Neytendur

Miði keyptur í Fjarðakaupum skilaði 129 milljónum króna

Freyja Þórisdóttir skrifar
Miðinn sem skilaði vinningnum var keyptur í Fjarðakaupum í Hafnarfirði.
Miðinn sem skilaði vinningnum var keyptur í Fjarðakaupum í Hafnarfirði. Vísir/Vilhelm

Stálheppinn miðaeigandi var einn með allar tölur réttar í Lottó-útdrætti kvöldsins og fær hann rúmar 129 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn sem skilaði upphæðinni var keyptur í Fjarðakaupum í Hafnarfirði.

Kemur þetta fram í tilkynningu en þar sem segir einnig að þrír hafi skipt svo með sér bónusvinningnum og hafi hver þeirra fengið fjögur hundruð þúsund krónur í vasann. Tveir miðar voru keyptir í Lottó appinu og einn á N1 Háholti.



Enginn var með fyrsta vinning í Jóker kvöldsins, en ellefu voru með annan vinning og fær hver þeirra 125 þúsund krónur. Sex miðanna voru keyptir í Lottó appinu, tveir voru í áskrift, einn var keyptur á heimasíðu okkar, lotto.is, einn var keyptur á Vídeómarkaðinum í Hamraborg og einn á Bensínsölunni Kletti í Vestmannaeyjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×