Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Bjarki Sigurðsson skrifar 22. september 2026 07:15 Farþegar þurfa að hafa hraðar hendur og helst vera skipulagðir þegar þeir fara úr bíl í rennunni enda byrjar mælirinn að tikka eftir fimm mínútur. Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) segir stuttan gjaldfrjálsan tíma í brottfararrennu Isavia við Keflavíkurflugvöll og hátt refsigjald vera ósanngirni og okur. Félagið kallar hana „ræningjarennuna“ og skorar á Isavia að stækka hana.
Ökumenn sem aka rennuna fá fimm mínútur til að skila af sér farþegum og farangri. Eftir það byrjar mælir að tikka og ökumenn eru rukkaðir um fimm hundruð krónur fyrir hverja mínútu. Í frægu atriði úr Áramótaskaupinu 2025 er grínast með stressið sem fylgir því að koma öllum og öllu út á þessum stutta tíma. Hvergi jafn dýrt FÍB gerði könnun á fyrirkomulaginu hjá tíu flugstöðvum í Evrópu. Félagið segir að hvergi sé sami „fantaskapur“ sýndur og Isavia gerir með rennunni. „Allar hinar flugstöðvarnar sýna meiri lipurð og skilning gagnvart fólki sem er að mæta í flug. Oftast eru gefnar 10 mínútur til að afferma og kveðja áður en farið er að rukka fyrir lengri viðveru. Ekki er innheimt fyrir hverja mínútu, heldur fyrir byrjaðan tímaramma, ýmist 5, 15 eða 20 mínútur,“ segir í færslu á vef félagsins. Gjaldið sé á flestum stöðum hóflegt. Í Frankfurt greiða ökumenn fimm hundruð krónur fyrir næstu tíu mínútur eftir fríar tíu mínútur og í Ósló eru sjö ókeypis mínútur og þúsund krónur greiddar fyrir hverjar byrjaðar tuttugu mínútur eftir það. Á Heathrow í London greiða ökumenn 1.200 krónur fyrir að keyra að flugstöðinni með farþega en engin tímamörk. „Við flugvellina í Kaupmannahöfn, Genf og Amsterdam er einfaldlega ekki reynt að krefjast greiðslu fyrir að skutla fólki í flug. Bílstjórnar eru einfaldlega beðnir um að vera ekkert að hangsa og starfsfólk stjakar við ef með þarf,“ segir í færslunni. Ökumenn festist FÍB gagnrýnir einnig hve fá bílastæði eru í rennunni og segir ökumenn lenda í því að keyra inn í rennuna og komast síðan ekki að til að hleypa farþegum út. „Vissulega býður Isavia bílstjórum að stoppa án endurgjalds í allt að 15 mínútur á P1-stæðinu fyrir framan flugstöðina. Þar er hins vegar frekar snúið fyrir marga að athafna sig, því einatt eru stæðin þar full og þarf þá að stoppa í akveginum. Fæstir víkja nógu vel til að aðrir komist fram hjá og því verða til stíflur þar sem enginn kemst áfram,“ segir í greininni. „Ef Isavia væri annt um viðskiptavini sína þá myndi fyrirtækið stækka sleppirennuna á kostnað P1-stæðisins og lengja gjaldfrjálsa tímann í 8-10 mínútur.“
Neytendur Keflavíkurflugvöllur Suðurnesjabær Isavia Bílastæði Bílar Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Sjá meira