Innlent

Einar og Sanna mæta á Sprengi­sand og ræða upp­sagnir

Freyja Þórisdóttir skrifar
Páll Magnússon fær til sín góða gesti sem endranær á Sprengisandi í dag.
Páll Magnússon fær til sín góða gesti sem endranær á Sprengisandi í dag. Vísir/Viktor Freyr

Páll Magnússon tekur á móti góðum gestum í Sprengisandi á Bylgjunni í dag. Þátturinn hefst að vanda klukkan 10 og stendur til 12 en hægt er að horfa á þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan eða í sjónvarpi á Sýn. Meðal þeirra sem mæta í settið eru Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, og Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi sósíalista.

Páll ræðir við þau um umdeildar hagræðingaraðgerðir og uppsagnir hjá Reykjavíkurborg en stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í vikunni.

Samtök sunnlenskra sveitarfélaga samþykktu harðorða ályktun nú í vikunni – þar sem segir að Suðurland sé ekki hraðbanki ríkissjóðs; um helming af nýjum skatttekjum ríkisins eigi að sækja í Suðurkjördæmi þrátt fyrir að þar búi aðeins rúmlega níu prósent landsmanna.

Anton Kári Halldórsson, formaður samtakanna, og Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, takast á um þetta á Sprengisandi.

Íbúar í Dalabyggð hafa miklar áhyggjur af löggæslumálum í sinni sveit – og telja að stefnt geti í enn verra ástand með þeirri sameiningu lögreglustjóraembætta sem stendur fyrir dyrum. Lilja Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri, og Skjöldur Orri Skjaldarson, lögreglumaður, gera grein fyrir þessu.

Í lok þáttar fær Páll þær svo Kristín Gunnarsdóttir og Ólöf Skaftadóttir í heimsókn en þær halda úti hlaðvarpinu Komið gott! Þær eru þekktar fyrir að láta vaða á súðum um alla skapaða hluti – og það ætla þau þrjú einmitt að gera um stöðu stjórnmálaflokka og stjórnmálaforingja á eftir.


Tengdar fréttir

Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi

Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn. Um sé að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×