Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Hólmfríður Gísladóttir skrifar 12. ágúst 2026 07:18 Mönnum ber ekki saman um það hversu langt yfirvöld mega ganga í því að vernda forsetann en sumir segja að upplýsa hefði átt farþega til að þeir gætu valið hvort þeir ferðuðust með vélinni eða ekki. Getty/Eric Lee Vísbendingar voru uppi um að Íranir hefðu í hyggju að gera eldflaugaárás á Air Force One, flugvél Bandaríkjaforseta, í Tyrklandi fyrr í sumar, sem varð til þess að Donald Trump var fluttur í aðra vél þegar hann yfirgaf landið.
Frá þessu greinir New York Times og hefur eftir ónefndum heimildarmönnum. Trump var staddur á ráðstefnu Atlantshafsbandalagsins þegar yfirvöld vestanhafs fengu upplýsingar um ógn gegn lífi hans en Íranir vissu meðal annars hvar hann dvaldi í Ankara og þá sást til manns nærri ráðstefnuvettvangnum með axlarflugskeyti. Vísir greindi frá uppljóstrunum Washington Post í gær og því hvernig Trump gekk um borð í „gömlu“ forsetaflugvélina fyrir framan myndavélarnar en yfirgaf hana síðan í skjóli frá fjölmiðlum og var fluttur um borð í aðra vél. Sú vél flaug forsetanum frá Tyrklandi til Bretlands, þar sem hann fór aftur um borð í gömlu vélina á laun. Fjölmiðlar mynduðu síðan forsetann ganga út úr þeirri vél, eins og hann hefði verið um borð allan tímann. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem gripið er til blekkinga til að villa um fyrir óvinum Bandaríkjanna en það sem vekur athygli og hefur verið nokkuð gagnrýnt er að þrátt fyrir að ráðabruggið virðist benda til þess að gamla forsetavélin hafi verið mögulegt skotmark, flugu aðrir embættismenn og blaðamenn með henni til Bretlands. Blaðamennirnir og að minnsta kosti sumir embættismannanna voru ekki upplýstir um að forsetinn hefði verið fluttur frá borði af öryggisástæðum. Trump staðfesti frásögn fjölmiðla af blekkingunum í gær. Spurður um það hvort þeir sem flugu um borð í gömlu forsetaflugvélinni hefðu ekki verið notaðir sem tálbeita fyrir hann, sagðist forsetinn telja að vélin sem hann flaug með hefði verið líklegra skotmark. Hann útskýrði ekki hvernig það mætti vera en greint hefur verið frá því að hún notaðist ekki við kallmerkið „AF1“ eða „Air Force One“, líkt og gert er þegar forsetinn er um borð. Blekkingarleikurinn var jú til þess gerður að menn teldu að Trump væri um borð í gömlu forsetaflugvélinni. Nýju vélinni, sem Trump fékk að gjöf frá Katar, var flogið á undan til Bretlands. Efasemdir hafa verið uppi um öryggi vélarinnar, þrátt fyrir að gríðarlegum fjármunum hafi verið varið til að gera hana hæfa til flugs fyrir forsetann.
Bandaríkin Donald Trump Íran Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Fleiri fréttir Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Sjá meira