Erlent

Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Öllum flugum var beint frá flugvellinum í kjölfar árásarinnar. Myndin er úr safni. 
Öllum flugum var beint frá flugvellinum í kjölfar árásarinnar. Myndin er úr safni.  Getty

Tólf eru látin eftir árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu, og á fjórða hundrað særðust. Öllu flugi hefur verið beint annað og starfsemi vallarins tímabundið lögð niður. Hútar eru sagði ábyrgir fyrir árásinni.

Samkvæmt umfjöllun Reuters særðust 309 manns og voru sumir þeirra fluttir á sjúkrahús í lífshættu. Árásin hafi verið gerð fyrirvaralaust og er þetta sú þriðja á sádiarabíska flugvelli í vikunni.

Sendiráð í Sádi-Arabíu hafa ráðlagt ríkisborgurum sínum að halda sig fjarri flugvellinum, segir í umfjöllun BBC. 

Árásin er sögð marka stigmögnun í átökum Húta, sem njóta stuðnings Írana, og Sáda. Donald Trump Bandaríkjaforseti var spurður af fréttamönnum fyrir utan Hvíta húsið hvort Bandaríkin hygðust taka þátt í árásum Sádi-Araba á Húta.

„Það gæti verið. Við ætlum að skoða það. Við fréttum rétt í þessu af nýjustu árásinni, þannig að við tökum ákvörðun. Við bregðumst mjög hratt við,“ sagði Trump segir í umfjöllun CNN um málið. 


Tengdar fréttir

Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum

Forseti Jemen segist ætla að ráðast í umfangsmiklar hernaðaraðgerðir til að ná aftur öllu því landsvæði sem uppreisnarmenn Húta hafa lagt undir sig á síðustu árum. Sádar, sem eru helstu stuðningsmenn jemensku ríkisstjórnarinnar, hafa að undanförnu staðið í undirbúningi fyrir stórsókn gegn Hútum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×