Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Áróra L Davíðsdóttir skrifar 11. október 2026 20:15 Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Úkraínumenn reiðubúna til að láta af árásum á rússneska orkuinnviði, geri Rússar hið sama. AP/Alex Brandon Rússar hafa gert árásir á orkuinnviði í Úkraínu eftir yfirlýsingu Bandaríkjaforseta um orkuvopnahlé milli ríkjanna tveggja, að sögn Úkraínuforseta. Þrír hið minnsta eru látnir í borginni Karkív og tuttugu særðir.
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti svokallað orkuvopnahlé milli Rússlands og Úkraínu á færslu sinni Truth Social fyrr í dag. Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti kom af fjöllum þegar tilkynningin barst en sagðist þó reiðubúinn til að stöðva árásir ef Rússar hættu að ráðast á orkuinnviði í Úkraínu. Moskva hefur enn ekki tjáð sig um yfirlýsingu Trumps. Selenskí sakar Rússa um að hafa gert árásir á orkuinnviði í borginni Karkív í kvöld eftir að Trump greindi frá vopnahléinu, í færslu á X. Í umfjöllun BBC segir að þrír séu látnir í kjölfar árása á Karkív og 20 séu særðir. „Úkraína er reiðubúin til að hætta árásum á rússneska orkuinnviði – og við treystum á sama vilja frá Rússlandi. Því miður hefur úkraínskur himinn verið morandi í rússneskum „shahed“-drónum í allan dag. Gerðar hafa verið árásir með svifsprengjum og einnig árásir á orkuinnviði okkar. Ráðist var á orkuver í Karkív í kvöld,“ segir Selenskí Úkraínuforseti á X. Today, there was a statement from the President of the United States that an energy ceasefire has been secured. This is good news for everyone – and it is important that it become reality. Unfortunately, Ukrainian skies have been infested with Russian “shaheds” all day today. There have been glide bomb strikes and strikes on our energy infrastructure too. A power plant in Kharkiv was attacked this evening. Overall, this past week alone, the Russians have carried out more than 200 strikes on our electricity generation and transmission facilities in Ukraine, and another 17 strikes this week targeted gas and oil facilities. They have killed more than 150 of our people, and more than 700 people have been wounded. Ukraine has proposed many de-escalatory steps. Putin had one answer to all of them – “nyet.” We do hope that he will finally say something to America, Ukraine, and the entire world that will lead to a real and dignified peace. Ukraine wants peace. The question is whether Russia does. The Armed Forces of Ukraine have received all the appropriate orders. We are awaiting clear details of the dialogue between America and Russia – and we expect Putin to follow through on what President Trump said.— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) October 11, 2026 Að auki sagði hann að fréttir af yfirlýsingu Trumps um orkuvopnahlé væru góðar og mikilvægt væri að þær yrðu að veruleika. „Úkraína hefur lagt til mörg skref til að draga úr spennu. Pútín hafði eitt svar við þeim öllum – „njet“. Við vonum svo sannarlega að hann segi loksins eitthvað við Bandaríkin, Úkraínu og allan heiminn sem leiði til raunverulegs og sómasamlegs friðar.“ Trump hefur að undanförnu þrýst á Úkraínumenn að hætta árásum á rússneska olíuinnviði sem Kænugarður hefur sagt að sé lykilatriði til að draga úr tekjum Rússa til stríðsrekstursins. Trump tilkynnti á föstudag um samkomulag Bandaríkjanna og Rússa um útflutning olíu, samkomulag sem Selenskí gagnrýndi harðlega. Trump sagði í kjölfarið að Úkraína þyrfti nýjan forseta sem væri tilbúinn að semja um endalok stríðsins.
Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Bandaríkin Donald Trump Hernaður Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Sjá meira