Erlent

Hótar Hútum vegna á­rása á flutninga­skip

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist vonsvikinn með leiðtoga Húta.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist vonsvikinn með leiðtoga Húta. AP/Julia Demaree Nikhinson

Donald Trump segir að ef Hútar haldi áfram árásum á olíuflutningaskip á Rauðahafi muni hann draga bæði Írani og Húta til ábyrgðar. Árásir verði gerðar á bæði ríki. Forsetinn bandaríski segist verulega vonsvikinn með leiðtoga Húta, sem hafi hagað sér skynsamlega hingað til vegna stríðs Bandaríkjamanna gegn Íran.

Í færslu sem hann skrifaði á Truth social rifjar Trump upp að í fyrra hafi Bandaríkjamenn gert umfangsmiklar árásir gegn Hútum vegna ítrekaðra árása þeirra á skip á Rauðahafi. Síðan þá hafi leiðtogar Húta sýnt mikla ábyrgð.

Sjá einnig: Hútar hættir á­rásum á skip og Ísrael

Nú séu þeir hins vegar aftur byrjaðir að haga sér illa, með því að skjóta á tvö skip frá Sádi-Arabíu í gær. Þeir hæfðu minnst eitt þeirra en Sádar hafa reynt að koma olíu þeirra til kaupenda gegnum Rauðahaf, eftir að Íranir hófu árásir á skip á Hormússundi.

Sjá einnig: Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali

Forsetinn sagði að færsluna ætti að líta á sem yfirlýsingu þess efnis að ef Hútar geri aftur sambærilegar árásir muni Bandaríkin líta svo á að Íranir beri ábyrgðina, enda séu Hútar skósveinar þeirra.

Báðum aðilum verði refsað með umfangsmiklum árásum.

Þá sagðist Trump verulega vonsvikinn með Húta, þar sem þeir hefðu hingað til „hagað sér mjög fagmannlega og gáfulega“.

Færsla Trumps á Truth Social, eða svokallaður „sannleikur“.

Hútar, sem njóta stuðnings frá Íran, hafa um árabil háð blóðuga styrjöld við alþjóðlega viðurkennd stjórnvöld í Jemen. Þeir hafa sömuleiðis gert árásir í Sádi-Arabíu en Sádar hafa staðið við bakið á yfirvöldum í Jemen.

Bandaríkjamenn hafa verið að flytja töluvert af eldsneytisflugvélum, eftirlitsflugvélum og önnur hergögnum á svæðið. Samkvæmt yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum eru rúmlega fimmtíu þúsund bandarískir hermenn við störf í Mið-Austurlöndum.

Bendir það til þess að Trump vilji í það minnsta halda opnum þeim möguleika að auka enn frekar umfang árása á Íran.


Tengdar fréttir

Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu

Uppreisnarmenn Húta í Jemen, sem ráða stórum hluta landsins, segjast hafa ráðist á tvö olíuskip frá Sádí Arabíu á Rauða hafinu í nótt. Sádíarabísk yfirvöld hafa staðfest árás á annað skipanna en ekki á hitt og enn er óljóst hvort Hútar hafi í raun verið þar að baki. Engan mun hafa sakað.

Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn

Stríð Bandaríkjanna gegn Íran hefur kostað um það bil 37,5 milljarða dala. Það sagði Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, á fundi fjármálanefndar öldungadeildarinnar í gær, þar sem hann bað um 95 milljarða dala aukafjárveitingu fyrir ráðuneytið. Um mikinn átakafund var að ræða þar sem til skarpra orðaskipta kom.

Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana

Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, segir upplýsingar sem Ísraelar höfðu um fundi ráðamanna í Íran daginn sem Ali Khamenei var ráðinn af dögum benda til öryggisbrests sem líklega sé enn til staðar. Araghchi var í sömu byggingu og Khamenei þegar Ísraelar létu til skarar skríða og var dreginn úr rústunum. Síðan þá hefur hann verið á stöðugri hreyfingu til að forðast að verða sjálfur myrtur.

Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð

Bandaríkjamenn gerðu árásir á Íran í nótt, þá tíundu í röð síðan vopnahlé landanna tveggja fór út um þúfur. Íranir gerðu síðan árás á olíuskip á Hormússundi í morgun og skemmdu það þannig að áhöfnin þurfti að yfirgefa skipið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×