Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar 17. október 2026 09:15 Hvers vegna er sumt fólk hinsegin? Það er áleitin spurning því það er áberandi hversu mjög hefur hrakað réttindum hinsegin fólks síðustu misserin. Á okkar tímum eru miklar hræringar og svo virðist sem samkennd og umburðarlyndi séu á undanhaldi. Þessa þróun má glögglega sjá á þeirri skautun sem birtist í því hatri sem beinist meðal annars að minnihlutahópum og til dæmis hinsegin fólki. Í þessari hatursbylgju er meira að segja ráðist að samkynhneigðum eins og þeir séu ógnun við þjóðfélagið, ríkjandi skipulag og reglu. Það heyrist að samkynhneigð sé einhverskonar óeðli og ógnun við þjóðfélagið og í andstöðu við rétta röð og reglu. Afleiðing af þessu hatri er að sérstaklega ungt fólk á í miklum erfiðleikum með að koma fram á sínum eigin forsendum og lifa eðlilega með sínar tilfinningar. En hvað er samkynhneigð og hvernig stendur á að sumt fólk er hinsegin og aðrir ekki? Til að leita svara við spurningunni hvað er samkynhneigð og hvernig er hún hluti af þróun mannkynsins þá er hægt að spyrja gervigreindina (ChatGPT) spurninga eins og: “Hvers vegna eru sumir samkynhneigðir og rökstuddu það með vísun í heimildir”. Þá er svarið einfaldlega að “Samkvæmt bestu vísindalegu þekkingu í dag er engin ein orsök þess að sumir eru samkynhneigðir.” Síðan eru talin fram ýmis atriði sem styðja þessa niðurstöðu og vísað í heimildir. Þegar farið er inn á vísindavefur.is og spurt “Hvers vegna er fólk samkynhneigt” þá er niðurstaðan sambærileg við svar gervigreindarinnar, það eru ekki til vísindalegar skýringar á því hvers vegna sumt fólk er samkynhneigt. Það er greinilega þörf á einhverjum öðrum leiðum til að svara spurningunni um samkynhneigð og kannski hefur Darwin einhver svör. Ég var nýlega að fletta í bókinni “Jarðfræði fyrir framhaldsskóla” (1*) sem er til í vefútgáfu hjá Idnu.is . Þar eru heillandi kaflar um uppruna heimsins og hvernig jörðin og lífið hafa þróast í tímans rás. Þar eru meðal annars kaflar um uppruna sólkerfis, jarðarinnar og lífsins á jörðinni. Þar má finna skýringar á því hvers vegna manneskjur ganga uppréttar og eru í laginu eins og þær eru. Þarna er hins vegar ekkert fjallað um samkynhneigð. Til að fá einhverjar skýringar er hægt að fara dýpra í þróunarsöguna og draga ályktanir af því sem þarna er lýst. Í þessari kennslubók er lýsing á þróun mannkyns og er þar meðal annars kafli 10.3.6 sem er eftirfarandi: Þegar ísöld gekk í garð og loftslag og haf kólnaði gufaði minna upp og lofthjúpurinn varð þurrari. Við það þornaði um allan heim þannig að eyðimerkur svo sem Sahara stækkuðu og þrengdi að skógum í hitabeltinu. Þetta hafði töluverð áhrif á marga dýrastofna og þar á meðal voru forfeður manna. Þeir höfðu líklega að fullu sagt skilið við líf í trjám enda neyddust þeir til þess þegar skógarnir drógust saman. Erfitt hefur verið fyrir þá að verjast rándýrum á opnu landi og það hefur sjálfsagt krafist klókinda og samvinnu innan hópa. Upprétt staða krafðist breyttrar mjaðmagrindar sem í raun þrengdi að fæðingarvegi kvenna. Einnig gerði það fæðingar erfiðari að heilabú og þar með höfuð ungbarna fara stækkandi. En síbreytilegar aðstæður á ísöldinni og nýir möguleikar gerðu það að verkum að þróunin valdi stækkandi heila. Til þess að mannsbörn gætu komið í heiminn urðu þau að fæðast lítil og ófullburða á meðan annað ungviði á gresjunni var farið að skokka um með mæðrum sínum nokkrum tímum eftir fæðinguna. Mæður ungbarna urðu að bera þau stöðugt á höndum sér og það kom harkalega niður á fæðuöflun. Að koma börnum á legg og verja þau fyrir rándýrum var því samvinnuverkefni ættbálksins. Trúlega hefur fæðing barnanna einnig verið samvinnuverkefni því erfitt hefur verið fyrir konur að fæða án allrar aðstoðar í þá daga eins og gildir enn í dag. Þegar menn tóku að stunda veiðar í hópum varð gott samskiptakerfi og sameiginlegur skilningur á verkefninu grundvallaratriði. Og öll þessi samvinna við að viðhalda stofninum krafðist flókinna samskipta og líklega hefur mál þróast snemma. Mál og flókin samskipti stuðluðu að fjölgun ættbálksins þannig að þróunin hneig í átt til þess að heilar fara stækkandi (Yuval Noah Harari, 2015). Samskipti, samvinna og tjáskipti urðu mikilvæg til þess að komast af. Til þess þurfti stórt heilabú. Tilvitnun líkur. En hvernig kemur Darwin inn í umræðuna? Það er ein af forsendum kenninga Darwins að það fæðast fleiri einstaklingar en lifa af. Það eru fleiri frjókorn hjá plöntunum, fleiri hrogn hjá fiskunum, ungar hjá fuglunum og afkvæmi hjá spendýrum en einstaklingar sem komast á legg. Þetta gildir einnig um mannanna börn því það fæðast fleiri börn en lifa fram á fullorðinsár. Það eru svo þeirættflokkar, fjölskyldur og samfélög, sem henta best aðstæðum, sem fjölga sér mest og verða ríkjandi. Þegar lífsbaráttan er ráðandi atriði en ekki frjósemin við að komast af þá opnast nýtt sjónarhorn. Ef hluti einstaklinga í ættflokk er samkynhneigður gæti það verið hagkvæmt fyrir samfélagið. Í slíku samfélagi væru samkynhneigðir viðbótarvinnuafl til að sinna börnum, afla matar, verja hópinn og styrkja félagslega samheldni á meðan aðrir í hópnum væru bundnir við barneignir og umönnun og valdabrölt ættarhöfðingjanna. Hugsum okkur þrjá hópa: Eingöngu samkynhneigðir Samfélag þar sem samkynhneigðir eru hluti af ættbálknum þe. ca 10% eins og í okkar samfélagi í dag. (4*) (5*) Samfélag þar sem samkynhneigðir eru ekki hluti af ættbálknum og ekki til í náttúrinni. Þegar bornir eru saman þessir hópar þá er fyrsti hópurinn líklega ekki að fjölga sér mikið enda tæknifrjóvgun skammt á veg komin á steinöld. Miðhópurinn er sambærilegur við samfélög nútímans, sjá tilvitnun (4*) (5*) Þriðji hópurinn er ekki sjáanlegur í samfélögum nútímans svo vitað sé. (4*) En ef samkynhneigðir eru ekki uppteknir við barneignir, hvernig berast þá þeirra gen og eiginleikar milli kynslóða? Svarið er að gen hinsegin fólks erfast áfram með systkinum þeirra og ættmennum sem njóta góðs af vinnuafli hinsegin systkina og frændfólks. Þessum ættbálkum og fjölskyldum vegnar betur í lífsbaráttunni og verða fjölmennari þegar fram í sækir þar sem samkynhneigðir eru hluti af hópnum. Samkynhneigðir eru þannig fullgildir og nauðsynlegir einstaklingar í þróunarsögunni og arftakar þeirra í dag geta borið höfuðið hátt og þurfa ekki að lifa í felum. Einhvern veginn er þetta erfitt fyrir suma að skilja og svo eru einnig bæði alþjóðlegir og landlægir fordómar gagnvart samkynhneigðum. Einhvern vegin á ég erfitt með að útskýra af hvaða rótum þessir fordómar eru sprottnir. Samkynhneigðir karlar eru ekki að stela konum frá körlum. Þeir eru yfirleitt betur stæðir en gagnkynhneigðir og minni hvati til að eigna sér eigur annara því það eru færri á framfæri þeirra en gagnkynhneigðra. Samkynhneigðir ættu þannig að vera hættuminni heldur en meðaltalið og stafa af þeim minni ógn en meðalmanninum. Það er þekkt meðal manna að óöryggi og ótti brýst stundum út sem ofsóknir gagnvart minnihlutahópum. Þannig er hatur stundum farvegur ótta og ímyndarkreppu sem þjáir marga. Þeim finnst léttir að fá útrás með því að ráðast á minnihlutahópa og þar á meðal eru samkynhneigðir og hinseigin fólk auðveld skotmörk. Með þessu sjónarhorni á þróun mannkyns finnst mér augljóst að hinsegin fólk hefur lagt mikið af mörkum til að halda lífinu í mannkyninu frá dögum Adam og Evu. Hinsegin fólkið, frændur og frænkur, voru fremst í lífsbaráttunni við að skaffa mat á borðið, hita í hellinn og standa vörð um börnin í hörðum heimi. Adam var upptekinn við að halda hinum körlunum frá Evu sinni og Eva var oftast ólétt og ekki í fullu fjöri. Helsti tilgangurinn með þessum vangaveltum og skrifum er að ýta undir sjálfstraust hinsegin fólks þannig að það eigi auðveldara með að svara fyrir sig. Þegar fordómum er kastað fram þá er rökrétta svarið eftirfarandi: Þú þarna fordóma deli, þú skalt þakka fyrir að hafa hinsegin fólk í þinni ætt. Án þeirra væri öll þín ætt dauð úr hungri og volæði fyrir mörg þúsund árum. Heimildir: https://jardfraedi.vefbok.idnu.is/?id=218 https://www.youtube.com/watch?v=ehV-MmuvVMU Vísindavefurinn.is Hommar á Íslandi frá landnámi til hernáms - MA ritgerð Særún Lísa Birgisdóttir Hættið þessu fikti strákar! - 2022 - Særún Lísa Birgisdóttir Nánari og ítarlegri umfjöllun má nálgast á slóðinni: https://www.facebook.com/groups/1642294550295737/files/files Höfundur er Tæknifræðingur og verkefnastjóri í Reykjavík og áhugamaður um lífið og tilveruna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hinsegin Mest lesið Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason Skoðun Skoðun Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Sjá meira
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun