Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Freyja Þórisdóttir skrifar 3. ágúst 2026 17:33 Ströndin sem er við bæinn Gelendzhik við Svartahaf er vinsæll áfangastaður rússneskra ferðamanna og var fjöldi fólks á staðnum þegar drónaárásin varð. Skjáskot/BBC Sjö eru látnir og þar af þrjú börn eftir að drónaárás á baðströnd í suðvesturhluta Rússlands. Minnst fjörutíu manns hlutu áverka í sprengingunni en það þykir mögulegt að árásinni hafi verið beint að rússnesku flotastöðinni í Novorossiysk sem er í um fjörutíu kílómetra fjarlægð frá ströndinni. Úkraínuher hefur ekki tjáð sig um málið.
Greint er frá þessu í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC) en þar kemur fram að rússnesk yfirvöld hafi staðfest tölu látinna og að Veniamin Kondratyev, ríkisstjóri Krasnodar Krai-héraðs, hafi sagt Úkraínumenn vera ábyrga vegna árásarinnar. Ströndin er vinsæl meðal rússneskra ferðamanna og var fjöldi fólks að njóta sólarinnar þegar má í myndböndum sjá hvar hvítur dróni lenti á miðri ströndinni. BBC greinir frá því að baðgestir hafi heyrt í skothríð skömmu áður en sprengingin varð. Þá hafi margir gert sig líklega til að flýja ströndina þegar skothríðin hófst en ekki haft nægan tíma. Einn fréttaritari þeirra veltir því upp að leiða megi líkur að því að skotin hafi verið Rússneski herinn að gera tilraun til að skjóta niður drónann. Þó sé ólíklegt að baðströndin hafi verið skotmark árásarinnar enda lítill ávinningur af andlátum almennra borgara. Á svæðinu séu jafnframt fjölmörg hugsanleg hernaðarleg skotmörk sem Úkraínumenn hefðu frekar áhuga á að ráðast á. Fyrr í dag, mánudaginn 3. ágúst, lenti drónaárás, sem virðist vera úkraínsk, á vöruhúsi í eigu stærstu netsöluverslunar Rússlands, Wildberries, um hundrað og áttatíu kílómetra austur af Moskvu. Árásin kom í kjölfar fleiri rússneskra flugskeytaárása á Kænugarð á laugardag, þar sem að minnsta kosti níu manns létust.
Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent „Skólinn okkar er alltof lítill“ Innlent Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Erlent Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Innlent Sniðganga Hvíta húsið Erlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Fleiri fréttir Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Sjá meira