Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Hólmfríður Gísladóttir skrifar 10. ágúst 2026 07:32 Ocasio-Cortez er meðvituð um að ákvörðun hennar um að deila því að hún hyggist láta frysta egg sin muni opna hana fyrir gagnrýni pólitískra andstæðinga. epa/Will Oliver Alexandra Ocasio-Cortez, fulltrúadeildarþingmaður Demókrataflokksins frá New York, greindi frá því um helgina að hún hyggst láta frysta egg sín. Hún segist hafa ákveðið að greina frá ákvörðuninni til að opna umræðuna, þrátt fyrir að það feli í sér ákveðna pólitíska áhættu.
Ocasio-Cortez, sem hefur barist ötullega fyrir sjálfsákvörðunarrétti kvenna, sagðist á samfélagsmiðlum vilja sýna fram á að konur gætu lifað lífinu til fulls. Þá sagði hún að tækniframfarir hefðu aukið fjárhagslega möguleika kvenna á eggfrystingu en viðurkenndi á sama tíma að hún væri í ákveðinni forréttindastöðu hvað það varðaði. Þingkonan sagði síðar í viðtali við This Week á ABC News að hún útilokaði ekki forsetaframboð og gaf í skyn að hún myndi mögulega sækjast eftir öldungadeildarsæti Chuck Schumer. Hún sagði Demókrata hins vegar ættu að einbeita sér að þingkosningunum í nóvember í bili, í stað þess að huga að eigin pólitískum metnaði. Ocasio-Cortez, sem er yfirlýstur sósíaldemókrati, hefur mildast nokkuð í afstöðu sinni til ýmissa mála á síðustu árum og segist ekki styðja ýmis baráttumál Democratic Socialists of America. Má þar meðal annars nefna niðurskurð á fjárframlögum til lögreglunnar. Þingkonan er meðal þeirra Demókrata sem oftast eru nefndir á nafn í tengslum við forsetakosningarnar árið 2028 en meðal annarra má nefna Pete Buttigieg, fyrrverandi samgönguráðherra, Kamölu Harris, fyrrverandi varaforseta, og Gavin Newson, ríkisstjóra Kaliforníu.
Bandaríkin Frjósemi Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2028 Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Fleiri fréttir Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Sjá meira