Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 8. september 2026 07:31 Safnið er til heiðurs listmálarans Renoir en húsið var hans síðasta heimili þar til hans lést árið 1919. Getty Tveir þjófar brutust inn í Renoir-safn í Frakklandi í morgun og stálu fjórum málverkum þaðan en skildu síðan eitt þeirra eftir. Málverkin eru talin mikils virði.
Safnið er í bænum Cagnes-sur-Mer sem er skammt frá borginni Nice í suðurhluta Frakklands. Bryan Masson, bæjarstjóri Cagnes-sur-Mer, vaknaði rétt fyrir klukkan sex að staðartíma, rétt fyrir klukkan fjögur að íslenskum tíma, við viðvörunarbjöllu samkvæmt umfjöllun Nice-Matin. Fimm mínútum síðar voru bæði lögreglan og Masson komin á vettvang en voru þjófarnir þá farnir á brott. Til var upptaka úr eftirlitsmyndavél og á henni mátti sjá tvo brjótast inn í safnið og taka þaðan fjögur málverk. Við hamaganginn sem varð þegar þjófarnir flúðu varð eitt fjögurra málverkanna eftir. „Þökk sé eftirlitsmyndavélum bæjarins sáust tveir einstaklingar flýja og skildu eftir eitt af stolnu málverkunum,“ sagði Masson samkvæmt Huffington Post France. Norski miðillinn VG segir að málverkin séu 9 milljóna evra virði, sem samsvarar rúmum 1,2 milljörðum íslenskra króna. Safnið var stofnað árið 1960 til heiðurs listmálarans Pierre-Auguste Renoir. Hann átti heima í húsinu sem hýsir safnið í dag til dauðadags árið 1919. Fréttin hefur verið uppfærð.
Frakkland Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Bein útsending: Kynna þingmálaskrá vetrarins Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður Fleiri fréttir Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Fjarhægrimenn gætu fundið bragðið af völdum í fyrsta sinn Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Sjá meira