Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugarnesskóla Lovísa Arnardóttir skrifar 15. ágúst 2026 20:00 Breytingarnar eru til að tryggja öryggi skólabarna við Laugarnesskóla og gangandi og hjólandi á svæðinu. Vísir/Birta Rán Breyta á skipulagi við Laugarnesskóla til að tryggja umferð gangandi og hjólandi við skólann og nýtt skólaþorp. Foreldrar kölluðu eftir viðbrögðum borgaryfirvalda síðasta vetur eftir að ekið var á tvö börn á Reykjavegi, skammt frá skólanum og nýju skólaþorpi.
Tillagan var samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni. Guðný María Jóhannsdóttir formaður ráðsins segir breytinguna til þess að tryggja öryggi bæði gangandi og hjólandi. „Þetta er verkefni sem er að fara í gang, nákvæm tímaáætlun liggur ekki fyrir en þetta er í startholunum og er auðvitað hið besta mál,“ segir Guðný María í samtali við fréttastofu. Mikil vinna fer enn fram við skólaþorpið í Laugardal. Vísir/Birta Rán „Með skólaþorpinu er verið að bregðast við stöðunni í skólamálum í hverfinu og þetta er partur af því sem þarf að gera. Það er verið að búa til botnlanga á tveimur stöðum og stoppa gegnumumferð sem hefur verið. Svo á að þrengja aðra göngubrautina og búa til miðeyju á hina og hækka hana og reyna að hægja á umferðinni þannig,“ segir hún og að borgarfulltrúar vilji að þetta verði gert eins hratt og hægt er. „Því skólarnir eru að fara að byrja, það er það sem bíður okkar í næstu viku.“ Breytingarnar má sjá á myndinni. Reykjavíkurborg Fjöldi foreldra barna við skólann kallaði eftir aðgerðum í vetur. Þau sinntu sjálf gangbrautarvörslu og ræddu það opinberlega að kaupa gönguljós til að koma upp á Reykjaveg. Minnka lóð skólans óverulega Í tillögunni kemur fram að um sé að ræða breytingu á deiliskipulagi Teigahverfis vegna Reykjavegar, Hofteigs og Kirkjuteigs. Í breytingunni sem lögð er til felst að loka fyrir umferð Kirkjuteigs annars vegar og Hofteigs hins vegar inn á Reykjaveg og að minnka óverulega lóð Laugarnesskóla til að koma fyrir snúningssvæði við enda Hofteigs. Við Hofteig verður gert nýtt snúningsstæði og miðeyja sett á Reykjaveg við gatnamótin til að hægja á umferð. Vísir/Birta Rán Lóð Laugarnesskóla minnkar um 137 fermetra til að búa til snúningsstæði og fer frá því að vera 23.127 m2 í að vera 22.990 m2. Minnkun lóðarinnar er það óveruleg að hún hefur ekki áhrif á nýtingarhlutfall sem er óbreytt eða 0,28 samkvæmt tillögunni. Þá er gert ráð fyrir kantsteini, götugögnum og gróðri við enda Hofteigs en útfærslu á að skilgreina nánar í hönnun. Í framhaldi af gangstétt meðfram sunnanverðum Hofteig er gangbraut yfir Reykjaveg en gert er ráð fyrir miðeyju á Reykjavegi þar sem gangbrautin er til að bæta öryggi á gangbrautinni. Snúningsstæði og þrenging Gert er ráð fyrir litlu snúningssvæði við enda Kirkjuteigs sem verður útfært þannig að nokkur núverandi langstæði beggja megin götunnar verða felld burt. Einnig er gert ráð fyrir þrengingu á Reykjavegi þar sem núverandi tenging er við Kirkjuteig og er tilgangurinn að bæta öryggi á gangbraut yfir Reykjaveg en núverandi gangbraut mun hliðrast um nokkra metra til suðurs. Ekki verður lengur hægt að aka frá Hof- og Kirkjuteigi inn á Reykjaveg eftir breytinguna. Vísir/Birta Rán Í tillögunni kemur fram að talið sé að aukið umferðarflæði við aðrar götur verði lítið og innan þolmarka þeirra gatna sem það færist á. Möguleikinn á gegnumakstri um Kirkjuteig og Hofteig hverfur, sem er talið hafa jákvæð áhrif á umferð og öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda við Reykjaveg og við Laugarnesskóla. Fram kemur að enn verði mögulegt að nota sleppistæði með hringakstri norðan við Laugarnesskóla fyrir börn sem er ekið til skóla. Tillögunni hefur verið vísað til samþykktar í borgarráði. Minni- og meirihluti fagnar Í bókun í fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs fagna fulltrúar í meiri- og minnihluta breytingunni. „Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar fagnar því að tryggja eigi öryggi gangandi vegfarenda í kringum Laugarnesskóla og Skólaþorpið og bendir á að mikilvægt sé að þessar breytingar komist til framkvæmdar sem fyrst þar sem ítrekað hafa orðið árekstrar og slys á Reykjavegi þegar nemendur í Laugarnesskóla eru að ganga eða hjóla til og frá skóla.“ Í bókun meirihlutans segir að hluti nemenda skólans sé þegar fluttur í skólaþorpið og að fleiri muni flytja á næstu mánuðum. „… og það er gott að sjá að með þessum breytingum er verið að tengja skólaþorpið betur við Teigana. Ánægjulegt er að sjá hvernig tekið hefur verið tillit til hjólandi, en mjög margir hjólandi vegfarendur nýta þessi tvenn gatnamót sem um ræðir,“ segir að lokum. Kirkjuteig verður lokað við Reykjaveg og gerð þrenging á Reykjaveg til að tryggja umferðaröryggi. Vísir/Birta Rán Fulltrúar Samfylkingar í ráðinu fagna einnig breytingunni. „Öryggi gangandi vegfarenda, og ekki síst skólabarna við Laugarnesskóla, á alltaf að vera í forgangi og mikilvægt er að tryggja greitt og öruggt aðgengi gangandi og hjólandi. Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að tillagan hafi verið samþykkt.“
Reykjavík Skóla- og menntamál Umferð Umferðaröryggi Grunnskólar Börn og uppeldi Borgarstjórn Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Sjá meira