Erlent

Réttar­höldunum yfir Clancy lauk án niður­stöðu

Eiður Þór Árnason skrifar
Mál Lindsay Clancy hefur vakið heimsathygli.
Mál Lindsay Clancy hefur vakið heimsathygli. Ap/The Patriot Ledge/Greg Derr

Dómari hefur ómerkt réttarhöldin yfir Lindsay Clancy eftir að kviðdómi tókst ekki að komast að einróma niðurstöðu eftir margra daga tilraunir. Hún er sökuð um að myrða þrjú börn sín. Ógilding málsins tafðist í dag eftir að verjandi Clancy fór fram á að hann fengi að áfrýja niðurstöðunni til áfrýjunardómstóls.

Fékk hann klukkustund til að leita til dómstólsins áður en dómarinn í málinu kvaddi formlega upp niðurstöðu sína. Réttarhöldin hafa vakið gríðarlega athygli síðustu vikur og beint sjónum að andlegri heilsu mæðra eftir barnsburð.

Hin 36 ára gamla Clancy frá Massachusetts starfaði áður sem hjúkrunarfræðingur á fæðingardeild og hefur aldrei neitað því að hafa drepið börnin. Verjandi hennar hefur sagt að hún þjáist af miklum geðrænum vanda vegna fæðingarþunglyndis. Hún sé með geðhvarfasýki og að þunglyndislyf sem hún fékk eftir fæðingu þriðja barnsins hafi valdið því að geðheilsa hennar versnaði til muna.

Kviðdómur hafði rætt málið í sjö daga þegar réttarhöldin voru ógild í dag. Málið er því enn óleyst og virtist ákvörðunin ekki hafa komið neinum í réttarsalnum á óvart, að sögn AP-fréttaveitunnar. Hvorki Clancy né fjölskylda hennar hafi sýnt nein áberandi viðbrögð þegar dómarinn tilkynnti að réttarhöldunum væri lokið án niðurstöðu.

Réttarhöldin komust í uppnám í gær

Í gær steig formaður kviðdómsins fram og sagði að einn í tólf manna hópnum færi ekki eftir skipunum dómarans hvað varðar leiðbeiningar um sönnunarbyrði og hugtakið „hafið yfir skynsamlegan vafa“ (e. beyond reasonable doubt).

Fyrr í dag gaf dómarinn William Sullivan kviðdómendum eitt tækifæri í viðbót til að komast að sameiginlegri niðurstöðu um sekt Clancy eða sakleysi. Það skilaði ekki árangri.

Formaður kviðdómsins sendi skilaboð til Sullivans í dag sem í stóð:

„Það er með þungum hug sem við greinum frá því að okkur hefur ekki tekist að ná einróma niðurstöðu og teljum okkur ekki geta gert það.“

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×