Brotist inn í Barnaloppuna Sigurgeir Þorkelsson skrifar 16. ágúst 2026 12:11 Áfram geisar innbrotahrinan. Barnaloppan hafði vart opnað dyrnar á nýjum stað þegar brotist hafði verið inn. Barnaloppan Brotist var inn í verslun Barnaloppunnar að Köllunarklettsvegi í nótt og þurfti að seinka opnun hennar í morgun á meðan rannsóknarstarf lögreglu fór fram.
Andri Jónsson, einn eiganda verslunarinnar, staðfestir í samtali við fréttastofu að engu hafi verið stolið af viðskiptavinum, sem leigja af henni sölubása fyrir barnaföt og tengdan varning. Verslunin hefur þegar verið opnuð á ný. „Sem betur fer var ekkert tekið frá leigjendum, þetta eru bara innanhússmunir frá okkur.“ Andri, sem staddur er erlendis, segist ekki geta veitt miklar upplýsingar um málið að svo stöddu. Hann segir að óþægilegt sé að vera staddur erlendis þegar svona kemur upp en hann leggi traust á rannsókn lögreglunnar á málinu. Andri lýsir sárum vonbrigðum með þjófnaðinn. Um sé að ræða fjölskyldufyrirtæki þar sem gríðarleg vinna hafi farið síðustu mánuði í að flytja verslunina í nýtt húsnæði. „Við erum búin að vinna myrkranna á milli við að koma okkur fyrir á nýjum stað og gera fínt og flott.“ Ekki líði nema vika áður en búið sé að brjótast inn, sem valdi sárum vonbrigðum. „Sem betur fer er ekkert eyðilagt samt,“ segir Andri sem segir ekki tímabært að gefa upp neinar frekari upplýsingar um innbrotið á meðan að rannsókn lögreglu standi yfir. Vísir hefur í sumar greint frá innbrotahrinu sem geisað hefur miðsvæðis í Reykjavík sem enn sér ekki fyrir endann á.
Lögreglumál Verslun Reykjavík Mest lesið Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Erlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Fleiri fréttir Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Sjá meira