Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar 17. október 2026 09:30 Opið afsökunarbréf til fjármálaráðherra. Kæri Daði. Eftir því sem árin færast yfir fer maður að líta um öxl og velta fyrir sér hvað maður gerði vel og hvað hefði mátt betur fara. Kannski er það liður í því að eldast og ákveða hverju maður ætlar að gorta sig af í ellinni og hvað komi manni best að falli í gleymskunnar dá. Sumu má brosa að. Annað er ekki alveg jafn broslegt þegar maður horfir til baka og væri líklega best grafið og gleymt. Í vikunni stóð ég frammi fyrir því að velja á milli tveggja kosta: að reyna að hylja sporin eða biðjast afsökunar. Ég valdi síðari kostinn. Ég hef lengi verið með böggum hildar yfir því að hafa á fyrstu mánuðum mínum á Alþingi, fyrir um þremur áratugum, stutt lagabreytingar sem afnámu einkarétt ríkisins á innflutningi á áfengi. Ekki vegna þess að ég væri andvígur frjálsum innflutningi. Þvert á móti taldi ég hann skref í rétta átt; reyndar fyrsta skrefið í þá átt að ríkið hætti smám saman að reka verslun með vímuefni. Það ætti ekki að vera hlutverk ríkisins að dreifa og selja vímugjafa. Það var barnalegt af mér að halda að ríkið myndi sjá mótsögnina í því að selja áfengi á sama tíma og Vínbúðin boðar sérstaka lýðheilsustefnu. Í vikunni áttaði ég mig svo enn betur á því að ég hafði á sínum tíma misskilið hugtakið frelsi hrapallega. Við einkavæddum innflutninginn en héldum ríkiseinokuninni í smásölu. Einkaaðilum var hleypt inn á markaðinn, en ríkið hélt einkarétti sínum til að selja almenningi áfengi. Heildsalarnir keppa um að koma vörum sínum í hillur ríkisins, en almenningur fær að velja úr því úrvali sem þar er í boði. Ríkið sér um verslanirnar, starfsfólkið og reksturinn, en einkaaðilarnir keppa um sinn hlut af kökunni með því að tryggja sér hillupláss í einokunarversluninni. Tær snilld. Þegar Kveikur kíkir ofan í pottana Nýleg umfjöllun Kveiks hefur dregið fram afleiðingar þessa fyrirkomulags. Samkvæmt fréttaflutningi RÚV kemur um helmingur alls áfengis sem ÁTVR selur frá Ölgerðinni. Fjórir af fimm mest seldu bjórunum í Vínbúðinni eru frá fyrirtækinu. Á sama tíma hafa keppinautar lýst því hvernig samningar þess við bari og veitingastaði geti takmarkað aðgang þeirra að markaðnum. Samkeppniseftirlitið rannsakar nú grun um mögulega misnotkun Ölgerðarinnar á markaðsráðandi stöðu. Þessi mynd af stöðunni er ekki endilega sönnun þess að ríkið hafi vísvitandi búið til kerfi fyrir útvalda gæðinga. En maður þarf ekki að trúa á samsæri til að sjá að kerfið getur skapað sérhagsmuni og varið þá með laganna vörðum. Það nægir að skoða hverjir hafa hag af því, hverjir ráða aðganginum að hillunum og hver ber kostnaðinn af rekstri smásöluverslunarinnar. Þegar ríkið rekur einkasölukerfi fyrir áfengi verður hilluplássið verðmæt, en takmörkuð, auðlind. Staða stórra birgja getur haft veruleg áhrif á hvaða vörur ná til neytenda, enda ráða þeir miklu um hvaða vörur standa til boða. Samningar þeirra geta jafnframt haft áhrif á hvaða fyrirtæki fá aðgang að veitingamarkaðnum, líkt og fram hefur komið í umfjöllun Kveiks. Þannig geta ríkiseinokun í smásölu og samþjöppun valds hjá einkaaðilum farið ágætlega saman, þótt það sé ekki neytendum eða almenningi í hag. Ríkið heldur úti verslanakerfinu en einkaaðilar keppa um að tryggja sér sem sterkasta stöðu innan þess. Þetta er kannski ekki úthugsað samsæri Flokksins, heldur afleiðing af gjörðum hans. Íslenskur absúrdismi í sinni tærustu mynd. Kannski er þetta líka hluti af skýringunni á því hvers vegna okkur gengur ekki betur að auka hagvöxt á mann. Þegar fyrirtæki geta hagnast á því að tryggja sér stöðu innan kerfisins fremur en að keppa á opnum markaði er hætt við að orkan fari í að verja stöðuna í stað þess að bæta vöruúrval, lækka verð og auka verðmætasköpun með raunverulegri samkeppni. En aftur að þér, Daði Árið 2025 fengu 632 starfsmenn ÁTVR greidd laun samkvæmt ársreikningi, þó ársverkin séu færri. Talan vekur upp spurningu sem mér finnst rétt að þú svarir sem fyrirsvarsmaður ríkisins á þessu sviði: Hvers vegna rekur ríkið þetta smásölukerfi fyrir heildsalana? Lagabreytingarnar árið 1995 opnuðu fyrir innflutning einkaaðila. Árið 1998 voru gerðar frekari breytingar á löggjöf um áfengisviðskipti, meðal annars varðandi innflutningshlutverk ÁTVR að því er varðaði spíra. Þannig þróaðist kerfi þar sem einkaaðilar gátu annast innflutning og heildsölu en ríkið hélt smásölueinokuninni og kom vörunni til almennings. Ég sá ekki fyrir mér fyrir þrjátíu árum að frjálsari innflutningur myndi leiða til þess að ríkið héldi áfram að reka smásöluna á sama tíma og stórir einkaaðilar næðu sterkri stöðu á innflutnings- og heildsölumarkaðnum þannig að smásalan yrði verkfæri í höndum þeirra. Ég hélt að ég væri að greiða leið frelsisins. Nú sé ég að ég gæti hafa hjálpað til við að festa í sessi kerfi þar sem frelsi sumra er tryggt með takmörkunum annarra. Ég ætla ekki að halda því fram að allir starfsmenn ÁTVR séu óþarfir eða að ríkið hafi ekkert hlutverk í áfengismálum. Það þarf að setja reglur, innheimta skatta, tryggja eftirlit og verja lýðheilsu. En hvers vegna þarf ríkið líka að reka verslunina sjálfa? Á tímum þegar reynt er að ná jafnvægi í ríkisfjármálum skora ég á þig, Daði, að hefja heildstæða endurskoðun á lögum og reglugerðum um ÁTVR og leggja fram tillögur um breytingar á rekstrarfyrirkomulagi stofnunarinnar. Endurskoðunin þarf að svara því hvort ríkið geti sinnt markmiðum sínum um lýðheilsu og eftirlit án þess að reka smásölueinokun með áfengi sem kostar fé, takmarkar val neytenda og getur skapað stórum einkaaðilum forskot á markaði. Annar möguleiki er að skoða hvort ríkið eigi að taka aftur til sín einkaleyfi á innflutningi á áfengi til sölu í Vínbúðinni. Það eitt er ljóst að núverandi fyrirkomulag kallar á endurskoðun. Það er í senn mótsagnakennt og absúrd að ríkið haldi úti smásölueinokun á meðan einkaaðilar geta byggt upp sterka markaðsstöðu með aðgangi að henni. Ég biðst afsökunar á því að hafa ekki séð þetta fyrir mér á sínum tíma þegar ég studdi lagabreytingarnar. En það er aldrei of seint að viðurkenna mistök og leiðrétta þau. Ég geri það hér með. Ríkið á að setja reglurnar, ekki endilega reka búðina. Með vinsemd og virðingu og von um að þú takir við boltanum þar sem ég missti hann, Höfundur er fyrrverandi alþingismaður sem taldi að með stuðningi sínum við málið væri hann að greiða leið frelsisins. Það var misskilningur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Áfengi Netverslun með áfengi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Skoðun Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun