. Það er ekki of seint að bregðast við. Látum börnin njóta vafans.

Höfundur er móðir aprílbarns.




Skoðun

Sjá meira


×