Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Smári Jökull Jónsson skrifar 31. október 2026 13:03 Magnús Þór Jónsson er formaður KÍ. Vísir/Vilhelm Kennarar voru boðaðir á fund hjá ríkissáttasemjara skömmu fyrir hádegi en í kvöld rennur út frestur til að virkja forsenduákvæði í kjarasamningum kennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna viðræðna um virðismat.
Fjallað var um það í gær að kjarasamningar kennara væru í uppnámi vegna túlkunar á ákvæði um gerð virðismats. Kjarasamningurinn gildir til 31. mars 2028 en þar er fjallað sérstaklega um svokallað virðismat sem felur í sér að lagt er mat á virði ákveðinna verkefna kennara. Vinnan hefur hins vegar tekið lengri tíma en gert var ráð fyrir, eitthvað sem gert var ráð fyrir í kjarasamningum að gæti gerst og myndi endurskoðun á ferlinu þá frestast um ár. Samkvæmt heimildum fréttastofu sendu stjórnvöld KÍ hins vegar tillögu sem var utan þess ramma sem kjarasamningur gerir ráð fyrir. Magnús Þór sagði í viðtali við Vísi á fimmtudag að kennarar væru ekki tilbúnir að samþykkja lengingu samkomulagsins en Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Fundur hjá sáttasemjara Þegar fréttastofa náði sambandi við Magnús Þór Jónsson í morgun sagði hann lítið að frétta, mikið væri um fundahöld og að stjórn KÍ hefði fundað í gær. Þá var málið í ákveðinni biðstöðu en skömmu fyrir hádegi sagði Magnús í skilaboðum til fréttastofu að hann hefði fengið boð frá ríkissáttasemjara um að koma á fund. Ekki er vitað nánar um efni fundarins né hvort fulltrúar SÍS hafi einnig verið boðaðir til sáttasemjara. Dagurinn í dag er sá síðasti til að virkja forsenduákvæði kjarasamninga varðandi gerð virðismatsins. Fari svo að ákvæðið verði virkjað tekur til starfa nefnd sem mun þá freista þess að ná samkomulagi en annars munu kjarasamningar um 12.000 félagsmanna KÍ losna þann 1. mars næstkomandi.
Vinnumarkaður Kjaramál Skóla- og menntamál Grunnskólar Framhaldsskólar Leikskólar Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira